Skessuhorn


Skessuhorn - 21.02.2018, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 21.02.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 20182 Það eru umhleypingar í kort- unum með öllu því sem til- heyrir, slabbi á götum. Þá er gott að eiga góða vatnshelda skó og jafnvel taka með sér auka sokka hvert sem haldið er. Þá gildir einu hvort þeir eru samstæðir eður ei. Á morgun, fimmtudag, er útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt, 13-18 m/s en hægari vind og léttskýjað á norðausturhorn- inu. Frost yfirleitt 0 til 5 stig. Gengur í suðaustanstorm eða -rok með talsvert mikilli rign- ingu eða slyddu á föstudag. Úr- komuminna fyrir norðan. Hiti 2 til 7 stig síðdegis. Á laugar- dag spáir hvassviðri eða stormi að sunnan framan af degi, en dregur síðan talsvert úr vindi. Rigning eða slydda, en þurrt að kalla nyrðra. Kólnar í veðri. Suð- læg átt og dálítil slydda eða rignin á Austurlandi á sunnu- dag. Annars staðar hægt og þurrt. Hlýnar smám saman. Á mánudag er útlit fyrir milda suðaustanátt með smá vætu á Suður- og Vesturlandi. Bjart fyr- ir norðan. „Hversu mikið kaffi drekkur þú?“ var spurningin sem lögð var fyrir á vef Skessuhorns í liðinni viku. „3-5 bolla á dag“ sögðu flestir, 37% en næstflest- ir, 21%, kváðust ekki drekka kaffi. „Fleiri en 5 bolla á dag“ sögðu 18%, „1-2 bolla á dag“ sögðu 15% og 9% sögðust ein- faldlega drekka „of mikið“. Í næstu viku er spurt: „Gætir þú hugsað þér að starfa í sveitarstjórn?“ Einar Örn kraftlyftingar- maður setti þrjú Íslandsmet um helgina. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Í umræðunni að byggja nýja slökkvistöð BORGARNES: Sveitastjórn Borgarbyggðar samþykkti á síð- asta ári að afhenda björgunar- sveitinni Brák lóð undir nýtt húsnæði við fitjar í Borgarnesi. Óformlegar umræður hafa ver- ið í kjölfarið hjá sveitarstjórn að fara í húsbyggingaframkvæmd- irnar með björgunarsveitinni og byggja þá nýtt hús fyrir slökkvi- liðið. „Safnahúsið er með geymslur við hliðina á slökkvi- liðinu okkar við Sólbakka og hefur óformlega verið rætt hjá okkur um að stækka þá aðstöðu og færa björgunarsveitina í hús- næði með björgunarsveitinni Brák,“ segir Björn Bjarki Þor- steinsson, forseti sveitastjórnar, í samtali við Skessuhorn. „Það eru margir kostir þess að hafa þessa viðbragðsaðila; slökkvilið- ið og björgunarsveitina, á sama stað. Þetta eru þó aðeins vanga- veltur ennþá og ljóst að þetta mun taka einhvern tíma í viðbót í umræðunni áður en ákvörðun verður tekin. Lóðin er í raun eyrnamerkt Brák og stendur björgunarsveitinni að sjálfsögðu til boða, sama hver niðurstaðan með þessa hugmynd verður,“ bætir Björn Bjarki við. -arg Kært til landlæknis SNÆFELLSBÆR: Landlækn- isembætti hefur nú borist kæra frá karlmanni í Ólafsvík þar sem kvartað er undan læknis- þjónustu í bæjarfélaginu. Mað- urinn lýsti reynslu sinni í ítar- legri færslu á facebook í síð- ustu viku. Hann segir lækni hafa hafnað því að veita konu sinni viðeigandi læknisþjónustu eftir slys sem varð í heimahúsi 21. janúar. Konan féll og hlaut höfuðhögg. eftir að hafa kallað til sjúkrabíl segist eiginmaður konunnar hafa fengið þau svör að viðkomandi læknir hafi ekki viljað koma með í útkallið en látið senda konuna með sjúkra- bíl á bráðamóttöku í Reykjavík. Konan lést rúmri viku síðar 63 ára gömul. fram kemur einnig í færslu mannsins að hún hafi um árabil glímt við veikindi. Málið er samkvæmt heimildum Skessuhorns til skoðunar hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands og verður rannsakað hjá emb- ætti landlæknis. eins og einatt í slíkum málum tjá heilbirgðis- starfsmenn sig ekki um mál eins- takra sjúklinga. -mm Rannsaka mannslát KVÍABRYGGJA: Lögregl- an á Vesturlandi fer með rann- sókn á mannsláti í fangelsinu á Kvíabryggju við Grundarfjörð á þriðjudag í liðinni viku. Greint var fyrst frá málinu á vef frétta- blaðsins og þar sagt að fanginn hafi svipt sig lífi. -mm Skálasnagi er drangur sem stend- ur úr sjó undir Svörtuloftum vest- ast á