Skessuhorn - 18.04.2018, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 201818
Héraðssamband Snæfells- og
Hnappadalssýslu hélt 78. héraðs-
þing SIH í Samkomuhúsi Grund-
arfjarðar mánudaginn 16. apríl
síðastliðinn. Þar voru hefðbund-
in aðalfundarstörf þar sem skýrsla
stjórnar og ársreikningar félags-
ins voru lagðir fram til skoðunar.
Líney Rut Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, flutti ávarp og
heiðraði þau Björg Ágústdóttur og
Eyþór Benediktsson fyrir vel unnin
störf í gegnum tíðina. Ragnheiður
Högnadóttir og Auður Inga Þor-
steinsdóttir fluttu svo ávarp fyrir
hönd UMFÍ. tfk
Héraðsþing HSH
Laugardaginn 10. mars hélt Lions-
klúbbur Búðardals Kótilettukvöld
þar sem einnig var happdrætti og
var ákveðið fyrirfram að ágóðinn
skyldi skiptast á milli Auðarskóla,
Björgunarsveitarinnar Óskar og
Slysavarnadeildar Dalasýslu. Söfn-
uðust tæpar 750.000 kr. og styrkt-
um við þessa þrjá aðlila því um
250.000 kr. hvern.
Við viljum þakka öllum þeim sem
lögðu hönd á plóg bæði með vinnu-
framlagi, gjöfum og happdrætt-
isvinningum. Þetta eru: MS, KM
þjónustan, Kjörbúðin, Kastalinn,
Dalahyttur, Dalabyggð, Sigurður
á Hólum, Níels á Seljalandi, Helga
Möller, Stefán Jónsson veislustjóri,
Hljómsveitin B4, félagar úr Slysa-
varnadeild Dalasýslu, Björgunar-
sveitinni Ósk og Lionsklúbbi Búð-
ardals.
Þökkum öllum sem komu og
skemmtu sér með okkur fyrir
stuðninginn og væntum þess að sjá
fleiri á næsta ári.
F.h. Lionsklúbbs Búðardals,
Sigfríð Andradóttir formaður
Lionsklúbbur Búðardals
styrkti þrjá aðila
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu styrkjanna.
Á fundi sveitarstjórnar Borgar-
byggðar 12. apríl síðastliðinn var
opnaður nýr upplýsingavefur um
lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu;
Ljósleiðari Borgarbyggðar. Hann er
tengdur inn á vef Borgarbyggðar
undir heitinu „Ljósborg“. „Á vefn-
um er að finna margháttaðar upp-
lýsingar sem tengjast verkefninu og
fréttir verða settar inn eftir því sem
því vindur fram,“ segir í tilkynningu.
„Ýmsar upplýsingar er þar að finna
um eðli þessa mikla verkefnis og síð-
an hefur verið byggt upp yfirlit um
algildar spurningar og svör. Að lok-
um er gefinn möguleiki á að senda
inn fyrirspurnir. Það eru bundnar
vonir við að þessi uppsetning auð-
veldi þeim sem málið varðar mögu-
leika á að fylgjast með og aðgengi að
upplýsingum verði bætt.“
mm
Vefurinn Ljósborg
nú aðgengilegur
Krakkarnir í Grunnskóla Grund-
arfjarðar eru búnir að vera á dans-
námskeiði alla síðustu viku undir
dyggri leiðsögn Erlu danskennara.
Afraksturinn var svo sýndur í sal
íþróttahússins föstudaginn 13. apríl
og óhætt er að segja að krakkarnir
hafi sýnt glæsileg tilþrif.
tfk
Danssýning í Grunnskóla Grundarfjarðar
Úrslit í Stóru upplestarkeppninni
hjá nemendum í 7. bekk fóru fram
í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og
Ólafsvíkurkirkju á þriðjudaginn í
síðustu viku. Eins og Skessuhorn
hefur greint frá fóru úrslit á Akrnesi
fram í síðasta mánuði. Í Heiðar-
skóla kepptu fulltrúar úr Auðarskóla
í Dölum, Grunnskóla Borgarfjarð-
ar, Grunnskólanum í Borgarnesi og
Heiðarskóla. Dómnefndina skipuðu
Hjördís Hjartardóttir, Ingibjörg
Einarsdóttir og Björk Einisdótt-
ir. Í Ólafsvíkurkirkju kepptu full-
trúar úr Grunnskólanum í Stykkis-
hólmi, Grunnskóla Grundarfjarð-
ar og Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Dómnefndina þar skipuðu þau Lilja
Ólafsdóttir, Elva Ösp Magnúsdóttir
og Jón Hjartarson. „Þetta er menn-
ingarlegur viðburður og sannköll-
uð gæðastund, hrein unun að hlýða
á börnin gera sitt allra besta,“ seg-
ir Sigríður Lára Guðmundsdóttir,
skólastjóri í Heiðarskóla, í samtali
við Skessuhorn.
Í báðum keppnum var lesið í
þremur umferðum, í þeirri fyrstu
var voru fluttar svipmyndir úr sög-
unni Strokubörnin á Skuggaskeri
eftir Sigrúnu Eldjárn. Í annarri um-
ferð fluttu nemendurnir ljóð eft-
ir Ólaf Jóhann Sigurðsson og að
lokum lásu nemendur ljóð af eigin
vali. Að keppni lokinni var öllum
þátttakendum afhent viðurkenn-
ing fyrir þátttöku og dómnefnd til-
kynnti úrslit. Í Heiðarskóla var Sól-
björt Tinna Cornette úr Auðarskóla
í þriðja sæti, Helga Rún Hilmars-
dóttir úr Auðarskóli í öðru sæti og
Ingibjörg Þórðardóttir úr Grunn-
skóla Borgarfjarðar var hlutskörpust
og hlaut fyrsta sætið. Í Ólafsvíkur-
kirkju varð Kolbrún Líf Jónsdótt-
ir úr grunnskóla Grundarfjarðar í
þriðja sæti, Ingigerður Sól Hjartar-
dóttir úr Grunnskólanum í Stykk-
ishólmi í öðru sæti og hlutskörpust
var Sylvía Dís Scheving úr Grunn-
skóla Snæfellsbæjar. arg
Stóra upplestarkeppnin á Vesturlandi
Keppendur úr Grunnskóla Snæfellsbæjar, Grunnskóla Grundarfjarðar og Grunnskólanum í Stykkishólmi kepptu í Ólafs-
víkurkirkju. Hér má sjá alla keppendur með viðurkenningaskjal að keppni lokinni. Ljósm. frá Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Í Heiðarskóla kepptu fulltrúar úr Auðarskóla, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólanum í Borgarnesi og Heiðarskóla. Hér
má sjá keppendur með viðurkenningaskjöl að keppni lokinni. Ljósm. frá Heiðarskóla.