Skessuhorn


Skessuhorn - 06.06.2018, Qupperneq 8

Skessuhorn - 06.06.2018, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 20188 Heyrnarfræði löggild LANDIÐ: Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um menntun, rétt- indi og skyldur heyrnarfræð- inga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðin fel- ur í sér löggildingu stéttar- innar og hefur sá einn rétt til að kalla sig heyrnarfræð- ing og starfa sem slíkur hér á landi sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis. -mm Akstursbann á hálendisvegum LANDIÐ: Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendis- vegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er enn að fara úr jörð. „Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merk- ingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og nátt- úrunni í kringum þá fyr- ir átroðningi og skemmd- um sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merk- inu allur akstur bannaður,“ segir í tilkynningu frá Vega- gerðinni. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 26. maí - 1. júní Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 16 bátar. Heildarlöndun: 24.167 kg. Mestur afli: Ísak AK: 3.439 kg í tveimur róðrum. Arnarstapi: 15 bátar. Heildarlöndun: 22.331 kg. Mestur afli: Grímur AK: 4.342 kg í þremur róðrum. Grundarfjörður: 17 bátar. Heildarlöndun: 344.476 kg. Mestur afli: Hringur SH: 63.034 kg í einni löndun. Ólafsvík: 34 bátar. Heildarlöndun: 217.736 kg. Mestur afli: Egill SH: 31.450 kg í þremur róðrum. Rif: 27 bátar. Heildarlöndun: 326.747 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 77.418 kg í tveimur löndun- um. Stykkishólmur: 25 bátar. Heildarlöndun: 97.624 kg. Mestur afli: Jökull SH: 7.863 kg í fjórum róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 63.034 kg. 30. maí. 2. Vörður EA - GRU: 60.480 kg. 27. maí. 3. Áskell EA - GRU: 58.856 kg. 28. maí. 4. Örvar SH - RIF: 52.815 kg. 30. maí. 5. Steinunn SF - GRU: 52.049 kg. 27. maí. -kgk Nú hafa nemendur verið braut- skráðir frá öllum deildum Land- búnaðarháskóla Íslands, en starf- semin fer eins og kunnugt er fram á nokkrum stöðum. Fyrsta braut- skráning fór fram 1. maí sl. þeg- ar 24 nemendur útskrifuðust af námskeiðaröðinni Reiðmaður- inn í endurmenntunardeild LbhÍ. Þá fór brautskráning nemenda af garðyrkjubrautum við LbhÍ fram í Hveragerðiskirkju 26. maí sl. Brautskráning nemenda á bú- fræðibraut og á háskólabrautum á Hvanneyri fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi 1. júní síðastlið- inn. Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, flutti ræðu og óskaði nem- endum velfarnaðar í framtíðinni. Jóhannes Torfason bóndi á Torfa- læk II, tækifærisræðumaður Önd- vegisdeildar - 50 ára búfræðikand- ídata hélt ræðu fyrir hönd útskrift- arnema 1968. Tónlistaratriði voru í höndum þeirra Evu Margrétar Jónudóttur og Ágústar Gests Guð- bjargarsonar útskriftarnema 2018. Um undirleik sáu þau Anna Sólrún Kolbeinsdóttir og Jón S. Snorri Bergsson. Verðlaun fyrir góðan árangur Alls útskrifuðust 28 nemend- ur af búfræðibraut. Rebekka Rún Helgadóttir dúxaði á búfræðiprófi með einkunnina 9,13. Hún hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt sem og nautgriparækt. Elvar Friðriks- son hlaut verðlaun fyrir góðan ár- angur í bútæknigreinum og góðan árangur í hagfræðigreinum. Hann fékk einnig verðlaun fyrir frábær- an árangur fyrir lokaverkefni á bú- fræðiprófi. Jóhannes Geir Gunn- arsson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í námsdvöl. Þá var einnig útskrifað á há- skólabrautum. 12 nemendur út- skrifuðust með BS próf í búvísind- um. Verðlaun fyrir góðan árang- ur á BS prófi á búvísindum hlaut Bjarni Sævarsson með einkunnina 9,12. Fjórir nemendur luku BS prófi í náttúru- og umhverfisfræði. Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran námsárangur á BS prófi á brautinni með einkunnina 9,23. Fjórir nemendur luku BS prófi á skógfræði- og landgræðslu. Jakob Wayne Robertson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á landgræðslu- línu og Sigríður Hrefna Pálsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS prófi á skógfræðilínu. Sigríð- ur hlaut einnig verðlaun fyrir góð- an árangur í námskeiðinu plönt- unotkun. Þá útskrifuðust sjö nemendur með BS próf í Umhverfisskipu- lagi. Esther Thaagaard Andreasen hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS prófi á brautinni sem og fyrir góðan árangur í skipulagsfögum. Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran árangur fyrir loka- verkefni á BS prófi með einkunina 9,4 sem og verðlaun fyrir bestan árangur á BS prófi við LbhÍ vorið 2018 með einkunnina 9,23 . Þrír nemendur luku MS prófi í rannsóknartengdu einstaklings- miðuðu meistaranámi, Guðríður Baldvinsdóttir lauk prófi í skóg- fræði, Gunnar Reynisson í hesta- fræði og Jón Hjalti Eiríksson lauk prófi í búvísindum og hlaut hann jafnframt verðlaun fyrir frábæran árangur á MS próf við LbhÍ með einkunnina 9,44. Einn nemandi lauk MS próf ií skipulagsfræðum, Þórður Már Sigfússon, og hlaut hann viður- kenningu frá Skipulagsfræðinga- félagi Íslands. Brautskráð af garð- yrkjubrautum Brautskráning nemenda af garð- yrkjubrautum við Landbúnað- arháskóla Íslands fór fram 26. maí sl. Alls var 21 nemandi braut- skráður, sjö luku bóklegum hluta í garðyrkjuframleiðslu en námið er þannig upp sett að nemandi klárar tvö ár bókleg á Reykjum í Ölfusi og tekur svo verklegt nám innan greinarinnar. Níu nemendur luku bóklegu námi í skrúðgarðyrkju og fimm útskrifuðust sem skrúðgarð- yrkjufræðingar en það nám er lög- gild iðngrein. Við athöfnina söng Einar Clausen tvö lög við undir- leik Jóns Kristófers Arnarsonar. Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, og Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endur- menntunardeildar og staðarhald- ari á Reykjum, fluttu ávörp og ósk- uðu nemendum til hamingju með daginn. Í garðyrkjuframleiðslu hlutu þrír nemendur viðurkenningu. Þröstur Þórsson hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á garð- og skógar- plöntulínu með 9,61. Íris Grétars- dóttir hlaut viðurkenningu fyr- ir hæstu einkunn af línu lífrænn- ar ræktunar matjurta með ein- kunnina 9,59. Í ylræktun var Ing- vari Þorsteinssyni færð viðurkenn- ing fyrir bestan árangur með ein- kunnina 9,20. Jóhann Böðvar Skúlason fékk viðurkenningu fyrir hæstu meðal- einkunn útskrifaðra nema úr bók- legu og verklegu námi á skrúð- garðyrkjubraut en meðaleinkunn hans var 8,6. Helle Laks fékk við- urkenningu fyrir hæstu einkunn úr bóklegu skrúðgarðyrkjunámi eða 9,75. Hún var einnig dúx skólans að þessu sinni. mm/LbhÍ Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands Útskriftarnemar í garðyrkjufræðum. Ljósm. gh. Brautskráð var frá LbhÍ á Hvanneyri við athöfn sem að þessu sinni var haldin í menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi. Ljósm. aós.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.