Skessuhorn - 20.06.2018, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 23
Ærslabelgir spretta upp eins og
gorkúlur víða um landshlutann
um þessar mundir. Ærslabelgir
eru uppblásnir, niðurgrafnir belgir,
leikæki sem börn á öllum aldri geta
skemmt sér við að hoppa á eins og
trampólíni.
Fyrr í sumar voru slíkir belg-
ir teknir í notkun í Borgarnesi og
í Grundarfirði og síðast var ærsla-
belgur blásinn upp á Akranesi. Sá
belgur er staðsettur sunnan meg-
in við Akraneshöllina, nálægt
göngustígnum fyrir ofan Langa-
sand. Belgurinn á Akranesi er 100
fermetrar að stærð og kostnaður-
inn við verkefnið nam 2,5 milljón-
um króna. Belgurinn var tekinn í
notkun þegar í stað og stytti mörg-
um börnum biðina milli leikja á
Norðurálsmótinu sem fram fór um
helgina. kgk
Ærslabelgur blásinn upp á Akranesi
Ærlsabelgurinn stytti keppendum á Norðurálsmótinu biðina milli leikja.
Ljósm. gbh.
Jógahátíð á sumarsólstöðum verð-
ur dagana 21. - 24. júní nk. á Lýsu-
hóli á sunnanverðu Snæfellsnesi.
„Komum og stillum hjörtun sama á
glæsilegri jógahátíð. Sýnum sjálfum
okkur og öðrum kærleik og styrkj-
um samfélagið. Syngjum möntrur
saman undir leiðsögn Kevin James
Carroll, tónlistarmanns frá Ástral-
íu sem gefið hefur út fjölda diska,“
segir í tilkynningu.
Á dagskrá verður jóga kvölds og
morgna, hugleiðsla og slökun und-
ir öruggri leiðsögn reyndustu jóga-
kennara Íslands. „Við fljótum um
í Lýsuhólslaug og slökum á í fjör-
unni undir gongspili. Allt fæði á há-
tíðinni er lífrænn grænmetismatur
sem framreiddur er af listakokkum.
Jógahátíðin er fyrir alla fjölskyld-
una þar sem allir dagskrárliðir miða
að því að leggja rækt við sjálfan sig
og aðra í faðmi fallegra fjalla og
miðnætursólar.“
Nánari upplýsingar má sjá á síð-
unni sumarsolstodur.is eða með því
að senda tölvupóst á sumarsolstod-
ur@gmail.com.
mm
Jógahátíð framundan
á Lýsuhóli
Í Hlíð í Hörðudal í Dalasýslu hafa
hjónin Guðrún Björg Bragadóttir
og Guðlaugur Sigurgeirsson opn-
að lítið ferðaþjónustufyrirtæki sem
hefur fengið nafnið Dalahyttur.
Þar hafa þau sett upp þrjú smáhýsi
og móttökuhús með litlum mat-
sal. Smáhýsin eru 12 fermetrar að
stærð vel búin með baðherbergi,
eldunaraðstöðu og svefnplássi fyr-
ir þrjá. Þau Guðrún og Guðlaug-
ur fluttu úr Kópavogi í Dalina fyrir
tveimur árum, gagngert til að opna
ferðaþjónustu. En hvernig enduðu
þau í Dölunum? „Eina tengingin
okkar var í raun sumarhús sem við
eigum hér í Laugardal. Við höfum
í gegnum árin mikið notað þetta
sumarhús og alltaf þótt svo gott að
komast hingað í sveitina úr skarkal-
anum á höfuðborgarsvæðinu,“ seg-
ir Guðrún.
Hugurinn leitaði
alltaf í Dalina
Guðrún er Selfyssingur og Guð-
laugur kemur úr Kópavoginum en
þau segja sveitina alltaf hafa togað
í þau. „Við höfðum alltaf hugsað
okkur að búa á Suðurlandi en svo
þegar við tókum ákvörðun um að
flytja í sveit var bara eitthvað við
Vesturland sem togaði okkur þang-
að,“ segir Guðrún. „Við byrjuð-
um að leita að landssvæði í Borg-
arfirðinum og vorum ansi nálægt
því að kaupa þar en hugurinn leit-
aði alltaf aftur í Dalina. Við ákváð-
um að prófa að tala við Svavar og
Rakel sem eiga jörðina hér í Hlíð
og þau tóku vel í að láta okkur fá
smá svæði undir ferðaþjónustu. Þar
með var þetta slegið og við flutt-
um hingað,“ bætir Guðlaugur við.
„Hér höfum við það mjög gott.
