Skessuhorn - 06.06.2018, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 201830
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað var skemmtilegast að
skoða á Snæfellsnesi?
Spurni g
vikunnar
Ashley Pratt frá Bandaríkjun-
um:
Kirkjufell.
Bob Iieland frá Írlandi:
Allan fjölbreytileikann í náttúr-
inni.
Antonio Puente frá Spáni:
Kirkjufell.
Selwyn Domingo frá Suður
Afríku:
Allar þessar fallegu náttúruperl-
ur.
Sanjay Taneja frá Indlandi:
Arnarstapa.
(ferðamenn á Snæfellsnesi spurðir)
Akranesleikarnir í sundi fóru fram
um síðustu helgi, dagana 1. til 3.
júní. Synt var í Jaðarsbakkalaug.
Mótið var vel sótt, en 302 keppend-
ur frá 13 sundfélögum skráðu sig til
leiks, þar af eitt félag frá Kanada.
„Frábær helgi, frábærir krakkar og
góð stemning,“ segir í tilkynningu á
Facebook-síðu Sundfélags Akraness.
Mótið er stigakeppni milli fé-
laga þar sem fyrstu fimm keppend-
ur í hverri greint safna stigum fyr-
ir sitt félag. Tvöföld stigagjöf er í
boðsundsgreinum. Fór svo að lok-
um að Sundfélag Hafnarfjarðar stóð
uppi sem sigurvegari á mótinu en
gestgjafarnir í Sundfélagi Akraness
hrepptu annað sætið. Sundfélagið
Óðinn frá Akureyri hafnaði í þriðja
sæti mótsins.
Ágúst Júlíusson átti stigahæsta
sundið og Brynhildur Traustasdótt-
ir það næststigahæsta. Bæði synda
þau fyrir Sundfélag Akraness. Þriðja
stigahæsta sundið átti Þura Snorra-
dóttir úr Óðni. Sundfélagið Óðinn
var valið prúðasta liðið í mótinu.
kgk
Sundfélag Hafnarfjarðar stigahæst á Akranesleikunum
Kári féll úr Mjólkurbikar karla eftir
3-4 tap gegn Víking R. í ótrúlegum
leik í Akraneshöllinni á fimmtu-
dagskvöldið. Kári leikur sem kunn-
ugt er í 2. deild en Víkingur tveim-
ur deildum ofar, í Pepsi deildinni.
Leikurinn byrjaði mjög fjörlega.
Strax á 3. mínútu fengu Káramenn
þrjú góð færi í sömu sókninni en
Serigne Mor Mbaye, markvörður
gestanna, varði vel í þrígang. Á 19.
mínútu kom fyrsta mark leiksins
þegar Örvar Eggertsson kom Vík-
ingi yfir. En Káramenn voru ekki
lengi að svara fyrir sig því Ragnar
Már Lárusson jafnaði metin að-
eins fjórum mínútum síðar. Næsta
korterið eða svo voru gestirnir mun
meira með boltann en gekk illa að
skapa sér færi. Skömmu fyrir hálf-
leik fékk Kári aukaspyrnu á víta-
teigsboganum. Páll Sindri Einars-
son tók spyrnuna og gerði sér lítið
fyrir og skoraði með glæsilegu skoti
efst upp í markhornið. Aðeins mín-
útu síðar nýtti Andri Júlíusson sér
vandræðagang í vörn Víkings og
kom Kára í 3-1 áður en flautað var
til hálfleiks.
Gestirnir mættu mjög ákveðn-
ir til síðari hálfleiks og voru fljótir
að minnka muninn. Á 47. mínútu
skoraði Davíð Örn Atlason með
skalla eftir aukaspyrnu. Leikurinn
var fjörlegur næstu mínúturnar og
ekki leið á löngu þar til næsta mark
leit dagsins ljós. Það skoraði Rick
Ten Voorde með skalla eftir fyrir-
gjöf Örvars og gestirnir búnir að
jafna í 3-3.