Öndverðarnesi á Snæfellsnesi. Þar stendur einnig Skálasnagaviti uppi á þessum hrikalegu hömrum ofan við kraftmikið brimrótið. fal- legt er um að litast á þessum stað enda vinsæll áningarstaður ferða- manna og ljósmyndara. Til eru ótal ljósmyndir þaðan hver annarri fal- legri. Brimið sverfur að þarna eins og annars staðar við opið haf og nýverið varð útlitsbreyting á Ská- lasnaga. Á toppnum á honum stóð stór steinn sem nú hefur látið und- an brimrótinu og fallið af stalli sín- um. Þetta er talsverð útlitsbreyt- ing og lækkaði drangurinn töluvert við þetta. einu sinni var stærðar steinbrú sem tengdi Skálasnaga við land en hún hrundi árið 1973 og hefur hann staðið í þessari mynd síðan þá. tfk Breytt ásýnd á Skálasnaga Skálasnagi 8. febrúar síðastliðinn. Mynd frá svipuðum stað tekin í mars 2014. Slæmt veður setti víða strik í reikn- inginn á miðvikudag og þar voru Dalirnir engin undantekning. Vegagerðin hafði í nógu að snúast þótt ekki hafi verið hægt að halda öllum vegum opnum. Snemma dags þurfti að loka Bröttubrekku og það vildi ekki betur til en svo að þegar starfsmaður var að setja upp lokunarskilti rétt við fells- enda tókst skiltið á loft og fannst ekki fyrr en síðar um daginn. Sunn- an við Bröttubrekku sátu tveir bílar með erlendum ferðamönnum fast- ir og komu starfsmenn Vegagerðar- innar þeim til hjálpar. Unnið var hörðum höndum að því að halda opnu um Laxárdals- heiði og Heydal. Um kvöldmatar- leyti var orðið þungt á Heydal þar sem átta bílar voru í vandræðum og vann Vegagerðin að því að aðstoða vegfarendur. Um miðjan dag valt mjólkurbíll Mjólkursamsölunnar við Gróustaði í Reykhólasveit en bílstjórinn slapp ómeiddur. Í lok dags var kallað eftir aðstoð dráttarbíls upp á Svínadal til að bjarga lítilli rútu sem þar var föst með átta manns innanborðs. Vega- gerðarmenn fóru með mokstursbíl og snjóblásara til að opna veginn og fólkið var ferjað í Búðardal meðan unnið var að því að losa rútuna. Sjúkrabíll var kallaður út í neyð- arakstur þar sem flytja þurfti sjúk- ling á sjúkrahús. Vegna ófærðar þurfti að fara lengri leiðina yfir Laxárdalsheiði og Holtavörðu- heiði. Á þeim tíma voru Mýrarn- ar ófærar og því ekki hægt að fara yfir Heydal. Vegurinn milli fagradals og Klifmýrar hafði verið lokaður síð- an á laugardag og á miðvikudag- inn lokaðist svo vegurinn sunnan megin við Á á Skarðsströnd. Allur skólaakstur lá niðri við Auðarskóla og ákveðið var að fresta öskudagsskemmtun á vegum skóla og foreldrafélags til fimmtu- dags. Á öskudag hefur Auðarskóli þann háttinn á að sameina nem- endur í hópa og ganga í fyrirtæki en vegna aðstæðna var haft sam- band við fyrirtæki á svæðinu og tilkynnt um tifærsluna með góð- um viðtökum. sm Óveður hafði talsverð áhrif í Dölum Mjólkurbíll valt og margir bílar festust útlit er fyrir að miklar breytingar verði á skipan bæjarstjórnar Stykk- ishólmsbæjar að komandi sveitar- stjórnarkosningum afloknum. All- ir bæjarfulltrúarinir sjö sem kosn- ir voru sem aðalmenn í bæjarstjórn fyrir fjórum árum síðan ætla að draga sig í hlé. H-listi var sigurvegari í kosning- unum fyrir fjórum árum og hlaut fjóra menn kjörna; Hafdísi Bjarna- dóttur, Sigurð Pál Jónsson, Katr- ínu Gísladóttur og Sturlu Böðv- arsson. Sturla staðfestir í sam- tali við Skessuhorn að þau hygg- ist ekki gefa kost á sér til áfram- haldandi setu í bæjarstjórn. Hafdís mun ekki taka sæti á lista vegna búferlaflutninga úr bæjarfélaginu og Sigurður Páll hefur tekið sæti á þingi, til að mynda. L-listi hlaut þrjá menn kjörna í sveitarstjórnarkosningunum 2014; Lárus Ástmar Hannesson, Ragn- ar M. Ragnarsson og Helgu Guð- mundsdóttur. Lárus Ástmar stað- festir í samtali við Skessuhorn að þau ætli ekki að gefa kost á sér í kosningunum í vor. kgk Allir bæjarfulltrúar draga sig í hlé Aðalmenn og varamenn í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar að loknum fyrsta fundi núverandi bæjarstjórnar fyrir tæpum fjórum árum síðan. Ljósm. úr safni/ sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.