Lífið gengur bara örlítið hægar í
sveitinni og það þykir okkur mjög
gott. Við eigum eina 11 ára stelpu
sem unir sér mjög vel hér í sveit-
inni og er hún stór ástæða fyrir því
að við vildum fara af höfuðborgar-
svæðinu,“ bætir Guðrún við. „Dal-
irnir hafa líka upp á svo margt að
bjóða í ferðaþjónustu. Hér er falleg
náttúra og Dalirnir eru mjög mið-
svæðis fyrir Vesturland. Þú ert ekki
nema um einn til tvo klukkutíma
að keyra hvert sem er í landshlut-
anum úr Dölunum, hvort sem það
er í Húsafell, Hvammstanga eða út
á Snæfellsnes, þetta er allt hér í ná-
grenninu.“
Opnuðu móttökuna í
síðustu viku
Áður en þau Guðrún og Guðlaug-
ur fluttu í Dalina starfaði Guð-
rún sem sölumaður þar sem hún
seldi Stiga sláttuvélar og Guð-
laugur vann sem húsasmíðameist-
ari. Guðrún er menntuð sem mat-
reiðslumaður og starfaði um tíma
sem slíkur hjá Geysi. Þar kynntist
hún einnig störfum í ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustan hjá þeim fór rólega
af stað en þau opnuðu fyrst í sept-
ember 2016, eftir að sumartraffík-
in hafði gengið yfir. „Við byrjuð-
um bara rólega en svo gekk síð-
asta sumar rosalega vel og við erum
mjög bjartsýn fyrir framhaldinu,“
segir Guðrún og bætir því við að
hægt og rólega næstu árin stefna
þau á að bæta við fleiri gistirýmum.
Núna í síðustu viku opnuðu þau
móttökuhús í gömlum bragga sem
fyrir var í Hlíð. „Við ákváðum að
fóstra þennan fína bragga og fannst
upplagt að opna í honum móttöku
og litla aðstöðu til að setjast nið-
ur að borða morgunverð eða fá
sér kaffisopa. Við stefnum svo á að
bæta við fleiri smáhýsum en þetta
kemur bara með tíð og tíma, okkur
liggur ekki á,“ segir Guðlaugur.
Góð þjónusta það sem
skiptir mestu máli
Í Hlíð eru þau Guðrún og Guð-
laugur með tvo hesta og 19 kindur
en þau stefna á að geta boðið gest-
um upp á kindakjöt sem ræktað er
á staðnum. „Við erum að bíða eft-
ir að hingað komi betra rafmagn til
að hægt sé að bjóða upp á meira en
bara morgunverð fyrir gesti. Þeg-
ar það verður komið stefnum við á
að hafa kjötið beint frá býli. Ferða-
fólk vill kynnast okkar menningu,
matarmenningu og upplifa land-
ið eins vel og hægt er. Þess vegna
tökum við alltaf á móti öllum gest-
um með heimabökuðu rúgbrauði
með smjöri og harðfiski. Það eru
misjafnar skoðanir á þessum mat
en flestum þykir gaman að fá að
smakka,“ segir Guðrún og bros-
ir. Gestir hjá Dalahyttum virðast
almennt hafa verið ánægðir með
þjónustuna þar en staðurinn fær
9,5 í einkunn á Booking.com. „Við
trúum því að góð þjónusta sé lyk-
illin að velgengni og því reynum
við að eiga góð samskipti við alla
ferðaþjónustuaðila hér á svæðinu
og vinna saman. Við tökum því
t.d. fagnandi að hér í nágrenn-
inu eru fleiri að opna lítil gistihús
og sjáum við það ekki sem sam-
keppni heldur möguleika til sam-
vinnu. Þetta eykur fjölbreytni að
svæðinu og þá kemur fleira ferða-
fólk og það er gott fyrir alla,“ seg-
ir Guðlaugur en hann hefur ein-
mitt verið að aðstoða aðra ferða-
þjónustuaðila á svæðinu með sína
uppbyggingu. „Ég hef svona verið
að hjálpa til við smíðar og slíkt,“
segir hann.
Samgöngur og
símasamband
„Eins og hér er nú gott að vera er
þó margt sem þyrfti að bæta fyr-
ir ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir
Guðrún og heldur áfram. „Okkar
helsti akkilesarhæll hér í Dölunum
eru samgöngur og símasamband.
Vegurinn í Dalina frá Snæfellsnes-
inu, um Skógarströnd, er ekki fyr-
ir hvern sem er að keyra. Við höf-
um fengið fólk til okkar sem var
ráðlagt frá því að keyra þennan
veg, sem er synd því þar er svo fal-
legt og eflaust mikil upplifun fyrir
margt erlent ferðafólk að sjá. Svo
er það símasamband en hér innst
í Hörðudal er svo gott sem ekk-
ert farsímasamband. Við þökkum
fyrir að í dag notar fólk frekar int-
ernetið en farsíma til að bóka gist-
ingu og slíkt því hér er ágæt net-
tenging,“ segir hún. „Þetta er þó
ekki alslæmt því mörgum af okk-
ar gestum þykir ákveðið frelsi að
koma hingað og kúpla sig svona
frá umheiminum,“ bætir Guð-
laugur við. Aðspurð hvort þau séu
endanlega sest að í Dölunum svara
þau því bæði játandi. „Draumur-
inn er að geta gert bústaðinn sem
við eigum hér alveg upp og búa
þar í ellinni,“ segir Guðrún bros-
andi.
arg
Fluttu úr Kópavoginum og opnuðu smáhýsagistingu í Hörðudal í Dölum
Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á móttökuhús fyrir gesti.
Guðrún Björg Bragadóttir og Guðlaugur Sigurgeirsson opnuðu smáhýsagistingu í Hörðudal í Dölum.
Smáhýsin eru vel búin með svefnplássi fyrir þrjá. Ljósm. sm.