Skessuhorn - 20.06.2018, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 20184
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Jafnteflið og dauðinn
Nú kann það að hafa farið framhjá þér, lesandi góður, en Heimsmeistara-
keppni karla í knattspyrnu hófst í Rússlandi í liðinni viku. Íslenska landsliðið
er þar meðal þátttakenda í fyrsta skipti og sannkallað HM æði hefur gripið
um sig hjá landi og þjóð. Síðastliðinn sunnudag fylkti fólk liði og gekk saman
við trommuslátt og lúðratóna um stræti og torg. Börn voru máluð í fánalit-
unum og fólk hlýddi á HM konuna flytja ættjarðarljóð til að blása strákunum
okkar og stuðningsmönnum þeirra byr í brjóst. Mikil HM stemning.
Dagurinn sem um ræðir er að sjálfsögðu 17. júní og ofangreindur texti er
grín. Látið er sem leiðarahöfundur viti ekki að 17. júní er þjóðhátíðardagur-
inn og telji að landinn hafi safnast saman í HM æði. Nú máttu hlæja ef þú
fattaðir þetta ekki áðan.
Oft hefur verið ritað á blað hvernig heimsmeistaramót af þessu tagi getur
verið til þess fallið að þjappa þjóðinni saman með jákvæðri þjóðerniskennd.
Síðan er mótið búið og lífið heldur áfram. En einstaka leiki mótsins má líka
nýta til að leyfa tilfinningunum að heltaka sig stutta stund. Það getur verið
gott. Flest höldum við ofboðslega mikið með Íslandi á mótinu og mörg okk-
ar stukkum upp úr sófanum þegar jöfnunarmarkið kom á móti Argentínu á
laugardaginn. Það er bara allt í lagi og mun skemmtilegra að njóta mótsins
þannig. Það væri hægt að líta mótið sjálft öðrum augum: „Ísland gerir jafnt-
efli við Argentínu og við munum öll deyja.“ Í stóra samhenginu er kannski
ýmislegt til í því. Þetta er bara stuttur kappleikur og lífið heldur áfram. En
kannski einmit þess vegna er kjörið að láta það eftir sér að setjast í tilfinn-
ingarússíbanann í stofusófanum og fara eina 90 mínútna salíbunu. Hlæja,
gráta og naga neglurnar á meðan. Lúta höfði af sorg og öskra af gleði. Leyfa
sér að vera því sannarlega munum við öll deyja, hvort sem Hannes ver víta-
spyrnu frá Messi eður ei. Ef við á annað borð höfum gaman af því að horfa
á íþróttir er um að gera að njóta til hins ýtrasta. Það gerum við með því að
gleyma okkur í gleðinni og geðshræringunni.
Ég hef eftir fremsta megni reynt að tileinka mér þetta viðhorf, einkum
þegar landsliðið á í hlut. Það er bara svo gaman. Ég horfði á leikinn á móti
Argentínu með nokkrum góðum heima hjá vini mínum. Þegar tangódreng-
irnir komust yfir lutum við höfði strákarnir og andvörpuðum. Ég stóð upp og
gekk álútur fram í eldhús og fékk mér kaffi. Merrilddrullu úr Senseovél. Ég
var ekki fyrr sestur í sófann og búinn að taka fyrsta sopann en Alfreð Finn-
bogason jafnaði. Áður en ég vissi af hafði ég öskurfrussað kaffinu út um alla
stofu hjá vini mínum. En honum var alveg sama. Strákarnir áttu innilega
gleðistund saman þar sem þeir dönsuðu og sungu í stofunni. Þegar Hannes
varði vítið frá Messi fórum við næstum að gráta. Mikið var það gott. Síðan
var leikurinn búinn. Ísland gerði jafntefli við Argentínu og við munum öll
deyja.
Með kveðju og þökk fyrir lesturinn,
Kristján Gauti Karlsson.
Leiðari
Hafrannsóknastofnun kynnti á mið-
vikudag úttekt á ástandi nytjastfona
og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Á
grundvelli langtímamarkmiða um
sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark
fyrir á þriðja tug stofna. Miðað er
við varúðarsjónarmið og hámarks-
nýtingu til lengri tíma litið.
Ráðlagt aflamark ýsu er 57.982
tonn fyrir fiskveiðiárið 2018 til 2019.
Það samsvarar 40% aukningu frá
síðasta ári. Aflaregla ufsa gerir ráð
fyrir 30% aukningu fyrir næsta fisk-
veiðiár, úr 60.237 tonnum í 79.092
tonn. Lagt er til að aflamark þorsks
verði hækkað um 3% bytt á afla-
reglu stjórnvalda, úr 257.572 tonn-
um í 264.437 tonn fyrir fiskveiðiárið
2018-2019.
