Skessuhorn - 23.08.2017, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 201730
Annar Íslend-
ingurinn í mark í
maraþoninu
HVALFJ.SV. Sigurjón Ernir Sturluson frá
Hnúki í Hvalfjarðarsveit var tíundi í mark
í heilmaraþoni Reykjavíkurmaraþons Ís-
landsbanka síðastliðinn laugardag ásamt
því að hafna í öðru sæti í Íslandsmeistara-
móti hlaupsins í karlaflokki. Sigurjón hljóp
maraþonið á tveimur klukkustundum og
57 mínútum. Sigurjón er mikill hlaupari og
hljóp m.a. fjallamaraþon á Mont Blanc fyrr í
sumar, eins og fram kom í viðtali við hann í
Skessuhorni. -bþb
Fimmti sigur-
leikur Kára í röð
AKRANES: Kári hefur verið á miklum skriði
í þriðju deildinni undanfarið og fátt virðist
geta stöðvað þá í að komast upp um deild.
Kári mætti liði KFG í fjórtándu umferð þriðju
deildarinnar síðastliðinn föstudag á Akra-
nesvelli. Leiknum lauk með 2-1 sigri Kára
sem vann þar með sinn fimmta sigur í röð
í deildinni. Mörk Kára skoruðu Ragnar Már
Lárusson og Alexander Már Þorláksson en
mark KFG skoraði Kári Pétursson. Kári er sem
stendur með sex stiga forystu á toppi deild-
arinnar þegar fjórir leikir eru eftir. Ef Kári
vinnur næstu tvo leiki sína kemst liðið upp
óháð því hvernig aðrir leikir fara. Næsti leik-
ur Kára er á morgun klukkan 18:00 á útivelli
gegn Reyni Sandgerði. -bþb
Skallagrímur
nálgast úrslita-
keppnina
BORGARNES: Skallagrímur mætti Hruna-
mönnum á Flúðavelli síðastliðinn laugardag
í næstsíðustu umferð C-riðils fjórðu deildar
karla í knattspyrnu. Um var að ræða nokk-
uð mikilvægan leik þar sem Skallagrímur er
í vænlegri stöðu að komast í úrslitakeppni
fjórðu deildar um laus sæti í þriðju deild-
inni á næsta ári. Leiknum lauk með örugg-
um sigri Skallagríms 9-3. Mörk Skallagríms
skoruðu; Goran Jovanovski 3, Guðni Albert
Kristjánsson 2, Viktor Ingi Jakobsson 2, Vikt-
or Már Jónsson og Brynjar Snær Pálsson. Tvö
efstu lið riðilsins fara í úrslitakeppnina en
Skallagrímur er í öðru sæti fyrir lokaumferð-
ina, tveimur stigum á undan Árborg sem er
í þriðja sæti. Það verður því æsispennandi
lokaumferð á laugardaginn næstkomandi en
Skallagrímur mætir þá toppliði riðilsins, Ými,
á Skallagrímsvelli.
-bþb
ÍA með góðan
sigur á toppliði
deildarinnar
AKRANES: Skagakonur hafa verið að rétta
úr kútnum í fyrstu deildinni að undanförnu.
Þær mættu Selfossi föstudaginn síðastliðinn
en Selfoss var fyrir leikinn á toppi deildarinn-
ar. Skagakonur gerðu sér lítið fyrir og unnu
góðan sigur á Selfyssingum 1-0 og markið
skoraði Unnur Ýr Haraldsdóttir en hún hefur
komið af miklu krafti aftur inn í lið Skaga-
kvenna eftir fæðingarorlof. Nú eru þrír leik-
ir eftir af mótinu og er næsti leikur ÍA gegn
Þrótti á Akranesvelli næstkomandi föstudag.
