Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 34
Haustfrí fjölskyldunnar... við mælum með Suðurlandi! Hefur fjölskyldan skellt sér saman í hellaferð eða á kajak? Suðurland býður upp á spennandi upplifun og ævintýralega skemmtun fyrir alla fjölskylduna í haustfríinu. Úr mörgu er að velja í afþreyingu hvort sem það er gönguferð um skóga eða svartar fjörur, hestaferð með heimafólki, fræðsla í gróðurhúsi, jöklaferðir eða heimsókn í sundlaugar á svæðinu. Söfnin eru fjölmörg og víða áhugaverðar sýningar í boði fyrir alla fjölskylduna. Suðurland er einstakur áfangastaður og hefur í raun og veru allt sem Ísland hefur upp á að bjóða, svo sem fossa, fjöll, jökla, eyðisanda, jarðhitann og hraunið. Á Suðurlandi er gott aðgengi, stutt í náttúruperlur og ótrúlega margt í boði á litlu svæði, allt frá hálendi niður að sjó. Suðurland er sannarlega ekki síður fyrir Íslendinga en erlenda ferðamenn. Með því að ferðast um heimabyggð styrkjum við þjónustu og afþreyingu sem er í boði á okkar svæði og stuðlum að því að sú þjónusta verði áfram í boði bæði fyrir heimamenn og gesti. Jákvæð áhrif ferðaþjónustunnar birtast m.a. á Suðurlandi með því að núna er hægt að fara á fjölda framúrskarandi veitinga- og kaffihúsa, upplifa fjölbreytta afþreyingu og auðvelt er að finna gistingu fyrir alla fjölskylduna s.s. íbúðir, gistihús, bændagistingu, hótel o.fl.. Með tilkomu ferðamanna til landsins er orðin möguleiki fyrir fyrirtæki að reka þessa þjónustu allt árið um kring. Heimamenn njóta síðan góðs af og er kjörið tækifæri að nýta sér þjónustuna í haust- og vetrarfríum og njóta upplifunar í heimabyggð. Til þess að tryggja að upplifun af ferðinni sé sem allra best er gott að skipuleggja ferðalagið vel þegar ferðast er að hausti til eða vetri hvort sem hugað er að gistingu, veitingum eða afþreyingu. Ferðaþjónustuaðilar verða með ýmis tilboð með sérstakri áherslu á fjölskylduna í haustfríinu, dagana 17-29. október og 13.-18. nóvember. Nánari upplýsingar um tilboðin og hugmyndir að því sem fjölskyldan getur gert og notið saman á Suðurlandi er á heimasíðu Markaðsstofu Suðurlands, south.is Allar nánari upplýsingar má finna á viðburðadagatali south.is, www.south. is/is/hvad-a-ad-gera/vidburdir HAUSTFRÍ FJÖLSKYLDUNNAR Á SUÐURLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.