Skessuhorn - 23.08.2017, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 2017 23
Vígsla á pottasvæði
laugardaginn 26. ágúst
Formleg vígsla á nýju pottasvæði á Jaðarsbökkum verður laugardaginn 26. ágúst
næstkomandi kl. 9:15. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Þórður Guðjónsson,
formaður skóla- og frístundaráðs, munu klippa á borða og bjóða fyrstu gesti
dagsins velkomna. Laugardag og sunnudag verður hægt að skella sér í
sund á Jaðarsbökkum án endurgjalds og fá allir sem vilja frostpinna að
loknu sundi í boði Akraneskaupstaðar, eða á meðan birgðir endast.
Hlökkum til sjá ykkur um helgina!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Fyrir viku var haldin uppskeruhátíð
sumarlesturs Bókasafns Akraness.
á hátíðinni var Ævar Örn Bene-
diktsson, eða Ævar vísindamað-
ur, heiðursgestur og las hann kafla
úr óútkominni bók sinni Þitt eigið
ævintýri fyrir lestrarhestana. Einn-
ig voru vinningshafar í happdrætti
sumarsins dregnir út og loks fengu
krakkarnir hressingu.
Sumarlestur Bókasafn Akra-
ness er hvatningarátak bókasafns-
ins til þess að krakkar lesi sér til
yndisauka á sumrin þegar frí gefst
frá námsbókunum og hefur átakið
gefið góða raun, en það var haldið
í tólfta sinn í ár. Ævar Örn hefur
verið ötull baráttumaður fyrir því
að kveikja áhuga barna fyrir bókum
en undanfarin ár hefur lestur og
lesskilningur barna á Íslandi farið
dvínandi. Ævar Örn segir að átak
líkt og Bókasafn Akraness stendur
fyrir hafi mjög jákvæð áhrif. „Þeg-
ar hlutirnir eru gerðir eins vel og
hér á Bókasafni Akraness getur það
haft virkilega góð áhrif og komið
snjóboltanum til að rúlla. Það er
ánægjulegt að sjá hve margir krakk-
ar taka þátt og hvað krakkarnir hafa
verið duglegir að lesa,“ segir Ævar í
samtali við Skessuhorn.
Þátttaka í sumarlestrinum í ár var
aðeins minni en árið 2016. Svip-
aður fjöldi stúlkna tók þátt en öllu
færri strákar en á síðasta sumri. 119
krakkar voru virkir í sumarlestr-
inum og voru fleiri bækur lesnar
í ár en í fyrra eða 1.339 bækur og
79.608 blaðsíður. bþb
Uppskeruhátíð sumar-
lesturs Bókasafns Akraness
Mikill fjöldi lestrarhesta var saman kominn í Bókasafni Akraness á uppskeruhátíð
sumarlestursins.
Þátttakendur sumarlestursins höfðu þakið heilan vegg með geimskipum og
geimverum. Hver miði þýddi ein lesin bók og voru því yfir þrettán hundruð miðar
á veggnum.
Ævar Örn Benediktsson las upp úr óútkominni bók sinni með miklum tilþrifum fyrir
börnin.
Fjórir krakkar voru dregnir úr í happdrætti sumarsins. Hér er vinningshafinn Sindri Már
Einarsson ásamt Halldóru Jónsdóttur bæjarbókaverði og Ævari Erni vísindamanni.
Sumarlestrarátaki er víða að ljúka á
bókasöfnum landsins. á meðfylgj-
andi mynd eru nokkrir þátttakend-
ur sumarlesturs á Héraðsbókasafni
Borgarfjarðar í Borgarnesi á upp-
skeruhátíð verkefnisins sem haldin
var síðastliðinn föstudag. Það var
gert með að veita viðurkenningar
og svo gæddu gestir sér á dýrindis
súkkulaðiköku sem velunnari safns-
ins hafði bakað af þessu tilefni.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
forstöðumanns Safnahúss var þetta
í tíunda sinn sem safnið gengst fyr-
ir þessu verkefni fyrir börn á aldr-
inum 6-12 ára. „Börnin koma á
safnið og velja sér bók eða bækur til
lesturs og skrá sig um leið í Sumar-
lesturinn. Valið er lestrarefni við
hæfi og eftir áhuga hvers og eins
og lestrarkunnáttan þjálfuð með
því móti. Hugsunin er sú að hvetja
krakka til hafa gaman yfir sumarið
með bók í hönd meðan skólastarfs
nýtur ekki við,“ segir Guðrún.
mm
Uppskeruhátíð sumarlesturs í Borgarnesi
Tæknifyrirtækið Skaginn 3X sem
hefur starfsstöðvar á Akranesi og
Ísafirði mun á næstunni opna sölu-
skrifstofu í Noregi en fyrirtækið
hefur sótt inn á Noregsmarkað að
undanförnu. Fréttavefur Bæjarins
besta greinir frá. Skaginn 3X hefur
gert stóra samninga um ofurkæl-
ingarbúnað sinn við norsk laxaslát-
urhús og er mikill áhugi á vörulín-
um fyrirtækisins í Noregi, bæði hjá
hefðbundnum sjávarútvegsfyrir-
tækjum og laxeldisfyrirtækjum.
mm
Skaginn 3X opnar söluskrifstofu í Noregi
Svipmynd úr norsku
laxasláturhúsi.