Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 201722 SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS Um síðastliðna helgi hófst skólaár Háskólans á Bifröst með nýnema- dögum og var skipulögð dagskrá fyr- ir nýnema frá fimmtudegi til laugar- dags. Grunn- og meistaranemar sem og nemendur í Háskólagátt hófu sitt skólaár um helgina. Reiknað er með svipuðum fjölda nýnema og í fyrra, eða um 220 nemendum. Nýjum meistaranemum við skólann fjölg- ar töluvert, úr um 70 í fyrra í 100 í ár. „Meistaranámið við Háskólann á Bifröst er í sókn en meistaranemar eru yfirleitt fólk sem tekur nám með fullri vinnu og er að ná sér í aukna þekkingu fyrir sín störf. Nýju náms- greinarnar í meistaranáminu sem kynntar voru á þessu ári eru forysta og stjórnun með áherslu á mann- auðsstjórnun, markaðsfræði og við- skiptalögfræði. Þær hafa allar fengið góðar viðtökur og skýra fjölgunina í meistaranáminu. Samkeppnin við vinnumarkaðinn er samt greinilega að harðna sem kemur fram í að færri koma í grunnnám og Háskólagátt. Eftir því sem staðan á vinnumark- aðnum hefur batnað er greinilegt að færri vilja staldra við, hætta að vinna eða minnka við sig, og hefja nám á ný,“ segir Vilhjálmur Egilsson, rekt- or Háskólans á Bifröst, í samtali við Skessuhorn. Undirbúa sókn í námi fyrir erlenda nemendur Vilhjálmur segir margt vera í gangi innan skólans og ýmsar nýjungar lit- ið dagsins ljós undanfarin ár sem eru spennandi. „Miklar nýjungar hafa verið innleiddar í skólanum á und- anförnum árum. Yfir 70% af nem- endum í háskóladeildunum sem inn- ritast nú eru að hefja nám sem ekki var til staðar skólaárið 2013-2014. Alþjóðlegi sumarskólinn starfaði í annað skipti nú í júlímánuði og framundan er að undirbúa frekari sókn í námi fyrir erlenda nemendur. Endurskipulagning á fjárhag íbúða- félaga á Bifröst hefur verið í vinnslu og nú verða væntanlega tímamót í þeim efnum þegar nýir aðilar eign- ast Sjónarhól og hótelhæðirnar í Hamragörðum. Væntanlega mun hótelreksturinn skipta um hendur og uppbygging hans halda áfram af enn meiri krafti.“ Nokkur breyting hefur einnig orðið á starfsliði við skólann sem og nýtingu þess. „Það hefur orðið fækkun í starfsliðinu á Bifröst þar sem ekki hefur verið ráðið í störf þeirra sem hættu eða fóru tíma- bundið til annarra starfa. Meira verður um stundakennslu en áður. Nýtt launakerfi fyrir akademíska starfsmenn var tekið upp á árinu og nýting starfsliðs er betri en áður. Þannig lækkar launakostn- aður á árinu þrátt fyrir 6% hækk- un launa um mitt ár,“ útskýrir Vil- hjálmur. Sameining þyrfti að efla skólastofnanir Töluverð umræða hefur skapast í samfélaginu síðustu ár varðandi sam- einingu háskóla á Íslandi. Sitt sýnist hverjum í þeim málum en Vilhjálmur segir mikilvægt að ef til sameiningar kæmi þyrfti það að vera á grundvelli þess að efla skólana en ekki í sparn- aðarskyni. „Háskólinn á Bifröst hefur haft sama hlutverk og Samvinnuskól- inn hafði við stofnun hans 1918 sem er að mennta fólk til forystustarfa í atvinnulífinu og samfélaginu. Þetta skapar skólanum ákveðna sérstöðu. Í skólann sækir gjarnan fólk sem hef- ur tekið sér hlé frá námi og öðlast reynslu á vinnumarkaðnum. Nem- endur koma í skólann til að ná lengra í lífi og starfi og eflast