Skessuhorn - 24.10.2018, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 27
Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur, er
alin upp í Galtarholti í Hvalfjarðar-
sveit. Hennar hlutur í jólabókaflóð-
inu að þessu sinni er bókin Heiður. Í
henni fær lesandinn að kynnast eft-
irköstum þjóðernisátakanna á Norð-
ur-Írlandi. Sagan er um togstreituna
á milli þess að berjast fyrir réttind-
um heillar þjóðar eða hamingju eig-
in fjölskyldu. Í bakgrunni eru átök-
in sem áratugum saman héldu sam-
félaginu á Norður-Írlandi í heljar-
greipum. Sólveig er stjórnmálafræð-
ingur með meistaragráðu í þjóðern-
ishyggju og þjóðernisátökum með
áherslu á átökin á Norður-Írlandi.
Áður hefur Sólveig skrifað bókina
Korter sem kom út árið 2012 og var
sett í flokk með skvísubókmenntum.
„Heiður er mjög frábrugðin Kort-
eri og ég lagði svolítið út með það,“
segir höfundurinn í samtali við
Skessuhorn. Bókin tók langan tíma
í smíðum. „Þetta tók svona langan
tíma aðallega því persónulegar að-
stæður mínar eru svolítið breyttar
núna. Þegar ég skrifaði Korter þá
var ég einhleyp, en núna er ég kom-
in með mann og þrjú börn,“ segir
Sólveig. „Ég hef verið að skrifa þessa
bók með fullri vinnu og var að stela
tíma á kvöldin og snemma á morgn-
ana til að skrifa.“
Byggðar á sönnum
sögum
Sólveig sækir í ríkulegan reynslu-
banka sinn við skrif á bókinni Heiði.
Aðalsögupersónurnar í bókinni eru
systkinin Dylan og Heiður McCar-
ron. Í æsku eru þau aðskilin og Dyl-
an fer með föður sínum, Íranum
Jackie McCarron, til Norður-Ír-
lands sem þá var suðupottur þjóð-
ernisátaka. Lesandi fylgist svo með
endurfundum systkinanna á Norð-
ur-Írlandi. Sólveig hefur rannsakað
þjóðernisátök mikið á sínum náms-
ferli og fór meðal annars til Bosníu
árið 2012 til að kynna sér eftirmál
þjóðernisátakanna þar.
„Þegar ég var að læra úti í Skot-
landi kynntist ég mörgum Norður-
Írum. Þannig að ég hef persónu-
lega tengingu við Norður-Írland
og margar sögurnar í bókinni eru
byggðar á sönnum frásögnum frá
þeirra fjölskyldum,“ segir Sólveig.
Áhuginn á Írlandi er þó ekki ein-
göngu bundinn við skólagönguna
í Skotlandi. „Áhugi minn á Írlandi
kemur frá ömmu minni, Skaga-
konunni Málfríði Sigurðardótt-
ur. Hún hafði svo mikinn áhuga
á írskri menningu og tónlist. Við
vorum mjög nánar. Þessi áhugi
smitaðist einhvern veginn yfir til
mín.“
Vildi fjalla um áhrif
átaka á börn
Þungamiðjan í bókinni eru þjóð-
ernisátökin á Norður-Írlandi. „Í
bókinni eru aðalsögupersónurn-
ar Heiður og Dylan, systkini fædd
á sama árinu en aðskilin við sjö
ára aldur. Ég vann fyrir UNICEF,
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á
tímabili, og út frá því verður mér
hugleikin aðstaða barna í heimin-
um og áhrifin sem átök hafa á börn.
Átök geta verið svo margs konar,“
segir Sólveig og tekur dæmi: „Það
eru átök eins og Dylan verður vitni
að í Norður-Írlandi, átök innan
heimilisveggjanna og átök milli for-
eldra. Allar þessar hliðar koma fram
í bókinni. Og líka sú staðreynd að
við höldum stundum að við vitum
hverjar aðstæður fólks eru, en svo
kemur annað á daginn.“
klj
Dagana 5. til 6. október var hald-
in smiðjuhelgi í Grunnskóla Borg-
arfjarðar, en þær eru fastur liður í
starfi skólans. Tilgangur þeirra er
að mæta vali unglinganna með öðr-
um hætti en almennt tíðkast og gefa
nemendum kost á að hafa meira um
val sitt að segja. Með smiðjuhelg-
um er nemendum boðið upp á fjöl-
breyttari valfög en hægt er að bjóða
inni í stundatöflu. Þeir setja fram
hugmyndir sínar um það sem þeim
þykir áhugavert og langar að hafa
í vali. Út frá þeim hugmyndum er
leitast við að bjóða upp á smiðj-
ur sem flestir hafa áhuga á hverju
sinni.
Að þessu sinni var smiðjuhelgin
haldin á Kleppjárnsreykjum. Komu
nemendur frá Reykhólaskóla, Laug-
argerðisskóla og Auðarskóla í Búð-
ardal og tóku þátt í smiðjuhelginni
með nemendum Grunnskóla Borg-
arfjarðar. Í boði var björgunarsveit-
arsmiðja, danssmiðja, sirkussmiðja,
leiklistarsmiðja, smávélaviðgerðir,
förðunarsmiðja og sundknattleiks-
smiðja. Var líf og fjör í öllum smiðj-
unum og nemendur áhugasamir og
glaðir í sinni vinnu. kgk
Smiðjuhelgi var haldin í GBF
Frá sundknattleikssmiðju nemenda á smiðjuhelgi GBF. Ljósm. Borgarbyggð.
Tónlistarkonan Soffía Björg Óðins-
dóttir frá Einarsnesi í Borgarfirði
boðar til tónleika í Landnámssetrinu í
Borgarnesi annað kvöld, fimmtudag-
inn 25. október. Þar mun hún leika
útgefið efni í bland við óútgefið.
Soffía gaf út sína fyrstu plötu á
stafrænu formi á síðasta ári og hef-
ur hún fengið góðar viðtökur. Síðan
hefur hún verið iðin við kolann. Hélt
til dæmis í sitt fyrsta tónleikaferðalag
erlendis í maí síðastliðnum, þar sem
hún spilaði á átta sólótónleikum á níu
dögum víða í Póllandi ásamt grískum
tónlistarmanni. Frá því Soffía hefur
komið heim hefur hún unnið að því
að þróa áfram sinn sólóstíl, auk þess
sem hún hélt þrenna tónleika í Borg-
arneskirkju í sumar.
Nýjasta útgáfa Soffíu er lagið Þeir
vaka yfir þér. Það var tekið upp í
Sundlauginni Studio ásamt hljóð-
færaleikurum, strengjakvartett og
fimm bakröddum, en bakraddakvin-
tettinn var skipaður systkinum Soff-
íu.
Tónleikar Soffíu í Borgarnesi hefj-
ast kl. 20:00 á Sögulofti Landnáms-
setursins í Borgarnesi annað kvöld,
fimmtudaginn 25. október. Aðgangs-
eyrir er kr. 2.000 en enginn posi verð-
ur á staðnum. kgk
Soffía Björg með tónleika
í Landnámssetrinu
Sækir í ríkulegan reynslubanka í bókinni Heiður
-Sólveig Jónsdóttur úr Hvalfjarðarsveit gefur út sína aðra bók
Í bókinni fær lesandinn að kynnast eftirköstum þjóðernisátakanna á Norður-Írlandi.
Sólveig Jónsdóttir sendir frá sér sína aðra bók fyrir jólin. Ljósm.
Rakel Ósk Sigurðardóttir.