Tímarit Máls og menningar - 01.03.2002, Blaðsíða 48
‘.crr
Ystad, sögusvið Wallander bókanna.
Á þessum uppgangstíma hefur Ordfront að
jafnaði gefið út um það bil þrjátíu titla á ári, ekki
síst verk eftir höfunda sem hvað mest láta að
sér kveða í skapandi menningar- og þjóðmála-
umræðu, jafnt í Svíþjóð sem á alþjóðlegum
vettvangi. Má hér nefna höfunda eins og Mariu
Piu Boéthius, Jesús Alcalá, Joachim heitinn Isr-
ael, Heléne Lööw, Susan Faludi, Noam Chom-
sky, Edward Said, John Pilger, Mörthu Gell-
horn, Svetlönu Aleksijevits, Gittu Sereny og
John Kenneth Galbraith; enn fremur sagnfræð-
ingana Carlo Ginzburg, Aron Gurevits, Nataliu
Zemon Davis, Eric Hobsbawm og Howard
Zinn.
Þá hefur Ordfront gefið út heildarritsafn
Cornelis Vreeswijks í þremur bindum og röð
þrettán handbóka um listina að skrifa,
„skrivandets hantverk" þar sem leiðbeint er
um flestar tegundir textagerðar. Vítt og breitt
um Svíþjóð gengst félagið fyrir námskeiðum og
fyrirlestrum um bókmenntir, heimspeki, þjóð-
mál og handverkið að baki ritlistinni.
Síðast en ekki síst hefur Ordfront staðið
ásamt Guðfræðiháskólanum í Stokkhólmi að
Lýðræðisakademíunni sem gengst fyrir eins
árs námi í mannréttindum á háskólastigi (40
einingar) og námskeiði í lýðræði við Norræna
lýðháskólann í Kungálv í Svíþjóð.
Öll þessi starfsemi, bæði útgáfan og grasrót-
arstarfið, hefur að miklu leyti verið möguleg fyr-
ir tilstilli þeirra félaga, Mankells og Wallanders.
Nú er Wallander sestur í helgan stein og það
sem verra er, Mankell hefur sagt skilið við Ord-
front og stofnað nýtt forlag, Leoparden, í sam-
vinnu við Dan Israel, fyrrum útgáfustjóra Ord-
front og síðar Norstedts.
Fetar hann þar í fótspor fleiri sænskra met-
söluhöfunda, eins og þeirra Jans Guillous, Lizu
Marklund og Marianne Fredriksson sem hafa
stofnað Pirat-forlagið til að gefa út eigin verk.
Margir óttast að þessi þróun geri útgáfu á Ijóða-
bókum og öðrum bókmenntum sem síður selj-
ast erfiðari. En Mankell hefur hins vegar lýst
því yfir að þeir Israel hyggist leggja mikla
áherslu á afrískar og arabískar bókmenntír.
Pílagrímsferðir á slóðir
Wallanders
Ystad er einstaklega fallegur, gamall bær á suð-
austurströnd Skáns. f bænum sjálfum búa rúm-
lega 16.000 manns en um 26.000 í öllu sveitar-
félaginu. Þaðan liggja ferjuleiðir bæði til Borg-
undarhólms og Póllands. En það sem gefur
bænum mestan sjarma er að hann er einhver
best varðveitti miðaldabær Svíþjóðar; óvíða get-
ur að líta jafnheillegar gamlar götumyndir og þar.
Ekki er vitað með vissu hvenær þéttbýli tók
að myndast í Ystad en grábræðraklaustur var
reist á þessum slóðum um miðja 13. öld og
mjög heillegar minjar þess standa enn uppi f
bænum (Sankt Petri kirkja). Einhvers konar ver-
stöð hefur sennilega verið þarna, jafnvel fyrir
daga klaustursins, sem mun síðan hafa vaxið
upp sem síldarpláss í tengslum við Hansaversl-
unina. Pilgrándshúsið sem reist var í byrjun 14.
aldar er talið elsta múrgrindarhús á Norðurlönd-
um.
Fjölmargir áhugaverðir staðir eru einnig í ná-
grenni Ystad, bæði innan sveitarfélagsins og á
Österlen. Þarna er fjöldi rúnasteina og einnig
má sjá fornar skipsetningar þar sem hæst ber
Alesteina við Káseberga. Síðast en ekki síst eru
á þessum slóðum hallir frá 15. og 16. öld, svo
sem Glimmingehus, Krageholm og Marsvins-
holm.
Alesteinar eru taldir vera frá yngri steinöld
(ca. 400-700 e. Kr.) og eru án efa einhverjar
merkilegustu og dularfyllstu fornminjar á öllum
Norðurlöndum, um 67 metra langt og 19 metra
breitt mannvirki samansett úr 59 gríðarstórum
uppreistum steintökum. Er ekki laust við að ný-
aldarhópar hafi viljað leggja ýmiss konar tákn-
ræna merkingu í steinana og gera þá að helgi-
stað sínum ekki ósvipað því sem gerst hefur í
Stonehenge á Englandi.
Það er með öðrum orðum ákaflega margt
Götumynd frá Ystad. Sankti Maríukirkjan í
baksýn.
inn til að byrja með var gömul fjölritunarvél,
ekki ósvipað því sem tíðkaðist kringum útgáfu-
starfsemi Fylkingarinnar og KSML hér á landi
upp úr 1970. Um tíma fluttist starfsemin í
sænsku Smálöndin þar sem hún fór fram í
kommúnubúskap en svo sneri hún aftur til
Stokkhólms 1972.
1988 var svo komið fyrir fyrirtækinu, sem
reyndar hafði alla tíð barist í bökkum, að það
var í raun gjaldþrota. En þá kom bókaútgáfan
Rabén & Sjögren til skjalanna á siðustu stundu
og keypti sig inn í Ordfront fyrir 250.000
sænskar krónur. 1990-91 gerist svo kraftaverk-
ið með tilkomu Wallanders og þetta örlitla, nán-
ast vonlausa bókafélag, vex upp í það að verða
öflug meðalstór bókaútgáfa, nógu stór til að
blöð og tímarit í eigu Bonnierveldisins keppast
við að spá því að illa fari fyrir fyrirtækinu um leið
og Wallanderseríunni lýkur. Árið 1997 keypti
Ordfront Rabén & Sjögren aftur út fyrir 2,2
milljónir sænskra króna.