sem einstak- lingar sem styrkja atvinnulífið og bæta samfélagið. Það hafa verið um- ræður oftar en einu sinni á undan- förnum árum um sameiningu við aðra háskóla sem hafa ekki leitt til slíkrar niðurstöðu. Meginatriðið þarf að vera að sameining sé til þess að efla starfsemi þeirra sem renna sam- an og sækja fram en ekki að búa til virki til að verjast niðurskurði. Fag- leg og fjárhagsleg samkeppni og fjöl- breytni innanlands er nauðsynleg til þess að íslenska menntakerfið geti staðið sig á alþjóðlegan mælikvarða. Þetta er lögmál sem gildir jafn um at- vinnugreinar og rekstur í mennta- og heilbrigðiskerfunum.“ Yfirgnæfandi meirihluti í fjarnámi Ein af sérstöðum Háskólans á Bifröst er fjarnámskennsla skólans en yfir- gnæfandi meirihluti nemenda skól- ans stundar fjarnám. Vilhjálmur seg- ir skólann sífellt vera að leita leiða til að bæta þátt fjarnámsins. „Þró- unin til fjarnáms heldur áfram og meistaranámið er alfarið í fjarnámi. Um og yfir 80% nemenda eru nú í fjarnámi. Staðnám og fjarnám eru í sjálfu sér sama námið en sérstakar kennslustundir hafa verið á Bifröst þegar nægilega margir staðnemar hafa skráð sig í námskeið. Við erum markvisst að auka gæði fjarnámsins. á síðasta skólaári var gert sérstakt átak til að auka gæði netfyrirlestra í viðskiptadeildinni og á þessu skóla- ári verður samsvarandi átak gert í Félagsvísinda- og lagadeild. Innleið- ing nýrrar og betri tækni er viðvar- andi verkefni og ný skref verða vænt- anlega stigin á komandi mánuðum,“ segir Vilhjálmur. Aldarafmæli á næsta ári Háskólinn á Bifröst fagnar aldaraf- mæli á næsta ári og er undirbúning- ur frá þau tímamót hafin. Afmælið mun lita allt næsta ár hjá háskólan- um. „Sérstök nefnd starfar að und- irbúningi viðburða á afmælisárinu en þeim verður dreift yfir árið. Við- burðadagatalið verður kynnt þegar líða fer á haustið,“ segir Vilhjálmur sem segist hlakka til skólaársins. „Skólaárið leggst mjög vel í okk- ur. Nám og kennsla í skólanum og stjórnsýsla hans hafa fengið stað- festingu á gæðum frá Gæðaráði ís- lenskra háskóla. Skólinn hefur verið að breytast ört á undanförnum árum og frekari breytingar eru framundan. Skólinn hefur sýnt ótrúlega aðlögun- arhæfni í tímum mikilla breytinga í samfélaginu og það eru sannar- lega spennandi tímar framundan í skólanum þegar hann siglir inn í aðra öldina í sögu sinni,“ segir Vil- hjálmur að endingu. bþb Háskólinn á Bifröst „Spennandi tímar framundan í skólanum þegar hann siglir inn í aðra öldina í sögu sinni“ Vilhjálmur Egilsson við útskrift úr Háskólanum á Bifröst í júní síðastliðnum. Ljósm. James Einar Becker. Eitt af aðalsmerkjum BA og BS náms við Háskólann á Bifröst eru misserisverkefni sem nemendur vinna að í hópum. Áhersla er lögð á að tengja verkefnin við raunverulegar áskoranir atvinnulífs og samfélags. Ljósm. af Facebook HB. Í sumar var í annað sinn haldinn alþjóðlegur sumarskóli á vegum Háskólans á Bifröst. Vilhjálmur segir að skólinn stefni á að fara í frekari sókn í námi fyrir erlenda nemendur. Myndin er tekin við Glanna. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Um síðastliðna helgi voru haldnir nýnemadagar í Háskólanum á Bifröst. Ljósm. James Einar Becker.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.