Skessuhorn - 21.02.2018, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 201814
Síðastliðinn sunnudag buðu The
Ducklings Movement, eða Andar-
ungarnir, gestum í heimsókn í gamla
Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. And-
arungarnir eru alþjóðleg samtök
tölvuleikjaspilara sem spila fjölspil-
unarleiki á netinu. Samtökin keyptu
gamla skólahúsið fyrir nokkrum árum
og hyggjast byggja þar bæ fyrir tölvu-
leikjaspilara. Skessuhorn fjallaði ný-
verið ítarlega um það verkefni. Á
sunnudaginn gafst öllum áhugasöm-
um kostur á að koma og fræðast um
starfsemi Andarunganna og þeirra
hugmyndir til að efla samfélagið á
svæðinu. Boðið var upp á leiðsöng um
skólann og fræðslu auk þess að þiggja
rússneskan mat og nammi. arg
Bjarni Jónsson, varaþingmaður VG
í Norðvesturkjördæmi, lagði í byrj-
un febrúar fram þingsályktunar-
tillögu um uppbyggingu Skógar-
strandarvegar. Samkvæmt henni
yrði samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra falið að gera fjölþætta hag-
kvæmnisathugun á uppbyggingu
vegarins sem heilsársvegar. Athug-
unin á að taka til samfélagslegra og
byggðarlegra áhrifa þess að efla með
því samgöngur milli byggðarlaga á
norðanverðu Snæfellsnesi, um Dali,
í Reykhólasveit, sunnanverða Vest-
firði og norður á Strandir. Sérstak-
lega skuli líta til styrkingar svæðisins
sem eins þjónustusvæðis, uppbygg-
ingar ferðaþjónustu og vegaörygg-
is. Kallað er eftir því í tillögunni að
ráðherra leggi niðurstöður könnun-
arinnar fyrir Alþingi ásamt kostnað-
aráætlun vegna uppbyggingar veg-
arins eigi síðar en 15. september
næstkomandi.
Málið komist á dagskrá
Í greinargerð með tillögunni er
fjallað um ástand vegarins og vísað
til rannsóknar sem gerð var 2007 til
2010. Leiddi hún í ljós að Skógar-
strandarvegur reyndist einn þriggja
hættulegustu vega landsins. frétt-
ir af óhöppum þar séu tíðar, ástand
vegarins bágborið og ljóst að hann
standi ekki undir umferðinni né því
hlutverki sínu að mynda greið tengsl
milli byggðarlaga. Þá hafi viðhald
og endurbætur á veginum verið litl-
ar sem engar undanfarin ár og ára-
tugi.
„Mér finnst fáir hafa talað fyrir
Skógarstrandarvegi af einhverju afli
og tekið undir með heimamönn-
um um mikilvægi hans. Hann er oft
nefndur með öðru í almennri um-
ræðu en er aldrei tekinn fyrir einn
og sér sem forgangsverkefni eins
og ætti að gera að mínum dómi. Ég
vonast til að tillagan og umræða sem
hún kallar fram, hafi þau jákvæðu
áhrif á gerð samgönguáætlunar, að
Skógarstrandarvegur verði settur á
dagskrá af einhverri alvöru og lagð-
ur heilsársvegur um Skógarströnd,“
segir hann í samtali við Skessuhorn.
Hann telur víst að þær 125 millj-
ónir sem gert er ráð fyrir í samgön-
guáætlun vegna vegarins á þessu ári
dugi aðeins fyrir lágmarksviðhaldi.
Hefði gífurleg
margfeldisáhrif
Bjarni segir gerð heilsársvegar um
Skógarströnd í sjálfu sér ekki flók-
ið verkefnið. „Vegurinn liggur á
láglendi við sjóinn og yrði fyrir-
hafnarlítið að halda honum opn-
um þegar hann er kominn. Það
myndi gjörbylta búsetuskilyrð-
um á svæðinu og styrkja byggðar-
lögin sem eina heild,“ segir hann.
„eins og staðan er í dag þarf fólk
í Búðardal að krækja alla leið suð-
ur í Borgarnes ef það á erindi í
Stykkishólm að vetri. Það er í
rauninni alveg fáránlegt,“ segir
Bjarni ómyrkur í mál og er þeirr-
ar skoðunar að bættar samgöng-
ur um Skógarströnd séu byggða-
mál ekki síður en samgöngumál.
Ég held að margir, þar með tal-
in samgönguyfirvöld, átti sig ekki
á því hvaða þýðingu þessi sam-
göngubót gæti haft til að styrkja
þessi samfélög. Þegar verið er
að tala um að styrkja byggðarlög
verður að huga að því að tengja
þau betur saman. Heilsársvegur
um Skógarströnd hefði gífurleg
margfeldisáhrif fyrir byggðirnar
á svæðinu. Það yrði algjör bylt-
ing fyrir byggðarlögin, bæði við-
skiptalega, þjónustulega og sam-
félagslega,“ segir Bjarni Jónsson
að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Heilsársvegur um Skógarströnd
yrði bylting fyrir byggðarlögin
Svipmynd frá Skógarstrandarvegi. Bjarni Jónsson, varaþingmaður NV-
kjördæmis.
Buðu gestum í heimsókn í gamla Heiðarskóla
Í einu rýminu í gamla skólahúsinu hefur verið sett upp góð tölvuleikjaaðstaða.
Andarungarnir tóku vel á móti gestum á sunnudaginn, klæddir hvítum sloppum.
Boðið var upp á rússneskar pönnukökur, sem eru alls ekki ólíkar þeim íslensku,
með sultu, bankabyggi eða steiktum sveppum og lauk. Auk þess sem gott úrval
var af rússnesku sælgæti.
Teikningar af bæ sem Andarungarnir hafa í huga að byggja við gamla Heiðar-
skóla í Hvalfjarðarsveit. Þar gæti mögulega risið 500 íbúa byggð.
Þar sem Andarungarnir eru alþjóðleg
samtök og meðlimir staddir víðs vegar
um heiminn var sett upp fjarfundar-
herbergi í einu rými skólans.