Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 42
42 18. október 2019
SAKAMÁL
BANVÆN BARNAGÆSLA
n Christine sýndi ung undarlega hegðun n Sá sér farborða með barnapössun n Komst ótrúlega lengi upp með ódæði sín
C
hristine Falling fæddist árið
1963 í Flórída í Bandaríkj-
unum. Foreldrar hennar,
Ann og Thomas Slaught-
er, voru fátækir og mikill aldurs-
munur á þeim, því Ann var 16 ára
og Thomas 65 ára. Ann var yngri
dóttir Slaughter-hjónanna en
sökum örbirgðar voru þær báð-
ar gefnar til ættleiðingar og féllu í
skaut Falling-fjölskyldunnar.
Christine var seinþroska,
glímdi stöðugt við offitu, fékk
tíð flogaveikiköst og var bráð-
lynd og árásargjörn. Að sögn náði
Christine aldrei meiri þroska en
tólf ára barn.
Systurnar voru sífellt upp
á kant við Falling-hjónin og
enduðu að lokum á barnaheim-
ili í Orlando. Þá var Christine níu
ára.
Kattadráp
Eftir á að hyggja má leiða að því lík-
ur að hægt hefði verið að sjá hvað
framtíð Christine bæri í skauti sér.
Hún gerði sér það til dundurs að
fleygja köttum úr banvænni hæð,
til að „sannreyna að þeir ættu
níu líf“. Einnig átti Christine til að
kyrkja ketti, til að sýna þeim „ást“
sína.
Tólf ára að aldri yfirgaf
Christine barnaheimilið og tveim-
ur árum síðar giftist hún 24 ára
gömlum manni.
Skammlíft hjónaband
Hjónabandið stóð alla tíð, í heil-
ar sex vikur, á brauðfótum vegna
ofbeldisfullra átaka hjónanna og
í eitt skipti henti Christine í eig-
inmann sinn níðþungum hljóm-
flutningstækjum. Þá skildi leiðir.
Í kjölfarið varð Christine tíð-
ur gestur á sjúkrahúsum vegna
ýmissa illgreinanlegra veikinda,
sem læknar gátu sjaldnast hent
reiður á og „læknað“. Hvað sem
þeim veikindum leið var ljóst að
andlega gekk Christine ekki heil til
skógar, en gat sér þó gott orð sem
afbragðs barnapía.
Ótrúverðug útskýring
Því varð úr að Christine sá sér far-
borða með því að gæta barna fyrir
nágranna sína og fleira fólk.
Árið 1980 dró til tíðinda.
Þann 28. febrúar dó tveggja ára
stúlka, Cassidy Johnson, á sjúkra-
húsi. Cassidy hafði verið í umsjá
Christine og þremur dögum fyrr
hafði hún verið flutt á sjúkrahús
vegna gruns um alvarlega heila-
bólgu.
Krufning leiddi hins vegar í ljós
að höfuðáverkar voru banamein
Cassidy. Christine sagði að stúlk-
an hefði fallið úr vöggunni og lent
á höfðinu. Útskýring Christine þótti
ekki trúverðug, en ekki var hægt að
færa sönnur á saknæmt athæfi og
ekkert aðhafst frekar.
„Ég hafði þó minn eig-
in hátt á. Einfaldan
og auðveldan. Enginn myndi
heyra þau öskra.
Í fangelsi Christine komst ótrú-
lega lengi upp með barnamorð.