Skessuhorn - 18.04.2018, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 201830
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Ert þú búin að
skipuleggja sumarfríið þitt?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Arndís Baldursdóttir
Já, ég ætla bara að vera heima og
taka því rólega.
Atli Vikar Ingimundarson
Nei.
Fríða Rún Gylfadóttir
Nei, ég er ekki búin að því.
Elvar Sigurjónsson
Ég er námsmaður svo ég ætla að
vinna og taka eins lítið sumarfrí
og ég get.
Gunnar Mýrdal
Já, nokkurn veginn. Við hjónin
ætlum að ferðast innanlands með
hjólhýsið og hafa það huggulegt.
Svo ætlum við að vera í húsinu
okkar á Spáni í september og
október.
Skallagrímskonur léku síðasta leik
sinn á þessu tímabili í Domino‘s
deild kvenna á þriðjudaginn í síð-
ustu viku þegar þær mættu Hauk-
um. Í leiknum meiddist Gunn-
hildur Lind Hansdóttir, leikkona
Skallagríms, illa á hné. Blaðamað-
ur sló á þráðinn til Gunnhildar í
gær og spurði hana út í stöðuna á
hnénu. „Heilsan er fín og þetta er
allt að mjakast í rétta átt held ég. Ég
get labbað en er ekki alveg 100%
og þarf að hafa bundið um hnéð,“
segir hún. Meiðslin urðu þegar
Gunnhildur var að verjast og hopp-
ar upp og sköflungurinn og lær-
leggurinn virðast ekki vilja fara í
sömu átt og hnéð sat eftir. „Ég var
að hoppa upp og renna mér til hlið-
ar, svona eins og maður gerir oft,
en í þetta skipti varð hnéð eftir. Til-
finningin sem ég fann var eins og
ég væri með þykka teygju í hnénu
sem slitnar,“ lýsir Gunnhildur „Ég
veit þó ekki hvort eitthvað sé slitið
eða hvað nákvæmlega er að. Ég fer
í myndatöku 28. apríl og þá veit ég
meira,“ bætir hún við.
Nú tekur við hvíld næstu vik-
ur og segir Gunnhildur það í raun
vera það erfiðasta við þetta allt.
„Mér til mikillar mæði get ég ekki
hreyft mig eins og ég er vön. Ég get
þó gert armbeygjur en vantar að ná
hjartslættinum upp,“ segir hún og
hlær. „Þegar ég veit meira hvað er
nákvæmlega að verður auðveldara
að finna hreyfingu sem ég get gert.
Ég þori svo lítið að gera núna því
ég vil ekki skemma neitt. Ég reyni
bara að vera þolinmóð,“ segir hún
hress þrátt fyrir aðstæður. Gunn-
hildur verður vonandi fljót að ná
sér en hún er einmitt væntanleg til
starfa hjá Skessuhorni í lok næsta
mánaðar. arg/ Ljósm. glh
Leið eins og eitthvað
hefði slitnað í hnénu
Lokamót Vesturlandsdeildarinnar í
hestaíþróttum fór fram fimmtudags-
kvöldið 12. apríl í Faxaborg. Keppt
var í tölti og flugskeiði. Sigurodd-
ur pétursson sigraði í einstaklings-
keppninni annað árið í röð og Randi
Holaker varð önnur. Leiknir/Skán-
ey vann liðakeppnina einnig í annað
skipti. Fasteignamiðstöðin og Chil-
déric/Lundar/Nettó höfnuðu í falls-
ætunum og tapa því öruggum sætum
í deildinni að ári.
Úrslit í tölti:
1. Siguroddur pétursson og Steggur
frá Hrísdal - 7,39
2. Hrefna María Ómarsdóttir og Íkon
frá Hákoti - 6,94
3. Berglind Ragnarsdóttir og Ómur
frá Brimilsvöllum - 6,61
4-5. Randi Holaker og Þytur frá
Skáney - 6,50
4-5. Haukur Bjarnason og Ísar frá
Skáney - 6,50
Úrslit í flugskeiði:
1. Húni Hilmarsson og Lilja frá
Dalbæ - 5,0
2. Þorgeir Ólafsson og Ögrun frá
Leirulæk - 5,04
3. Bjarki Þór Gunnarsson og Glóra
frá Skógskoti - 5,06
4. Guðjón Örn Sigurðsson og Lukka
frá Úthlíð - 5,18
5. Hrefna María Ómarsdóttir og
Vörður frá Hafnarfirði - 5,23
Einstaklingskeppni, niðurstöður
að loknu tímabilinu:
1. Siguroddur pétursson 57 stig
2. Randi Holaker 40,5 stig
3. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir 36 stig
4. Haukur Bjarnason 28,5 stig
5. Berglind Ragnarsdóttir 28 stig
6. Hrefna María Ómarsdóttir 25,5
stig
7. páll Bragi Hólmarsson 20 stig
8. Húni Hilmarsson 12 stig
9. Þorgeir Ólafsson 11 stig
10. Líney María Hjálmarsdóttir 10
stig
11. Guðmar Þór pétursson 10 stig
12. Heiða Dís Fjeldsted 10 stig
13. Anna Lena Renisch 9 stig
14. Guðjón Örn Sigurðsson 8 stig
15. Bjarki Þór Gunnarsson 8 stig
16. Máni Hilmarsson 6 stig
17. Halldór Sigurkarlsson 5,5 stig
18. Linda Rún pétursdóttir 5 stig
19. Elvar Logi Friðriksson 4 stig
20. Konráð Valur Sveinsson 4 stig
21. Valdís Björk Guðmundsdóttir 4
stig
22. Maiju Varis 2 stig
23. Súsanna Sand Ólafsdóttir 2 stig
24. Konráð Axel Gylfason 1 stig
Liðakeppni, staðan að loknu tíma-
bilinu:
1. Leiknir/Skáney 282 stig
2. Stelpurnar frá Slippfélaginu &Su-
per Jeep 260 stig
3. Berg/Hrísdalur/Austurkot 216 stig
4. Hestaland 192 stig
5. Hrímnir 179,5 stig
6. Childéric/Lundar/Nettó 164 stig
7. Fasteignamiðstöðin 92,5 stig
mm/bmþ/ Ljósm. bmþ
Úrslit liggja nú fyrir í Vesturlandsdeildinni
Þrjú efstu í einstaklingskeppninni.
Lið Skáney/Leiknir. F.v. Randi, Berglind og Haukur.
Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal urðu langefstir í einstaklings-
keppninni. Ljósm. iss.