Bæði lið fengu sín tækifæri til að
skora það sem eftir lifði venjulegs
leiktíma. Hvorugu tókst hins vegar
að nýta þau færi og því varð að grípa
til framlengingar. Var það ekki fyrr
en á 113. mínútu sem næsta mark
var skorað og voru það gestirn-
ir sem gerðu það. Nikolaj Hansen
skallaði þá boltann til Alex Freys
Hilmarssonar sem kláraði færið vel
og tryggði Víkingi sigurinn.
kgk
Káramenn höfðu í fullu
tré við úrvalsdeildarliðið
Byrjunarlið Kára fyrir leikinn gegn Víkingi R. Ljósm. Knattspyrnufélagið Kári.
Skagakonur þurftu að játa sig sigr-
aðar gegn Þrótti R. þegar liðin
mættust í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu á föstudagskvöld. Leikur-
inn fór fram á Akranesi þar sem
gestirnir skoruðu tvö mörk gegn
engu.
Þróttarar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og komust yfir strax
á 3. mínútu þegar Andrea Rut
Bjarnadóttir skoraði með föstu
skoti. Aðeins sex mínútum síðan
bættu gestirnir öðru markinu við
þegar Gabriela Maria Mencotti
skoraði eftir að hafa leikið á varn-
armann ÍA. Draumabyrjun Þrótt-
ar sló Skagakonur út af laginu og
áttu þær erfitt uppdráttar í fyrri
hálfleik. Þeim gekk illa að skapa
sér færi og gestirnir voru nær því
að bæta við en ÍA að minnka mun-
inn.
ÍA liðið komst betur inn í leikinn
í síðari hálfleik og náði að skapa sér
nokkur ákjósanleg marktækifæri.
Þróttarar lágu til baka og fengu
nokkur tækifæri eftir skyndisókn-
ir. Hvorugu liðinu tókst hins vegar
að nýta þau færi sem sköpuðust og
hægt og rólega fjaraði leikurinn út.
Lokatölur á Akranesvelli urðu því
0-2, Þrótti í vil.
ÍA situr í öðru sæti deildarinn-
ar með níu stig eftir fjóra leiki,
jafn mörg og topplið Fylkis sem
á þó leik til góða. Næst leikur ÍA
þriðjudaginn 19. júní þegar liðið
heimsækir Keflavík. kgk
Erfið byrjun reyndist Skagakonum dýrkeypt
Bergdís Fanney Einarsdóttir í baráttunni við leikmann Þróttar. Ljósm. sas.
Víkingur Ó. tryggði sér sæti í átta
liða úrslitum Maltbikars karla
með 0-1 útisigri á Fram á mið-
vikudagskvöld. Heimamenn byrj-
uðu af krafti en Víkingur Ó. var
engu að síður sterkara liðið í fyrri
hálfleik. Það kom því ekki mikið á
óvart þegar þeir komust yfir á 36.
mínútu. Ívar Reynir Antonsson
fékk boltann hægra megin í teign-
um og fékk góðan tíma til að at-
hafna sig. Hann þurfti ekki að hafa
mikið fyrir því að finna Vigni Snæ
Stefánsson sem var aleinn á mark-
teignum og lagði boltann snyrti-
lega í netið. Laglegt mark hjá
Víkingi Ó. en varnarmenn Fram
hefðu líklega átt að gera betur.
Framarar voru ákveðnari framan af
síðari hálfleik án þess þó að skapa
sér nein alvöru marktækifæri. Dró
síðan til tíðinda á 65. mínútu. Guð-
mundur Magnússon, sóknarmaður
Fram, var rekinn af velli og Fram-
arar því manni færri. Ólafsvíking-
ar sluppu einir í gegn skömmu
síðar en náðu ekki að nýta færið.
Heimamenn sóttu í sig veðrið og
sóttu mun meira það sem eftir lifði
leiks, manni færri, en náðu ekki að
gera sér mat úr því. Jafnt varð í lið-
unum í uppbótartíma þegar Vign-
ir Snær fékk sitt annað gula spjald
og þar með rautt fyrir að stöðva
skyndisókn heimamanna. Fleiri
mörk voru ekki skoruð og Víking-
ur Ó. fór því með sigur af hólmi. Í
átta liða úrslitum mæta þeir nöfn-
um sínum í Víkingi Reykjavík. Sá
leikur fer fram í Reykjavík mið-
vikudaginn 18. júlí.
kgk
Víkingur Ó.
áfram í bikarnum