Skessuhorn


Skessuhorn - 18.04.2018, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 18.04.2018, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 20186 Um grísahald í garðinum LANDIÐ: Síðustu ár hefur færst í vöxt að bændur og aðrir einstak- lingar kaupi einstaka svín til að ala sjálfir, sérstak- lega yfir sumartímann. Matvælastofnun hefur nú gefið út leiðbeiningar fyrir þá sem hafa hugsað sér að kaupa grísi þar sem dregin eru fram helstu at- riði sem hafa þarf í huga. Í leiðbeiningunum er far- ið yfir þær kröfur sem gerðar eru varðandi að- búnað og velferð dýra og mikilvægi þess að afla sér grunnþekkingar á þörf- um og umönnun svína. Ef eigendur hafa í hyggju að selja afurðir svína sinna þurfa þeir jafnframt að kynna sér þær reglur sem gilda um matvælafram- leiðslu. Við svínahald þarf einnig að huga að smit- vörnum. Svín geta bor- ið með sér smit, einkum salmonellusmit, og þurfa kaupendur grísa að kynna sér stöðu þess bús sem keypt er frá. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir að bannað er að gefa svín- um dýraafurðir (mjólk og egg undanskilin) og eld- hússúrgang sem inni- heldur dýraafurðir eða hefur komist í snertingu við dýraafurðir. Fóðrun svína með dýraafurðum eða eldhúsúrgangi getur haft alvarlegar afleiðing- ar í för með sér enda tal- in vera ein helsta smitleið alvarlegra smitsjúkdóma í svín. -mm Sjötti hver á vinnumarkaði er útlendingur LANDIÐ: Árið 2017 voru að jafnaði 197.094 starfandi einstakling- ar á vinnumarkaði hér á landi. Af þeim voru kon- ur 92.855 eða 47,1% og karlar 104.239 eða 52,9%. Starfandi inn- flytjendur voru að jafn- aði 32.543 árið 2017 eða 16,5% af öllum starfandi, eða sjötti hver á vinnu- markaði. Störf útlendinga eru m.a. á sviði ferðaþjón- ustu, byggingastarfsemi, iðnaðar og fiskvinnslu. -mm Ný forysta kennara LANDIÐ: Ragnar Þór pétursson hefur tekið við formennsku í Kenn- arasambandi Íslands og Anna María Gunnars- dóttir framhaldsskóla- kennari embætti vara- formanns. Þingi KÍ lauk fyrir helgi. Ragnar Þór er grunnskólakennari og hefur síðustu árin starfað í Norðlingaskóla. Anna María hefur kennt ís- lensku í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti. Hún hefur einnig starfað inn- an vébanda Kennarasam- bandsins, var m.a. for- maður skólamálanefnd- ar KÍ síðustu tíu árin. Þá hefur hún starfað sem sérfræðingur Félags fram- haldsskólakennara með- fram kennslu um árabil. Fráfarandi formaður KÍ er Þórður Árni Hjalte- sted og fráfarandi vara- formaður er Aðalheiður Steingrímsdóttir. Þeim voru þökkuð góð störf í þágu Kennarasambands- ins á þinginu sem lauk á föstudaginn. Kennara- sambandið óskar þeim velfarnaðar á nýjum vett- vangi. -mm Vesturlandsdeild Félags kvenna í at- vinnulífinu verður stofnuð í kvöld, miðvikudaginn 18. apríl, á stofnfundi í Narfeyrarstofu í Stykkishólmi. Vest- urlandsdeildin verður þar með fjórða landshlutadeild FKA. Fyrir eru starf- ræktar deildir á Norðurlandi, Suður- landi og Vestfjörðum og félagið tel- ur ríflega 1.100 félagskonur úr öllum greinum atvinnulífsins. Á stofnfundinum í Stykkishólmi mun Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, kynna starfsemi félagsins og helstu verkefni þess. Að beiðni for- manns mun Steinunn Helgadóttir leiða starf Vesturlandsdeildarinnar fyrstu misserin. „Það er stefna félags- ins að vera með deildir út um allt land og nú er komið að okkur. Um þetta hefur verið hugsað í langan tíma og núna er loksins komið að því að Vest- urlandsdeild félagsins verði stofnuð,“ segir Steinunn í samtali við Skessu- horn. Steinunn er lærður einkaþjálfari frá Keili. Helstu áhugamál hennar