Skessuhorn - 23.08.2017, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 2017 29
Vantar litla íbúð
Karlmann vantar litla íbúð til
leigu á Akranesi eða í sveitunum
þar í kring. Best að hún sé 1-2
herbergja. Ég er reyklaus. Skilvísum
greiðslum heitið. omar@kafari.is.
Íbúð til leigu á Akranesi
Til leigu björt og falleg 4 herb. íbúð
á Akranesi. Á jarðhæð með sérinn-
gangi, staðsett miðsvæðis nálægt
Grundaskóla og Jaðarsbökkum.
Íbúðin leigist í 4 eða 5 mánuði
frá 1. september nk. Nánari uppl. í
síma 896-4546.
Reiðhjól til sölu
Kven- og karlmannsreiðhjól til
sölu. Upplýsingar í síma 431-5646.
Sjónvarpsborð
Sjónvarpsborð til sölu. Upp-
lýsingar í síma 847-4109.
Námskeið á netinu
Vinsæl og gagnleg námskeið á
netinu; bókhaldsnámskeið, nám-
skeið í skattskilum fyrirtækja
o.fl. Skráning á http://fjarkenns-
la.com eða samvil.fjarkennsla@
gmail.com eða í síma 898-7824.
Markaðstorg Vesturlands
Borgarbyggð - í dag 23. ágúst
Grunnskólinn í Borgarnesi - Kynning-
arfundur í Hjálmakletti. Boðað er til
fundar um fyrirhugaðar framkvæmd-
ir við endurbætur á skólahúsnæðinu
og viðbyggingu. Ráðist verður í veru-
legar endurbætur á núverandi hús-
næði á næstunni ásamt því að hafin
verður bygging mötuneytis og salar í
viðbyggingu við skólann. Fundurinn
hefst kl. 17:00 í Hjálmakletti.
Dalabyggð -
fimmtudagur 24. ágúst
Göngudagur Umf. Æskunnar í sam-
starfi við Byggðasafn Dalamanna á
Laugum - Ránargil og jarðhýsi í Sæ-
lingsdal. Gangan hefst við Sælings-
dalslaug kl. 18:00 og verður gengið
fram með Sælingsdalsá. Fyrst verð-
ur komið við í „jarðhýsi Ósvífurs-
sona“. Í hrauninu framan við Lauga
hefur fundist byrgi, sem lítur út fyr-
ir að vera manngerður felustaður að
hluta. Síðan verður gengið inn eftir
Ránargili sem er litfagurt gil á móts
við Gerði. Leiðsögumaður verður Jón
Benediktsson frá Sælingsdalstungu.
Áætlað er að gangan taki tvær til þrjár
klst. Rétt er að benda þeim sem eru
seint fyrir, að auðvelt er að koma inn í
gönguna eftir að hún er lögð af stað.
Eftir gönguna mun Umf. Æskan bjóða
göngumönnum í sund í Sælingsdals-
laug og kaffisopa.
Dalabyggð -
fimmtudagur 24. ágúst
Dalakonur í félagsmiðstöðinni.
Fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 20
í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar,
verður fyrsta kvöldið þar sem hug-
myndin er að konur hittist, kjafti og
kynnist. Þessi hittingur er ætlaður öll-
um konum, 18 ára og eldri, og börn
og karlar eru ekki leyfð, nema und-
anþága er gefin fyrir börn upp að
tveggja ára ef þarf. Af hverju? Þessi
kvöld eru hugsuð sem vettvangur
fyrir konur til að eiga stund fyrir sjálf-
ar sig, kjafta og kynnast. Kaffi verður
í boði en endilega takið með ykkur
nasl ef vill. Og handavinnu ef vill. Og
aðra drykki ef vill – en aðallega ykkur
sjálfar! Stefnt er að því að hafa svona
fundi einu sinni til tvisvar í mánuði ef
áhugi er fyrir því.
