Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 41
PRESSAN 4118. október 2019 Hin fullkomna tilraunaborg n Borgaralaun prófuð í Kaliforníu n Peningurinn fer ekki í vitleysu n Gæti komið borginni úr efnahagslægð krónum, á mánuði í borgara­ laun. Tilraunin í Stockton er hins vegar mun minni en fyrri tilraun­ ir með borgaralaun annars stað­ ar í heiminum þar sem aðeins 125 manns taka þátt. Einnig eru borgaralaunin frekar lág og virka einna helst sem líflína frekar en að þau dekki grunnþarfir þeirra sem taka þátt, líkt og hugmyndin á bak við borgaralaun felur í sér. Talið er að sögu borgaralauna megi rekja aftur til ársins 1516 þegar enski heimspekingurinn og lögfræðingurinn Thomas More skrifaði bókina Útíópía. Þar lýsir hann fullkomnu samfélagi sem er hannað þannig að fólk neyðist ekki til að brjóta af sér vegna fátækt­ ar og ójöfnuðar. Heimspekingur­ inn og rithöfundurinn Thomas Paine lagði hugmyndir sínar um borgara laun síðan fram árið 1797 og tók vangaveltur More skref­ inu lengra. Sagði hann að allir, hvort sem þeir væru ríkir eða fá­ tækir, ættu að fá greiddan arð af sameigin legum auðlindum hvers lands fyrir sig. Sagði hann borg­ aralaun vera náttúrulegan og með­ fædda rétt allra íbúa heimsins. Heimspekingurinn og Nóbels­ verðlaunahafinn Bertrand Russell gaf út bókina Proposed Roads to Freedom: Social ism, Anarchism and Syndicalism árið 1918. Í þeirri bók kom fram hugmynd að algildri grunnframfærslu sem er nánast eins og hugmyndin á bak við borg­ aralaun er skilgreind í dag. Um­ ræðan um borgaralaun náði há­ marki í Bandaríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar þegar tólf hundruð hagfræðingar skoruðu á Bandaríkjaforseta að skoða upp­ töku borgaralauna þar í landi. Mistókst hjá Finnum Í Evrópu hefur verið vaxandi um­ ræða um borgaralaun frá alda­ mótum, þar á meðal á Íslandi. Píratar hafa hvað mest vakið máls á hugmyndinni og kemur meðal annars fram í þingsálykt­ unartillögu Píratans Halldóru Mogen sen að borgaralaun upp­ ræti innbyggðan ójöfnuð. Í hug­ myndum Pírata á að fjármagna borgarlaun með arði af auðlind­ um landsins. „Skilyrðislaus grunnfram­ færsla er hugmynd að kerfi sem ætlað er að leysa almanna­ tryggingakerfið af hólmi eða í það minnsta einfalda það verulega, gera það réttlátara og sömuleiðis uppræta ákveðinn innbyggðan ójöfnuð í samfélaginu. Þetta er framkvæmt með því að greiða hverjum og einum borgara fjár­ hæð frá ríkinu óháð atvinnu eða öðrum tekjum,“ segir í tillögunni. Í umræðunni um borgaralaun á Íslandi var oft horft til Finna, en tveggja ára borgaralaunaverkefni þar í landi hófst í janúar árið 2017. Í apríl í fyrra var staðfest að til­ raunin myndi ekki vara lengur en þessi tvö ár og fyrr á þessu ári voru bráðabirgðaniðurstöður úr verk­ efninu birtar af finnsku trygginga­ stofnuninni Kela. Þær sýndu svart á hvítu að verkefnið hefði mis­ tekist. Í Finnlandi var gengið út frá því að tekjuöryggið sem borg­ aralaunin myndu skapa, leiddi til þess að einstaklingar fyndu hjá sér hvata til að stofna til eigin reksturs eða verktöku. Alls fengu tvö þúsund atvinnulausir Finnar greiddar um 75 þúsund krónur á mánuði í eitt ár. Til að gera langa sögu stutta þá kom í ljós að þeir sem voru á borgaralaunum höfðu verið í vinnu í 49,6 daga að meðal­ tali, en þeir sem ekki voru á borg­ aralaunum voru í vinnu 49,3 daga að meðaltali. Atvinnuþátttakan var því 0,8 prósentum meiri hjá þeim sem voru á borgaralaunum, sem voru vonbrigði þeirra sem sáu um þetta tilraunaverkefni. Ef litið er hins vegar til þorps­ ins Otjivero í Namibíu er sagan önnur. Þar var gerð tveggja ára til­ raun með borgaralaun sem hófst árið 2007. Í þorpinu var gríðarleg fátækt, atvinnuleysi og há glæpa­ tíðni. Niðurstöður tilraunarinnar sýndu að tilkynntum glæpum til lögreglu fækkaði um tæp 37 pró­ sent. Þá féll hlutfall vannærðra barna úr 42 prósentum í 10 pró­ sent og brottfall úr skólum minnk­ aði um rúm fjörutíu prósent. At­ vinnuleysi fór úr 60 prósentum í 45 prósent og atvinnuþátttaka jókst. Einnig var fjöldi nýrra fyrir­ tækja stofnaður á þessum tveimur árum, en það er einmitt eitt af því sem hugmyndafræðin á bak við borgaralaun snýst um – að auka nýsköpun. Einhverjar efasemdir Vonir eru bundnar við verkefnið í Stockton, ekki síst því það gæti minnkað kvíða fólks og almennt aukið lífsgæði þess. Tíminn verð­ ur að leiða í ljós hver raunveru­ leg áhrif borgaralauna hefur í borginni. Jesse Rothstein, pró­ fessor við Berkley­háskóla, hefur sínar efasemdir. „Ég held að SEED geti ekki svarað þeim spurningum sem við teljum mikilvægar varðandi borgaralaun,“ segir hann í sam­ tali við Huffington Post. Bætir hann við að hann telji að til­ raunin í Stockton geti ekki gefið rétta mynd um hvað borgaralaun kosti samfélagið, en leiðin hefur í gegnum tíðina verið talin dýrari en að halda úti velferðarkerfi. n „Fólk heldur að þeir sem fái þessa peninga vinni ekki. Að þeir noti þá í dóp og áfengi, í að kaupa falleg föt og svoleiðis. En ég nota þessa peninga í fjölskyldu mína. Borgaralaun til bjargar? Athyglisvert verður að sjá lokaniðurstöður tilraunarinnar. Þungur róður Stockton varð stærsta borg Bandaríkj- anna til að verða gjaldþrota eftir efnahagshrunið. M Y N D : G ET T Y IM A G ES M Y N D : G ET T Y IM A G ES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.