Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 40
40 PRESSAN 18. október 2019 Hin fullkomna tilraunaborg n Borgaralaun prófuð í Kaliforníu n Peningurinn fer ekki í vitleysu n Gæti komið borginni úr efnahagslægð B orgin Stockton í Kaliforníu hefur verið að fikra sig áfram með hugmyndina um borgaralaun síðan í febrúar á þessu ári. 125 íbúar sem þéna undir meðallaunum í borginni hafa fengið fimm hund­ ruð dollara á mánuði, rúmlega sextíu þúsund krónur, til að eyða í það sem þeir vilja. Eins og áður segir tilheyrir þetta fólk tekju­ lægsta hópnum í Stockton, en meðallaun í borginni eru 46 þús­ und dollarar á ári, rétt tæplega sex milljónir króna. Þetta verkefni hefur verið kallað Stockton Economic Empowerment Demonstration, eða SEED, en gengur í stórum dráttum út á hugmyndina um borgaralaun, þá hugmynd að óbreyttir borgarar fái mánaðar­ legar greiðslur án kvaða frá hinu opinbera. Tilgangurinn er að létta fjárhagsáhyggjur borgara og bæta líkamlega og andlega heilsu. Mest fer í mat Áætlað er að verkefnið verði próf­ að í átján mánuði og nú, átta mánuðum eftir að það hófst, eru fyrstu vísbendingar um afrakstur­ inn komnar í ljós. Þessir fimm hundrað dollarar eru millifærðir inn á debetkort einstaklinganna og því getur hið opinbera fylgst að miklu leyti með í hvað peningur­ inn fer. Af þessum 125 manneskj­ um sem fá borgaralaun eru 43 prósent útivinnandi og 20 pró­ sent öryrkjar og ekki í vinnu. Að­ eins 2 prósent eru atvinnulaus en 11 prósent hafa börn eða aldraða ættingja á framfæri. Samkvæmt niðurstöðum opin bers eftirlits fer stór partur af borgaralaununum, eða 40 pró­ sent, í mat. Tæplega 12 prósent af laununum fara í reikninga og 9 prósent í útgjöld tengd rekstri bif­ reiðar. Um 24 prósentum er eytt í alls kyns varning í stórmörkuð­ um. Rest fer í skemmtun, læknis­ heimsóknir og tryggingar. Það sem skekkir niðurstöðurnar eitt­ hvað er að 40 prósent af launun­ um voru tekin út í hraðbanka eða færð á annan reikning. Því treysta eftirlitsmenn á skýrslur þeirra borgara sem taka þátt til að átta sig fyllilega á því í hvað peningur­ inn fer. Borgin varð gjaldþrota Það má segja að Stockton sé full­ komin tilraunaborg fyrir verkefni eins og borgaralaun, því mið­ ur. Um þrjú hundruð þúsund manns búa í borginni, sem er í nokkurra klukkustunda aksturs­ fjarlægð frá glamúrnum og auðn­ um í Silíkondalnum. Samfélag­ ið í Stockton samanstendur af ýmsum kynþáttum og er talið að rúmlega 22 prósent íbúa lifi undir fátæktarmörkum, helmingi fleiri en meðaltalið yfir öll Bandaríkin, þar sem talið er að rúmlega 11 prósent lifi undir fátæktarmörk­ um að meðaltali. Þá eru með­ allaun rúmlega milljón lægri í Stockton en meðallaun í Banda­ ríkjunum. Stockton fór afar illa út úr efnahagshruninu og meðfylgj­ andi hruni á húsnæðismarkaðn­ um. Voru borgaryfirvöld sök­ uð um óráðsíu í fjármálum og árið 2012 varð Stockton stærsta borgin í Bandaríkjunum til að verða gjaldþrota. Borgin hef­ ur náð sér að einhverju leyti upp úr efnahagslægðinni en stendur samt sem áður afar illa. Baráttan við fordóma Niðurstöður þessa tilraunaverk­ efnis með borgaralaun sýna að fordómar fólks gagnvart borgara­ launum eru ekki á rökum reistir. Margir hafa haldið því fram að tekjulágir einstaklingar sem fá borgaralaun eyði þeim að mestu leyti í vímuefni. Það er ekki raun­ in í Stockton. Michael Tubbs, borgarstjóri Stockton, segir í samtali við Huffington Post að verk efnið sé mikilvægt í bar­ áttunni gegn þessum fordómum. „Við glímum við þann vanda í þessu landi að fólk sem berst í bökkum fjárhagslega, sem og litað fólk, er tengt við lesti eins og fíkniefna­ og áfengisnotkun og spilafíkn. Mér fannst mikilvægt að sýna að fólk notar ekki pen­ ingana í það. Það notar pening­ ana í brýnustu nauðsynjar,“ segir Tubbs í samtali við Huffington Post. Lorrine Paradela, ein af þeim sem fá borgaralaunin í Stockton, segir í samtali við CityLab að peningarnir hafi hjálpað henni að safna fyrir útborgun í nýjan bíl og afborganir á trygging­ um. Hún segir hins vegar enn ríkja mikla fordóma í garð fólks sem treystir á fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. „Fólk heldur að þeir sem fái þessa peninga vinni ekki. Að þeir noti þá í dóp og áfengi, í að kaupa falleg föt og svoleiðis. En ég nota þessa pen­ inga í fjölskyldu mína,“ segir hún. Stacia Martin­ ­West, aðstoðarpró­ fessor í Háskól­ anum í Tennessee og einn af eftirlits­ aðilunum í verkefninu um borgara laun, segir þetta þrautseiga mýtu. „Stóra ranghugmyndin er sú að fólk sem er í fjárhagskröggum taki slæmar ákvarðanir er varða fjár­ haginn. En ég held að ef við horf­ um á þessi gögn þá sjáum við fólk sem berst í bökkum en for­ gangsraðar og tekur skynsamar ákvarðanir um hvar peningunum er best varið,“ segir Martin­West í samtali við Huffington Post. Aldagömul hugmynd Þó að hugmyndin um borgara­ laun sé ekki ný af nálinni ríkir mikil eftirvænting um verkefnið í Stockton og lokaniðurstöð­ urnar að loknum þessum átján mánuðum. Ef niðurstöðurn­ ar eru jákvæðar gæti þetta gefið hugmyndinni um borgaralaun byr undir báða vængi, en borg­ aralaun eru eitt stærsta kosn­ ingamál demókratans Andrews Yang, sem gælir við forsetafram­ boð, og lofar hann hverjum ein­ asta Bandaríkjamanni þúsund dollurum, rúmlega 120 þúsund Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Ýmislegt gengið á Í Stockton búa um þrjú hundruð þúsund manns. Vongóður borgarstjóri Michael Tubbs bindur mikla vonir við borgaralaun. M Y N D : W IK IM ED IA C O M M O N S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.