Skessuhorn


Skessuhorn - 18.04.2018, Side 2

Skessuhorn - 18.04.2018, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 20182 að fella þau mannvirki verksmiðj- unnar sem útboðið nær yfir í þessum áfanga. Í framhaldinu verður unnið við að mylja steypu, hreinsa járn úr steypubrotum og koma þeim fyrir í sandgryfju. Brotmálmar verða unn- ir á athafnasvæði verktaka og í fram- haldi þess skipað út frá Akraneshöfn. Innan tíðar verður framkvæmd könnun á vef Akraneskaupstaðar þar sem íbúar í bæjarfélaginu geta gefið álit sitt á því hvort fella eigi stromp sementsverksmiðjunnar. Það verð- ur kynnt sérstaklega. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er veru- lega minnkandi áhugi meðal íbúa að strompurinn verði látinn standa. Það mun þó koma í ljós þegar hugur fólks til þess verður kannaður sérstaklega. mm Sumardagurinn fyrsti er á morg- un og er það okkar von að sumar- ið verið öllum Vestlendingum gott. Það er þó vert að minna á að nú er líka kominn tími til að taka nagla- dekkin undan bílunum og skipta þeim út fyrir önnur sem duga, en menga minna. Á morgun, sumardaginn fyrsta, er spáð austlægri átt og 3-8 m/s og skýjað um landið vestanvert. Súld og rigning á Vesturlandi og Suð- vesturlandi. Hægari suðlæg átt og bjart um landið austanvert en gætu verið þoka við ströndina. Hiti á bilinu 5-12 stig og hlýjast á Norð- urlandi. Gert er ráð fyrir hægri norð- lægri eða breytilegri átt á föstudag. Skýjað og lítilsháttar skúrir verða á Norðurlandi en bjart með köflum fyrir sunnan jökla og stöku skúrir með suðurströndinni. Hiti 3-10 stig og hlýjast á Suðurlandi. Á laugardag er spáð hægt vaxandi austanátt og rofar til um tíma á Norðurlandi en þykknar upp í öðrum landshlutum og fer að rigna síðdegis. Hiti á bilinu 3-9 stig. Á sunnudag er gert ráð fyrir suðaustan- og austanátt, víða 5-13 m/s og rigning með köflum og hiti 5-11 stig. Á mánudag snýst smám saman í norðlæga átt og kólnar á Norðurlandi. Hæg suðaustlæg átt og súld eða rigning með köflum á Suðurlandi og bætir í úrkomu um kvöldið. Hiti 1-9 stig og svalast á Norðurlandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Hvaða einkunn fær ríkis- stjórnin hjá þér eftir fyrstu 6 mán- uðina?“ Alls tóku 724 þátt í könnun- inni og er vegið meðaltal svara ein- kunnin 3,61 af 10 mögulegum. Í næstu viku er spurt: Hefur þátttaka þín í félagsmálum breyst samhliða aukinni samfélagsmiðlanotkun? Andri Snær Axelsson tryggði sér sæti í Ólympíuliði Íslands í stærð- fræði og verður hann einn af sex liðsmönnum sem keppa í Rúmen- íu í júlí. Andri Snær er Vestlending- ur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Vísbendingar um að þenslu- skeiði sé að ljúka LANDIÐ: Ýmsir hagvís- ar benda nú til þess að þeim mikla uppgangi sem ver- ið hefur í íslensku efnahags- lífi sé lokið. Hlutfall starfandi á vinnumarkaði hefur lækkað allt frá apríl 2017 og atvinnu- leysi hefur aukist örlítið á sama tímabili. Þá hefur hægt á hækkunum húsnæðisverðs, sem þó eru enn miklar. Í sein- ustu uppsveiflu, árin 2003 – 2007, hækkaði fasteigna- verð langt umfram útborguð laun og var bólan á fasteigna- markaði vel sýnileg strax árið 2005. Sú bóla var þó byggð á mikilli skuldaaukningu heim- ilanna. Núverandi hækkun fasteignaverðs er vegna lít- ils framboðs fasteigna en ekki eins mikið vegna aukningar á skuldum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í efnahags- yfirliti Verslunarmannafélags Reykjavíkur sem kom út í lið- inni viku. „Íslenska hagkerf- ið er þó ekki eins brothætt nú og það var skömmu fyr- ir hrunið 2008. Ástæðan er sú að skuldir eru mun lægri nú því árin fyrir hrun ein- kenndust af mikilli aukningu í skuldsetningu, bæði fyrir- tækja og heimila. Næsta nið- ursveifla verður því eflaust innflutt en ekki