Skessuhorn - 21.02.2018, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 2018 17
Að venju var líf og fjör á Öskudag-
inn síðastliðinn miðvikudag. Með-
fylgjandi myndir voru teknar þá, en
víðast hvar fóru börn í fyrirtækja-
heimsóknir, sungu og fengu eitt-
hvað gott að launum. Veður þenn-
an dag setti þó strik í reikninginn á
nokkrum stöðum. mm
Líf og fjör á öskudaginn
þrátt fyrir slæmt veður
Í Stykkishólmi féll árleg skrúðganga um bæinn niður vegna veðurs. Haldið var inn
í íþróttahús þar sem krakkar tóku þátt í þrautum og leikjum af ýmsu tagi.
Ljósm. sá.
Þessi hressilegi hópur kom við á ritstjórn Skessuhorns. Veðrið var með verra móti
að þessu sinni, en hetjur láta slíkt ekki aftra sér. Ljósm. mm.
Kíkt við hjá Þórði og félögum í Olís í Borgarnesi. Ljósm. þg.
Vegna veðurs var lítið um trítlandi grímubúningaklædd börn á götum Grundar-
fjarðar að þessu sinni. Þó fóru krakkarnir í fyrirtækin og sungu fyrir nammi. Þeim
var þá yfirleitt skutlað af foreldrum. Svo var farið í íþróttahúsið þar sem það var
skemmtun, þrautabraut og kötturinn sleginn úr tunnunni. Ljósm. tfk.
Það var líf og fjör hjá nemendum 5. til 7. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar á
öskudaginn. Leiðindaveður var þennan dag en nemendur létu það ekki á sig fá og
mættu hinar ýmsu furðuverur í skólann. Nemendur ásamt kennurum skelltu sér í
íþróttahúsið þar sem farið var í ýmsa leiki og gert sér dagamun í tilefni dagsins.
Ljósm. þa.
Það var mikið fjör í skíðabrekk-
unni í Grundarfirði um liðna helgi.
Veðrið lék við gesti og mjög gott
færi var. Bæði heimamenn sem
gestir nýttu sér þessar góðu að-
stæður. Skíðadeild Snæfellsness
bauð einnig upp á skíðakennslu á
sunnudeginum en Haukur Árni
Hjartarson sá um að kenna yngstu
kynslóðinni réttu hand- og fótatök-
in í lyftunni og í brekkunum. Nú
er bara að vona að veðrið verði til
friðs svo að opnunardagar geti orð-
ið fleiri þennan veturinn.
tfk
Frábær skíðahelgi að baki
Fréttaritari Skessuhorns skellti sér í fjallið og smellti af þessari „sjálfu“ á toppnum.
Haukur Árni skíðakennari er hér að kenna einum nemand-
anum réttu tökin í lyftunni.
Telma Dís Ásgeirsdóttir skemmti sér konunglega í brekkunni.
Ung fræðakona
úr héraði kveð-
ur sér hljóðs í
Snorrastofu í
Reykholti næst-
komandi þriðju-
dag. Anna
Heiða Baldurs-
dóttir doktors-
nemi í sagnfræði
flytur fyrirlest-
urinn: „Dán-
arbúsuppskriftir
og munasöfn. Ís-
lenskt samfélag á 19. öld í gegnum
efnismenningu.“
Snorrastofa býður til fyrsta fyrir-
lestrar ársins. Í honum fjallar Anna
Heiða um íslenskt samfélag á 19. öld
og hvaða mynd megi fá af því í gegn-
um dánarbúsuppskriftir og muna-
söfn sem varðveist hafa. Sérstak-
lega verður greint frá niðurstöðum
rannsóknar á efnismenningu nokk-
urra borgfirskra dánarbúsuppskrifta
og sagt frá gripum sem er að finna
í munasafni Þjóðminjasafns Íslands
frá sama tíma.
Anna Heiða býr í Múlakoti í Lund-
arreykjadal og það er Snorrastofu
sérstök ánægja að bjóða velkomna
til leiks, unga og efnilega fræðakonu
úr héraði. fyrirlesturinn hefst í Bók-
hlöðu Snorrastofu kl. 20:30.
Um efni fyrirlestursins segir Anna
Heiða: „Oft hefur því verið fleygt að
þeir hlutir sem við eigum segi margt
um okkur sjálf. Þeir endurspegli á
einhvern hátt einstaklinginn og um-
hverfið sem viðkomandi lifir í. Það
er því forvitnilegt að velta því fyrir
sér hvað fólk átti í fyrri tíð til að fá
betri mynd af samfélagi þess tíma.“
Í von um betra ferðaveður en verið
hefur að undanförnu, hvetur Snorra-
stofa fólk til að koma á fyrirlesturinn
og kynna sér þetta áhugaverða verk-
efni. Að venju verður boðið til kaffi-
veitinga og umræðna, aðgangseyrir
er kr. 500.
-fréttatilk.
Rannsakar samfélagsgerð út
frá dánarbúsuppskriftum
Anna Heiða
Baldursdóttir.
Ljósm. gó.
Þegar allar stórvirku
vinnuvélarnar eru upp-
teknar við að ryðja vegi
og hreinsa götur er gott
að hafa hugvitið í lagi og
nýta minni vélar til slíkra
verka. Meðfylgjandi mynd
var tekin á bílastæðinu við
Hótel Hamar í Borgar-
nesi í síðustu viku. Þar
var starfsmaður hótelsins
í óða önn að ryðja snjó af
planinu á sérútbúnu fjór-
hjóli. Gekk verkið prýði-
lega.
þg
Margur er snjóruðningsklár -
þótt hann sé smár