Skessuhorn - 06.06.2018, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 201812
Veðurfarið að undanförnu hefur ekki beint gefið til
kynna að hér væri komið vor, hvað þá sumar. Flestir
starfsmenn upplýsingamiðstöðva fyrir ferðamenn á
Vesturlandi eru sammála um að veðrið eigi drjúgan
þátt í rólegri byrjun á sumarumferðinni. Ferðafólki
hefur fjölgað í landshlutanum á síðustu árum en nú
virðist sem aukning sé ekki lengur til staðar milli
ára. Engu að síður leggja gestir leið sína í lands-
hlutann árið um kring og verða sér úti um upplýs-
ingar í leiðinni. Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkr-
um sem starfa við upplýsingamiðlun til ferðafólks.
Akranes:
Býst við svipaðri traffík í sumar
Hilmar Sigvaldason, betur þekktur sem Hilmar vitavörður,
stendur vaktina á Breiðinni á Akranesi og tekur á móti gest-
um hvaðanæva úr heiminum. Hann er bjartsýnn á sumarið
framundan. „Ferðamenn er farið að drífa að þrátt fyrir leið-
inlegt veður í maímánuði,“ segir Hilmar glaður, enda náðu
geislar sólar að ylja upp þegar rætt var við hann í síðustu viku
þar sem við tökum tal við vitann. Hann segist búast við ósköp
svipaðri vertíð og fátt verði um breytingar. „Það er mikið um
fjölskyldufólk og aðra ferðamenn á eigin vegum sem koma
hingað til okkar. Einnig eru skipulagðir hópar alltaf á ferðinni
og stoppa við.“ Aðspurður hvað mætti betur fara segir Hilm-
ar að bæjarfélagið í heild, stjórnkerfið og íbúar, mættu vera
meira samstíga í ferðaþjónustutengdum málum til að auka
sókn gesta á Akranes.
Borgarnes:
Maí var undir væntingum
Í Borgarnesi hefur umferð ferðafólks farið rólega af stað í
sumar og mætti segja að veðrið hafi haft áhrif á það. Sam-
kvæmt Gunnhildi Rós, starfsmanni í Upplýsingamiðstöðinni í
Hyrnutorgi, þá hefur maímánuður verið rólegri en gert hafði
verið ráð fyrir en þó er aukning frá því í fyrra þegar mánuð-
urinn er tekinn saman. Býst hún við fleiri ferðamönnum nú
í júní. „Það er töluvert um einstaklinga á ferðinni. Hóparnir
eru skipulagðir langt fram í tímann og eru lítið að sækja þjón-
ustu til okkar,“ segir Gunnhildur. „Ferðamenn sem koma til
okkar eru yfirleitt ekki búnir að skipuleggja ferðirnar sínar og
eru því duglegir að nýta sér þjónustu okkar,“ bætir hún við.
Breiðablik:
Game of Thrones
fjallið vinsælast
Upplýsingamiðstöðin Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi
var opnuð í lok júlí í fyrra. Hún var í fyrstu opnuð sem tilraun-
arverkefni til tveggja mánaða en hefur verið starfrækt síðan og
þar hefur verið tekið á móti gestum. „Það koma hingað til
okkar um 300 manns yfir daginn að jafnaði,” segir Jón Grétar.
starfsmaður upplýsingamiðstöðvarinnar og talar þá jafnframt
um sumarmánuðina. Segir hann væntingar um að gestafjöldi
verði svipaður í ár. Breiðablik er á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Flestir ferðamenn sem leggja leið sína á Snæfellsnes staldra
við og verða sér úti um upplýsingar um staði til að heimsækja
á leið sinni. „Kirkjufell er lang vinsælasti viðkomustaðurinn.
Oft er fólk einnig að spyrja um „Game of Thrones“ fjallið
sem er skemmtilegt, og á þá við Kirkjufellið.” Game of Thro-
nes eru geysivinsælir ævintýraþættir sem eru framleiddir í
Bandaríkjunum og greinilegt að sýning þeirra hefur markaðs-
sett landshlutann rækilega.
