Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 34
Haustfrí fjölskyldunnar... við
mælum með Suðurlandi!
Hefur fjölskyldan skellt sér saman í hellaferð eða á kajak? Suðurland býður upp á spennandi upplifun
og ævintýralega skemmtun fyrir alla
fjölskylduna í haustfríinu. Úr mörgu er
að velja í afþreyingu hvort sem það er
gönguferð um skóga eða svartar fjörur,
hestaferð með heimafólki, fræðsla í
gróðurhúsi, jöklaferðir eða heimsókn
í sundlaugar á svæðinu. Söfnin eru
fjölmörg og víða áhugaverðar sýningar
í boði fyrir alla fjölskylduna. Suðurland
er einstakur áfangastaður og hefur í
raun og veru allt sem Ísland hefur upp
á að bjóða, svo sem fossa, fjöll, jökla,
eyðisanda, jarðhitann og hraunið.
Á Suðurlandi er gott aðgengi, stutt í
náttúruperlur og ótrúlega margt í boði á
litlu svæði, allt frá hálendi niður að sjó.
Suðurland er sannarlega ekki síður
fyrir Íslendinga en erlenda ferðamenn.
Með því að ferðast um heimabyggð
styrkjum við þjónustu og afþreyingu
sem er í boði á okkar svæði og stuðlum
að því að sú þjónusta verði áfram í boði
bæði fyrir heimamenn og gesti. Jákvæð
áhrif ferðaþjónustunnar birtast m.a. á
Suðurlandi með því að núna er hægt að
fara á fjölda framúrskarandi veitinga- og
kaffihúsa, upplifa fjölbreytta afþreyingu
og auðvelt er að finna gistingu fyrir
alla fjölskylduna s.s. íbúðir, gistihús,
bændagistingu, hótel o.fl.. Með tilkomu
ferðamanna til landsins er orðin möguleiki
fyrir fyrirtæki að reka þessa þjónustu allt
árið um kring. Heimamenn njóta síðan
góðs af og er kjörið tækifæri að nýta sér
þjónustuna í haust- og vetrarfríum og
njóta upplifunar í heimabyggð.
Til þess að tryggja að upplifun af
ferðinni sé sem allra best er gott að
skipuleggja ferðalagið vel þegar ferðast
er að hausti til eða vetri hvort sem hugað
er að gistingu, veitingum eða afþreyingu.
Ferðaþjónustuaðilar verða með ýmis
tilboð með sérstakri áherslu á fjölskylduna
í haustfríinu, dagana 17-29. október og
13.-18. nóvember. Nánari upplýsingar
um tilboðin og hugmyndir að því
sem fjölskyldan getur gert og notið
saman á Suðurlandi er á heimasíðu
Markaðsstofu Suðurlands, south.is
Allar nánari upplýsingar má finna á
viðburðadagatali south.is, www.south.
is/is/hvad-a-ad-gera/vidburdir
HAUSTFRÍ
FJÖLSKYLDUNNAR
Á SUÐURLANDI