-bþb
Víkingur berst
fyrir lífi sínu í
deildinni
SNÆF: Von Víkings Ólafsvíkur að halda sér
upp í fyrstu deild kvenna er að verða lítil. Lið-
ið virðist þó ekki ætla að gefast upp fyrr en í
fulla hnefana. Liðið mætti Tindastóli í fimm-
tándu umferð deildarinnar en bæði lið voru í
fallsæti fyrir leikinn. Víkingur sigraði í leikn-
um 2-1 með mörkum frá Fehimu Líf Purse-
vic og Mary Essiful. Með sigrinum höfðu lið-
in sætaskipti og Víkingur fór úr síðasta sæti í
það næstsíðasta með ellefu stig, enn eru þó
fimm stig upp úr fallsæti og aðeins þrír leik-
ir eftir. Það er þó enn von fyrir Víking og er
næsti leikur föstudaginn næstkomandi gegn
ÍR á útivelli. -bþb
Síðastliðinn sunnudag varð Stef-
án Gísli Örlygsson, Skagamað-
ur og meðlimur í Skotfélagi Akra-
ness, bikarmeistari í leirdúfuskot-
fimi (skeet). Um er að ræða móta-
röð á vegum Skotsambands Íslands
og stóð Stefán uppi sem stiga-
hæsti skotmaðurinn með 64 stig
af 65 mögulegum. „Sumarið hefur
gengið mjög vel hjá mér og ég er
sáttur með það í heild. Ég hef ver-
ið stöðugur allt tímabilið og aldrei
lent neðar en í öðru sæti á móti í
sumar. Í hverju móti eru skotnar
125 leirdúfur og ég hef í þremur
mótum skotið fleiri en 114 dúfur
en það er viðmið á Ólympíuleik-
ana svo ég get ekki verið annað
en glaður með það,“ segir Stefán
Gísli í samtali við Skessuhorn.
Heimsmeistaramót
eftir hálfan mánuð
Keppnissumarið kláraðist þó ekki
hjá Stefáni um helgina heldur er
hann á leið til Moskvu í Rússlandi
eftir hálfan mánuð á Heimsmeist-
aramót í skotfimi. Hann heldur
út ásamt Hákoni Svavarssyni úr
Skotfélagi Suðurlands sem einn-
ig keppir á mótinu. „Þetta er lang-
stærsta mót sem ég hef tekið þátt
í. Ég hef áður keppt á Norður-
landamóti, Heimsbikaramóti og
Smáþjóðleikunum árið 2001 í San
Marino en þau eru ekki í líkingu
við mótið í Moskvu. Ég er afar
spenntur fyrir að keppa á mótinu.
Við verðum á flottu svæði og ekki
skemmir fyrir að ég hef aldrei
áður komið til Rússlands svo það
verður líka upplifun,“ segir Stefán
Gísli sem hefur keppt lengi í skot-
fimi og er einn af stofnmeðlimum
Skotfélags Akraness. „Skotfélagið
var stofnað árið 1994 og aðstað-
an var tekin í notkun árið 1998. Ég
fór fljótlega að keppa í kjölfar þess
en hætti því að mestu eftir Smá-
þjóðleikana árið 2001 og fór ekki
að sinna sportinu að alvöru fyrr en
fyrir fimm árum síðan. Ég ákvað
svo á þessu ári að setja allt púður í
skotfimina og æfa eins og keppnis-
maður, maður þarf að gera það ef
maður ætlar að ná
árangri. Ég hef
æft tvisvar til fimm
sinnum í viku allt
árið en æfingarn-
ar eru oft háðar
veðri.“
Ekki ólíkt
golfi
Þegar Stefán fór
fyrst að skjóta leir-
dúfur stóð ekk-
ert endilega til að
verða keppnismað-
ur í greininni. „Ég
byrjaði að skjóta
leirdúfur til þess að
æfa mig fyrir skot-
veiðarnar. Ég átt-
aði mig þó fljótlega
á því að sportið
hentaði mér vel auk
þess hve skemmti-
legt mér þótti það,“
segir Stefán og
bætir við að skot-
fimi sé mjög tækni-
leg íþrótt. „Þetta
er mikil hugar-
íþrótt og snýst að
stórum hluta um
nákvæmni. Ég hef
oft líkt þessu við
golf; þetta snýst um
samhæfingu hugar
og handar. Maður
þarf að halda gríð-
arlegri einbeitingu
þar sem leirdúf-
urnar fara vel yfir
hundrað kílómetra
hraða.“
Öflugt starf Skotfélags
Akraness
Eins og áður segir var Stefán einn af
stofnendum Skotfélags Akraness og
er enn virkur í starfinu. „Félagið er
virkt og í því eru um 130 manns. Við
höfum haldið þrjú mót í sumar og þar
af eitt kvennamót. Skotfélagið hefur
átt keppendur í flestöllum landsmót-
um sumarsins í karla- og kvenna-
flokki. Það hefur verið ánægjulegt að
sjá að sífellt fleiri konur eru að ganga
til liðs við félagið enda er þetta sport
jafnt fyrir konur sem karla. Aðstaðan
sem félagsmenn hafa fyrir skotfimina
er ágæt en við erum alltaf að reyna að
bæta hana. Einnig hefur Skotfélagið
aðstöðu fyrir loftriffil og loftskamm-
byssu í íþróttahúsinu á Vesturgötu.