Árgangar gullkarfa hafa verið
með lakasta móti frá 2006 og því
hefur hrygningastofn tegundarinnar
minnkað lítillega. Samkvæmt afla-
reglu verður heildaraflamark gull-
karfa á næsta fiskveiðiári því 43.600
tonn, sem er 14% lækkun frá fyrra
ári. Samtals 90% heildaraflamarks
gullkarfa kemur í hlut Íslendinga,
eða 39.240 tonn, en hin 10% koma í
hönd Grænlendinga skv. samkomu-
lagi þjóðanna. Ráðgjöf fyrir grálúðu
er óbreytt frá síðasta ári, eða 24.150
tonn. Samkvæmt samkomulagi
Grænlands og Íslands koma 13.500
tonn í hlut Íslendinga.
Stofn íslensku sumargotssíldar-
innar hefur minnkað um nær 60%
undanfarinn áratug, vegna slakr-
ar nýliðunar og frumdýrasýking-
ar. Ekki er að vænta mikilla breyt-
inga í stofnstærð næstu ár, þar sem
árgangarnir sem koma inn í veiði-
stofninn eru litlir og sýkingarhlutfall
mælist hátt. Aflaregla fyrir síld verð-
ur 35.186 tonn, sem er 9% lækkun
frá yfirstandandi fiskveiðiári.
Ráðgjöf fyrir flatfiskstofna er lít-
ið breytt frá síðasta fiskveiðiári, að
þykkvalúru undanskilinni. Ráðlagt
aflamark hennar eykst um 20% í
1.565 tonn. Lækkun aflamargs er
lögð til fyrir blálöngu, löngu, keilu,
skötusel og gulllax. Ráðgjöf fyrir
steinbít hækkar úr 8.540 tonnum í
9.020 tonn. kgk
Aflamark ufsa og ýsu
hækkað umtalsvert
Einnig smávægileg hækkun í þorski
Aflamark þorsks hækkar um 3%. Ljósm. úr safni.
Ný verðkönnun Verðlagseftirlits
ASÍ sýnir að í 52 tilvikum af 100
var yfir 40% verðmunur á hæsta og
lægsta verði matvöru. Í 24 tilvikum
var munurinn yfir 70%. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá ASÍ. Hæsta
verðið var oftast í verslunum Ice-
land, eða í 35 skipti af 100. Oftast
var lægsta verðið í Bónus, eða í 63
skipti af 100. Hagkaup var sú versl-
un sem var næstoftast með hæsta
verðið, í 21 skipti af 100. Könnunin
var framkvæmd í átta stærstu versl-
unum landsins.
Samanburður á lítilli vörukörfu
með 13 vörum sýndi að sú karfa er
3.108 kr. dýrari í verslunum Iceland
en í verslunum Bónuss. Vörukarf-
an inniheldur vörur eins og brauð,
djús, kjötbollur, banana, morgun-
korn, handsápu og þvottaefni.
„Niðurstöður könnunarinnar eru
sláandi en þær sýna að gríðarlegur
verðmunur var á flestum vörunum
í könnuninni. Á mörgum vörum
var yfir 40% verðmunur milli dýr-
asta og ódýrasta valkostsins og 70%
verðmunur var á fjórðungi var-
anna. 100% verðmunur var á frosnu
lambalæri, lægsta verðið mátti finna
í Bónus og í Nettó þar sem það kost-
aði 1.098 kr. en hæsta verðið var í
í Kjörbúðinni Sandgerði þar sem
það kostaði 2.109 kr. Litlu ódýr-
ara var það í Hagkaup þar sem kíló-
verðið var 2.099 krónur,“ segir í til-
kynningu ASÍ. „Munur á hæsta og
lægsta verði á svínakótilettum var
64%, lægst var verðið í Krónunni,
1.399 kr. kg en hæst var það í Ice-
land á 2.299 kr. Þá var 42% eða 801
kr. verðmunur á ferskum laxi, lægsta
verðið var í Nettó, 1.898 kr. en það
hæsta í Iceland 2.698 kr. en Hag-
kaup var einungis einni krónu lægra
með 2.698 kr. kílóið. Mjög mikill
verðmunur var einnig á ávöxtum
og grænmeti, drykkjarvörum, þurr-
vörum og dósamat, brauði og kext-
meti.“ kgk/ Ljósm. úr safni/ eo.
„Sláandi verðmunur“
Mikill og góður gangur er á fram-
kvæmdum við nýtt fiskvinnslu-
hús Guðmundar Runólfssonar hf
í Grundarfirði. Nú er steypt alla
daga og nýja húsið farið að skyggja
á eldri bygginguna. Menn frá Ís-
tak vinna baki brotnu þessa dag-
ana við framkvæmdirnar og ný-
byggingin tekur breytingum nán-
ast á hverjum degi.
tfk
Steypt alla daga hjá G.Run