Stykkishólmur:
Vantar upplýsingamiðstöð
Nadine Walter, markaðsstjóri Sæferða í Stykkishólmi, vonar
að sumartraffíkin bæti upp fyrir dræma aðsókn í haust og vet-
ur. „Vetrarmánuðirnir voru ekki góðir fyrir Sæferðir og haust-
ið var sérstaklega slæmt. Stundum voru bara tíu að fara með
bátnum sem tekur 134 farþega,“ segir Nadine, en ætla má að
óhagstætt veðurfar hafi gert ferðamönnum erfitt fyrir. Ekki
er upplýsingamiðstöð til staðar í Hólminum og segir Nad-
ine slíkt bráðvanta. Átti nýja miðstöðin í Breiðabliki að bæta
upp fyrir það. „Það er fínt að hafa miðstöðina í Breiðabliki, en
þegar ferðamenn eru komnir hingað þá vilja þeir oftar en ekki
sækja sér upplýsingar á staðnum. Þessa þjónustu vantar hér í
bæinn,“ segir Nadine.
Grundarfjörður:
Sjá annað sjónarhorn á fjallið
Sunna Njálsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins og starfsmað-
ur upplýsingamiðstöðvarinnar í Grundarfirði, býst ekki við
mikilli aukningu í fjölda ferðamanna frá því í fyrra. „Ég held
þetta verði ósköp svipað hjá okkur. Það var svolítið rólegt hjá
okkur eftir páska en umferðin er að aukast núna í lok maí,“
segir Sunna. Yfir sumartímann tífaldast gestafjöldinn sem um
Grundafjörð fer og er það Kirkjufell sem er vinsælast, eins og
áður hefur komið fram. „Flestir sem leggja leið sína hingað
eru auðvitað að koma til og skoða Kirkjufell. Hins vegar þeg-
ar fólk kemur inn í bæinn norðanmegin frá þá er töluvert ann-
að sjónarhorn á fjallið og ferðamenn koma þá stundum í ör-
væntingu sinni til mín og spyrja hvar Kirkjufell eiginlega sé,“
segir Sunna og hlær.
Malarrif:
Dregur úr fjölgun gesta
Daglega eru gestir taldir á Gestastofunni að Malarrifi á Snæ-
fellsnesi. Þar var opnað fyrir rúmum tveimur árum og sækja
um 15% gesta sem um Snæfellsnesið fara staðinn. Jón Björns-
son er þjóðgarðsvörður. „Ferðamenn stoppa að meðaltali í tvær
klukkustundir í Þjóðgarðinum sem þekur 170 ferkílómetra
vestast á Snæfellsnesi og fellur Snæfellsjökull allur innan hans.“
Jón segir að fjölgun gesta milli áranna 2010 til og með 2013
hafi verið um 7% á ári. Milli áranna 2014 til 2017 var hins veg-
ar nær 30% árleg fjölgun gesta. Aftur á móti hafa fyrstu fjór-
ir mánuðir þessa árs gefið til kynna mun minni fjölgun, en hún
mælist 9% frá því á sama tíma í fyrra. glh
Ferðamannastraumurinn fer
hægt af stað á Vesturlandi
Ferðamenn ná mynd af sér með Akranesvita í bakgrunn.
Gunnhildur Rós að störfum í Upplýsingamiðstöðinni í Borgarnesi.
Ferðamaður sest niður í sólinni á Breiðinni.
Ferðamaður nýtir sér aðstöðu og þjónustu í Breiðabliki.
Nadine stendur vaktina á skrifstofu Sæferða.
Horft niður á höfn í Stykkishólmi.
Upplýsingamiðstöðin í Grundarfirði sem hýsir einnig bókasafn
bæjarins og Kaffi Emil.
Vitinn að Malarrifi.