Hlynur - 15.07.1986, Qupperneq 24
5. V. 5.
Jón Sígurðarson,
framkvstj. heiðrar
starfsmenn, f.v.:
Valdímar
Thorarensen, 25
ára starf, Baldur
Amgrímsson, 50
ára starf og Kristín
Jónsdóttir, 40 ára
starf
Þegar starfsfólk verksmíðja
Sambandsins fer út að borða
skal nokkuð til. Þetta var þann
19. apríl sl. og dugði ekkert
minna en íþróttahöllin á Akur-
eyri. Þetta var nú líka 50 ára
afmæli og þarna mætti um 700
manns.
íþróttahöllin er mikil bygging
enda þurfti kíkí til að sjá tíl
fjarstu borða. Húsíð var smekk-
lega skreytt og hafði Bjarní
Jónsson formaður SVS og allt
hans lið unnið samhent dag og
nótt að því að gera veisluna
sem best úr garðí en hönnuðir
vom þeir Guðmundur Árnason
og Jóhann Ingímarsson. Baut-
inn sá um veislukostinn og fór
engínn færri en þrjár ferðír að
hlaðborðínu, flestir oftar. En
með ólíkindum var hversu fljótt
gekk að mata allt líðið.
Veislustjóri var Jón Arnþórs-
son. Páll FlYgenríng ráðuneytis-
stjóri mættí í forföllum Alberts
Guðmundssonar iðnaðarráð-
herra. Auk hans fluttu ávörpjón
Sigurðarson, framkvstj. iðnað-
ardeildar sem gaf starfsmanna-
félaginu langt til heila útvarps-
stöð, Þóra Hjaltadóttir, formað-
ur Alþýðusambands Norður-
Iands, Sigurður Jóhannesson,
forseti bæjarstjórnar, Kristín
Hjálmarsdóttír formaður Iðju
félags verksmiðjufólks á Akur-
eyri, Valur Arnþórsson, stjórn-
arformaður Sambandsíns, Páll
Leósson, formaður LÍS, Stefán
Vilhjálmsson, formaður Sf. KEA
og Bjarní Jónsson, formaður
SVS. Kór undír stjórn Árna Ingi-
mundarsonar söng, Birgír Mar-
inósson og kona hans Anna
María Jóhannsdóttir skemmtu
og Bírgir ogjóhann Tr. Sigurðs-
son fluttu annál. Bessi og Ragn-
ar þeír Iandsfrægu skemmtí-
kraftar mættu og haldín var
tískusýníng áranna 1936—
1986. Loks hélt hljómsveít
Pálma Stefánssonar uppi miklu
fjöri fram á nótt.
Eflaust er hér ekki allt upptalíð
sem á samkomunni gerðíst
enda skiptir það ekkí öllu málí
heldur það að starfsfólk verk-
smiðjanna og gestir þeírra
skemmtu sér konunglega enda
er nú bjart framundan hjá iðnaðí
samvínnumanna á Akureyri.
24 HLYNUR