Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 36
Öðruvísi jólagjafir 18. október 2019KYNNINGARBLAÐ GULLKISTAN: Þjóðbúningasilfur og fleiri skartgripir í jólagjöf Þjóðbúningasilfur samanstendur af því sem fer á búningana. Það eru aðallega millur, borðar og belti, beltispör og slíkt,“ segir Dóra Jónsdóttir, gullsmiður hjá Gullkistunni, en hún hannar meðal annars þá dýrgripi sem prýða íslensku þjóðbúningana. Margt af þessu skarti er með flóknu mynstri og vaknar sú spurning hvort þetta sé ekki mjög vandasöm hönnun. „Þetta er misjafnlega vandasamt, það eru svo mörg mismunandi mynstur en sum eru steypt; það er búið að gera steypuna einfaldari, áður fyrr var sandsteypt og vinnan við það mun seinlegri, en hún er orðin auðveldari með þessari nýju steyputækni sem komið hefur fram á seinni tímum,“ segir Dóra og heldur áfram: „Í víravirkinu er allt mynstur handgert. Sumar millurnar minna á fiðrildi og hafa því verið kallaðar fiðrildamillur,“ bætir Dóra við, en miklu meiri fróðleik má lesa um þetta forna skart á vefsíðunni thjodbuningasilfur.is. Þjóðbúningasilfur í jólapakkann Að sögn Dóru er þjóðbúningasilfur alltaf vinsæl fermingar- og útskriftargjöf fyrir stúlkur sem hafa áhuga á þjóðbúningum. Einnig er stórsniðugt að gefa silfrið í jólagjöf því sumar stúlkur eru svo fermdar í íslenska þjóðbúningnum. Varðveita þekkinguna Aðspurð hvort gamla handverkið sé nokkuð að glatast segir Dóra að það sé síður en svo hætta á því. „Gömlu hefðunum hefur alltaf verið haldið vel við hér á landi. Við höfum haft þónokkra lærlinga hjá okkur sem varðveita þekkinguna og þannig mun handverkið varðveitast áfram um ókomna tíð.“ Ásamt því að vera einn helsti fulltrúi þjóðbúningasilfursins á Íslandi þá sinnir Gullkistan að sjálfsögðu almennri þjónustu við gullsmíði svo sem hreinsun og lagfæringu og framleiðir ýmsa fallega gripi út frá eigin hönnun, enda leikur málmurinn í fagmannlegum höndum Dóru. Dóra hannar þá margs konar aðra fallega skartgripi í ýmsum verðflokkum en hún býr yfir gífurlegri reynslu í faginu. Hún hóf að nema gullsmíði árið 1949, þá 18 ára gömul, og hefur ávallt síðan starfað í faginu, eða í 70 ár. Gullkistan er til húsa að Frakkastíg 10 og hefur verið þar síðan árið 1976. Gullkistan á marga gamalgróna viðskiptavini, en að sögn Dóru eru margir viðskiptavinir hennar Íslendingar búsettir í Noregi. „Það er miklu meiri hefð fyrir notkun þjóðbúninga í Noregi og Íslendingar sem flytjast þangað kynnast þeirri hefð,“ segir Dóra. Þar sem Gullkistan er miðsvæðis koma margir erlendir ferðamenn í verslunina. Að sögn Dóru kaupa þeir sjaldan þjóðbúningasilfur heldur fremur smærri og ódýrari skartgripi. Hins vegar eru útlendingarnir forvitnir um þjóðbúningasilfrið og vilja fræðast um það. Stórglæsileg sýning í Hörpu Þess má geta að Félag íslenskra gullsmiða fagnar 95 ára afmæli á þessu ári og opnar í tilefni þess sýningu næstkomandi laugardag í Hörpu sem mun standa yfir tvær helgar. Á sýningunni verður íslenskt skart frá ýmsum tímum og áhersla er lögð á að sýna hve fjölbreytt handverkið hefur verið hér frá örófi alda. Dóra verður þar með fallega sýningargripi og er öllu áhugafólki um gullsmíði velkomið að kíkja við. Sem fyrr segir er meiri fróðleik að finna á vefsíðunni thjodbuningasilfur.is en áhugasamir eru hvattir til að kíkja í Gullkistuna, Frakkastíg 10, og hver veit nema þar leynist hin fullkomna jólagjöf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.