Hvalfjarðarsveit -
föstudagur 25. ágúst
Hátíðin Hvalfjarðardagar fara fram í
Hvalfjarðarsveit dagana 25.-27. ágúst
næstkoamndi. Fjölbreytt dagskrá
víða um sveitina og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Sjá nánar um-
fjöllun og auglýsingu í Skessuhorni
vikunnar.
Akranes - föstudagur 25. ágúst
ÍA mætir Þrótti R. í 1. deild kvenna í
knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 18:00
á Akranesvelli.
Stykkishólmur - laugardagur 26.
ágúst
Snæfell/UDN mætir Herði Í. á Stykkis-
hólmsvelli í 4. deild karla í knattspyrnu.
Lokaleikur sumarsins hjá Snæfelli/
UDN. Leikurinn hefst kl. 14:00.
Borgarbyggð - laugardagur 26. ágúst
Skallagrímur mætir Ými í 4. deild karla
í knattspyrnu. Skallagrímur getur gull-
tryggt sæti sitt í úrslitakeppni 4. deild-
arinnar þar sem leikið er um sæti í
3. deild að ári. Leikurinn hefst kl. 14:00
á Skallagrímsvelli í Borgarnesi.
Grundarfjörður -
laugardagur 26. ágúst
Sveitamarkaður að Vatnabúðum við
Grundarfjörð frá kl. 13:00 - 16:00. Kaffi
og með því.
Borgarbyggð -
laugardagur 26. ágúst
Verðlaun úr sjóði minningarsjóði
Guðmundar Böðvarssonar og Ingi-
bjargar Sigurðardóttur frá Kirkju-
bóli. Að minningarsjóðnum standa
erfingjar Guðmundar og Ingibjargar.
Veitt eru verðlaun til einstaklings eða
hóps sem unnið hefur að menning-
armálum í Borgarfjarðarhéraði, einn-
ig eru veitt verðlaun til ljóðskálds í
landinu. Þetta er í 10. sinn sem sjóður-
inn úthlutar verðlaunum en það var
fyrst gert árið 1994. Útlutað verður í
Snorrastofu í Reykholti kl. 15:00.
Akranes - laugardagur 26. ágúst
Tónleikar í Jónsbúð á Akranesi
laugardaginn 26. ágúst næst-
komandi. Hljómsveitir frá Akra-
nesi leika fyrir dansi: Skrímsl, Hector
Rektor, Hark, The Boy and his Blob,
xGADDAVÍRx, Panil. Tónleikarnir
hefjast kl. 20:00. Frítt inn. Sjá nánar
umfjöllun í Skessuhorni vikunnar.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
LEIGUMARKAÐUR ÝMISLEGT
TIL SÖLU
20. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.372
gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Erla
Fanný Gunnarsdóttir og Jón
Eyþór Gottskálksson, Kópavogi.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
1. ágúst. Drengur. Þyngd: 4.022
gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar:
Eva Margrét Jónudóttir og
Jón Sigurður Snorri Bergsson,
Hvanneyri. Ljósmóðir: Anna
Björnsdóttir.
3. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.846
gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar: Olga
Rún Kristjánsdóttir og Jens Gísli
Heiðarsson, Reykjavík. Ljósmóðir:
Erla Björk Ólafsdóttir.
9. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.802
gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Lára
Jóhanna Magnúsdóttir og Bergur
Líndal Guðnason, Akranesi.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
11. ágúst. Drengur. Þyngd:
3.910 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar:
Ásrún Óskarsdóttir og Arnar
Stefánsson, Reykjavík. Ljósmóðir:
Erla Björk Ólafsdóttir. Nafn
drengsins er Hrafn Tinni Ísfeld
Arnarsson.
18. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.074
gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar:
Iðunn Hauksdóttir og Heimir
Klemenzson, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
Stúlkan hefur fengið nafnið
Ingibjörg.
4. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.332
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Dísa
Rhiannon Edwards og Reginald
Keil Dupree, Reykjanesbæ.
Ljósmóðir Anna Björnsdóttir.
9. ágúst. Drengur. Þyngd: 2.908
gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar:
Hólmfríður Eysteinsdóttir og
Sigurður Bachmann Sigurðsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Anna
Björnsdóttir.
18. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.650
gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar:
Hlín Hilmarsdóttir og Reynir Ver
Jónsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Hafdís Rúnarsdóttir.
20. ágúst. Stúlka. Þyngd: 2.830
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar:
Anna Kristín Guðmundsdóttir og
Daníel Karl Egilsson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
Þess er minnst í ár af ýmsum menn-
ingarstofnunum að 22. ágúst síðast-
liðinn voru liðin 100 ár frá fæðingu
dr. Selmu Jónsdóttur listfræðings.
Selma var dóttir kaupmannshjónanna
Helgu Maríu Björnsdóttur og Jóns
Björnssonar. Foreldrar hennar voru
bæði úr Borgarfirði, Helga María frá
Svarfhóli í Stafholtstungum og Jón frá
Húsafelli í Hálsasveit. Hann kenndi
sig ávallt við Bæ í Bæjarsveit þar sem
hann ólst upp. Selma var fædd og
uppalin í Kaupangi í Borgarnesi og
átti alltaf sterk tengsl við Borgarfjörð.
Kaupangur er elsta húsið í bænum,
byggt um 1880. Þangað fluttu Jón
og Helga María árið 1907 og bjuggu
þar í nærfellt fjörutíu ár. á upphafs-
árum búskapar þeirra hjóna var það
eitt örfárra íbúðarhúsa á staðnum og
mæddi mikið á heimilinu vegna gesta-
móttöku. Húsið stendur við höfnina
og var ekki að sökum að spyrja því þá
ferðuðust flestir sjóðleiðis upp í Borg-
arnes. Í dag hefur húsið verið gert upp
og er nýtt í ferðaþjónustu.
„Selma var merkur brautryðjandi á
íslensku listasviði á 20. öld og er því
verðugt að minnast hennar á tíma-
mótum. Hún var fyrst kvenna til að
ljúka doktorsprófi við íslenskan há-
skóla og var forstöðumaður Lista-
safns Íslands fyrstu 30 ár starfstíma
þess eða allt fram að því að hún lést,
åárið 1987,“ segir Guðrún Jónsdótt-
ir forstöðumaður Safnahússins, en
safnið minnist Selmu á afmælisárinu í
samstarfi við eftirtalda aðila: Kvenna-
sögusafn Íslands, Landsbókasafn-
Háskólabókasafn, Listasafn Íslands,
Listfræðafélag Íslands og Þjóðminja-
safn Íslands. Framlag Safnahússins
er veggspjaldasýning um Selmu sem
unnin hefur verið í samstarfi við fjöl-
skyldu hennar. Mun sú sýning standa
til áramóta. Ennfremur hefur verið
opnuð sérstök síða um Selmu á www.
safnahus.is. mm/gj
Foreldrar Selmu bjuggu í Kaupangi í
hartnær fjóra áratugi.
Dr. Selmu Jónsdóttur minnst í samstarfi
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
7
- L
jó
sm
. G
Ó
Messa sunnudaginn 27. ágúst kl. 14
11. s. e. trinitatis
Sóknarprestur
Selma var yngst í fjögurra systkina
hópi og listrænir hæfileikar einkenndu
þau öll. Á myndinni sjást þau ásamt
foreldrunum sínum. Frá v. var elstur
Björn Franklín (f. 1908), þar næst Guð-
rún Laufey (Blaka, f. 1910), þá Selma
og næstyngstur (lengst til hægri) var
Halldór Haukur Jónsson arkitekt (f.
1912). Ljósm. Héraðsskjalasafn
Borgarfjarðar.