eru útivist og íþróttir og hefur hún marg- oft tekið þátt í fitnessmótum. Hún er eigandi veitingastaðarins Narfeyr- arstofu í Stykkishólmi ásamt eigin- manni sínum, Sæþóri Þorbergssyni. Eru þau búsett í Hólminum og eiga tvö börn; Þorberg Helga og Anítu Rún. Þorbergur er matreiðslunemi á Narfeyrarstofu og Aníta stundar nám við Háskóla Íslands. „Ég og Sæþór tókum við rekstri Narfeyrarstofu árið 2001 og höfum rekið staðinn allar götur síðan, fyrir utan þrjú ár sem við tókum okkur í frí vegna veikinda Sæ- þórs. En alla okkar tíð höfum við rek- ið staðinn saman og skipt daglegum rekstri á milli okkar; ég sé um salinn og Sæþór um eldhúsið,“ segir hún. Kjarninn að efla tengsl Aðspurð kveðst hún ekki hafa rek- ist á veggi í sínum rekstri af því að hún er kona. „En það er ekki þar með sagt að maður vilji ekki hjálpa öðrum konum, því ég veit að marg- ar konur í félaginu hafa aðra sögu að segja en ég. Kjarninn í starfi félagsins er enda að efla tengsl milli kvenna í atvinnurekstri og þannig skapa kon- um bakland og stuðning í hvorri ann- arri,“ segir Steinunn. „Réttindabar- átta kvenna hefur alltaf verið hluti af mínu lífi. Ég hef svo sem ekki tekið virkan þátt í þeirri baráttu en alltaf fylgst náið með gangi mála. Nú hef ég tíma til að stíga aðeins til hliðar á öðrum vígstöðum og þá getur mað- ur boðið fram krafta sína á þessum vettvangi,“ segir hún. „Þetta skipt- ir mig miklu máli og við verðum líka að hugsa um dætur okkar, næstu kyn- slóðir,“ bætir hún við. Af þeim sök- um fór hún að kynna sér starfsemi FKA og segist hafa heillast strax af fé- laginu. „Þetta félag heillaði mig alger- lega upp úr skónum. Innan vébanda þess starfa frábærar konur sem hafa mikinn áhuga á og styðja við bakið á hvorri annarri. Ég þurfti því ekki að hugsa mig tvisvar um þegar formað- urinn bað mig að annast stjórn félags- ins,“ segir Steinunn. „Ég hef trú á því að stofnun deildarinnar muni styrkja konur í atvinnurekstri á Vesturlandi og efla tengslanetið til muna,“ bætir hún við. Starf vetrarins undirbúið Auk Steinunnar verður fyrsta stjórn Vesturlandsdeildar FKA skipuð þeim Gyðu Steinsdóttur, viðskiptafræðingi og verkefnastjóra hjá KpMG í Stykk- ishólmi, Önnu Melsteð, eiganda margmiðlunarfyrirtækisins Anok í Stykkishólmi, Björgu Ágústsdóttur, lögfræðingi og verkefnisstjóra Alta í Grundarfirði, Júníönu Björgu Ótt- arsdóttur, verslunarstjóra Blómstur- valla á Hellissandi og Söndru Mar- gréti Sigurjónsdóttur á Akranesi, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landhelgisgæslu Íslands. „Allar voru þær mjög jákvæðar fyrir starfinu þeg- ar falast eftir kröftum þeirra í stjórn. Við byrjum á að kjósa stjórnina til eins árs, sjáum hvernig það gefst og endurmetum þá stöðuna eftir árið,“ segir Steinunn. Aðspurð segir hún að fyrsti fund- urinn eftir stofnun félagsins verði haldinn í maí og í framhaldi þess fari ný stjórn að undirbúa starf vetrar- ins. „Það mun einkum felast í heim- sóknum til annarra kvenna í atvinnu- rekstri í landshlutanum, fá fyrirles- ara á fundi og fara á námskeið. Við munum reyna að fara í eins margar heimsóknir og við mögulega getum og efla tengslin um allt Vesturland,“ segir hún. kgk Vesturlandsdeild Félags kvenna í atvinnulífinu stofnuð í kvöld Stofnfundur á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi Steinunn Helgadóttir verður fyrsti formaður Vesturlandsdeildar FKA. Hún er eigandi Narfeyrarstofu í Stykkishólmi ásamt eiginmanni sínum, Sæþóri Þorbergssyni. Hér eru þau á veitingastaðnum ásamt börnum sínum Þorbergi Helga og Anítu Rún. Ljósm. aðsend.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.