heimatilbúin, eins og fyrir tæpum áratug. Það verður því að teljast ólík- legt að árið 2019 verði endur- tekning á árinu 2009,“ segir í efnahagsyfirliti VR. -mm Lentu í sjálfheldu SNÆFELLSNES: Þyrla Landhelgisgæslunnar var að- fararnótt mánudags kölluð á utanvert Snæfellsnes. Tveir ferðamenn höfðu komist í sjálfheldu í klettabelti í Botns- fjalli rétt austan við Arnar- stapa. Lögregla og björgun- arsveitarfólk mátu aðstæður þannig að rétt væri að kalla út þyrlu klukkan eitt um nóttina enda skollið á myrkur og að- stæður til björgunar af landi því erfiðar. Þyrlan var mætt um klukkan hálf þrjú á svæð- ið og gekk björgun mannanna niður af fjallinu fljótt og vel. Ekkert amaði að mönnunum, en þeim var þó orðið dálítið kalt. -mm Eyja- og Miklaholtshreppur óskar sveitungum sínumog öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars. Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar Dalamönnum og Vestlendingum öllum gleðilegs sumars Helga Jensína Svavarsdóttir hef- ur verið ráðin skólastjóri Grunn- skóla Borgarfjarðar, en Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir sagði í vet- ur starfi sínu lausu og hættir í vor. Helga Jensína er grunnskólakenn- ari að mennt og búsett á Vatns- hömrum í Andakíl. Á starfsferli sínum hefur hún kennt við Anda- kílsskóla á Hvanneyri, við Ing- unnarskóla í Grafarholti, Grunn- skólann í Borgarnesi og frá árinu 2012 við Grunnskóla Borgarfjarð- ar þar sem hún hefur verið deild- arstjóri. Helga Jensína er einnig sundkennari og hefur kennt ung- barnasund og verið með sundnám- skeið og sundþjálfun í Borgarnesi. Hún hefur í vetur verið í námsleyfi og er nú að ljúka meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórnun menntastofn- ana. Grunnskóli Borgarfjarðar starf- ar í uppsveitum Borgarfjarðar og er þriggja deilda skóli; á Hvann- eyri, Varmalandi og Kleppjárns- reykjum. Helga Jensína kveðst í samtali við Skessuhorn vera full tilhlökkunar að taka við þessu starfi og ekki síst að starfa með öllu því góða fólki sem sem starfar hjá Grunnskóla Borgarfjarðar. mm Helga Jensína ráðin skólastjóri GBF Helga Jensína Svavarsdóttir verðandi skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar. Niðurrif mannvirkja Sementsverk- smiðjunnar á Akranesi gengur vel og eru framkvæmdir á undan áætl- un miðað við verksamning við Work North ehf. Í þessari viku er unnið við niðurrif stóru efnisgeymslunnar samhliða Faxabraut og af þeim sök- um er götunni lokað fyrir allri um- ferð til 21. apríl nk. Líkur eru til að búið verði fyrir næstu mánaðamót Niðurrif efnisgeymslu Sementsverksmiðjunnar hafið „Það er ákvörðun okkar hjá með- ferðarsviði og framkvæmdastjórn SÁÁ að hætta að taka inn á sjúkra- húsið Vog ólögráða einstaklinga og miða ungmennameðferðina við 18 ára,“ segir í tilkynningu frá SÁÁ. „Augljós krafa um að ólög- ráða einstaklingar geti ekki verið í sama rými og fullorðnir í meðferð er meira en sjúkrahúsið Vogur get- ur orðið við að svo stöddu. Því er ekki stætt á að halda áfram meðferð þeirra þar.“ Þá segir í tilkynningu að það að eitt barn hafi hugsanlega orðið fyrir skaða innan veggja spít- alans sé einu barni of mikið. „SÁÁ setur öryggi sjúklinga sinna í fyrsta sæti og vill með þessum aðgerð- um axla ábyrgð. Sjúkrahúsið Vog- ur mun í samráði við ráðuneytið sinna áfram þjónustu við þennan viðkvæma hóp þar til nýtt úrræði er í augsýn.“ Þá segir að óskað hafi verið eftir leiðbeiningum heil- brigðisráðherra um hvernig þetta skref verður tekið þar sem brýnt er að ólögráða með vanda af fíkn fái áfram viðeigandi heilbrigðisþjón- ustu. Samráðsfundur er fyrirhug- aður til að ákveða framtíðarfyrir- komulag og næstu skref. mm Vogur hættir að taka við ungmennum undir 18 ára

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.