Við sinnum einnig ýmsum verkefn-
um eins og skotvopnanámskeiðum
fyrir Umhverfisstofnun og hæfnis-
próf fyrir þá sem eru að fara á hrein-
dýraveiðar svo það er mikið líf í fé-
laginu,“ segir Stefán.
Framhaldið hjá Stefáni í skotfim-
inni er spennandi og ætlar hann að
halda ótrauður áfram eftir Heims-
meistaramótið í Moskvu. „Ég ætla
að halda áfram sama skriði og ég hef
verið á og stefni ég á nokkur lands-
liðsverkefni á næsta ári. Ég ætla að
fara inn í næsta ár og æfa jafn stíft og
ég hef gert á þessu ári,“ segir hann
að endingu.
bþb
Stefán Gísli bikarmeistari í skotfimi
og á leið á Heimsmeistaramót
Stefán Gísli með verðlaunagripinn síðastliðinn sunnudag.
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA sendi
frá sér yfirlýsingu síðastliðinn
mánudag þar sem fram kom að
Gunnlaugur Jónsson hafi óskað eft-
ir því við stjórn félagsins að stíga til
hliðar sem þjálfari meistaraflokks
ÍA. Stjórnin samþykkti beiðni
Gunnlaugs og hefur falið Jóni Þór
Haukssyni, aðstoðarmanni Gunn-
laugs, að stjórna liðinu út keppn-
istímabilið. Þá hefur félagið ráð-
ið ármann Smára Björnsson sem
aðstoðarþjálfara mfl. karla. Einn-
ig munu þeir Þórður Guðjónsson
og Sigurður Jónsson koma til með
að aðstoða nýráðinn þjálfara, Jón
Þór Hauksson, í þeim verkefnum
sem framundan eru. „Ég er mjög
ánægður með þessa niðurstöðu því
þetta eru reynslumiklir menn með
mikinn karakter. Það er mikilvægt
fyrir okkur að þeir svöruðu kall-
inu fljótt og vel. Allir með Skaga-
hjartað á réttum stað og tilbúnir að
hjálpa liðinu,“ segir Jón Þór Hauks-
son þjálfari.
Gengi Skagamanna hefur valdið
vonbrigðum í sumar og situr liðið
á botni Pepsideildarinnar með tíu
stig, eða sex stigum minna en ÍBV í
næstneðsta sæti. Skagamenn töpuðu
einmitt fyrir Eyjamönnum 1-0 í síð-
asta leik Gunnlaugs. Í yfirlýsingu ÍA
er því lýst að fjöldi áfalla hafi dunið
á liðið fyrir tímabilið í ár og þjálfar-
ar og stjórn áttað sig á að tímabilið
gæti orðið erfitt. Stjórn félagsins vill
koma á framfæri þökkum til Gunn-
laugs fyrir störf sín undanfarin fjög-
ur ár. Þá lýsir stjórnin sérstaklega
yfir ánægju sinni með hversu vel
Gunnlaugur hafi staðið sig í að
byggja upp ungt og efnilegt lið. Í
lok yfirlýsingarinnar segir; „Það
hefur reynst okkur Skagamönn-
um best í gegnum tíðina að standa
saman og berjast sem einn mað-
ur þegar á móti blæs, mörg dæmi
sanna það. Framtíð knattspyrnunn-
ar er björt á Skaganum og við erum
rosalega stolt af þessu frábæra fé-
lagi okkar. Við erum nær því í dag
en við höfum verið um langt skeið
að búa til lið byggt á heimamönn-
um sem getur barist á meðal þeirra
bestu. Við verðum að gefa drengj-
unum okkar tíma til að þroskast enn
frekar og styðja þá þó á móti blási.
á sama tíma þurfum við að standa
okkur betur í því að ná í þær styrk-
ingar utan frá sem nauðsynlegar eru
á hverjum tíma. Að lokum vill stjórn
KFÍA koma á framfæri sérstöku
þakklæti til stuðningsmanna félags-
ins sem hafa heldur betur látið í sér
heyra og þétt raðirnar á undanförn-
um vikum í mótbyrnum sem strák-
arnir okkar eru í núna. Kærar þakk-
ir fyrir ykkar gríðarlega mikilvæga
framlag í baráttunni. áfram ÍA!“
bþb
Gunnlaugur Jónsson hættir sem þjálfari ÍA
Gunnlaugur Jónsson er hættur sem þjálfari Skagamanna
eftir fjögur ár við stjórnvölin.
Jón Þór og Ármann Smári taka nú við þjálfun liðsins.