Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 49
FÓKUS - VIÐTAL 4918. október 2019
Þ
að eru örugglega alls kon-
ar greiningar í gangi hjá
mér sem kæmu í ljós ef ég
myndi láta tékka á þeim.
Ég er alltaf mjög orkumikill og
hef verið þannig síðan í æsku.
Ég sé sjálfan mig rosalega mikið
í fimm ára dóttur minni. Hún vill
alltaf fara í búninga og við erum
bæði með leikrit á fullu. Það þarf
alltaf að vera eitthvað í gangi,“
segir grínistinn Steinþór Hróar
Steindórsson, þekktur af góðum
landsmönnum sem Steindi Jr.
Grínistinn og framleiðandinn
hefur verið sérlega áberandi upp
á síðkastið vegna sjónvarpsþátt-
anna Góðir landsmenn. Í næstu
viku frumsýnir hann svo „gay
vampírumyndina“ Þorsta, sem
unnin er í samstarfi við áhuga-
mannaleikhópinn X og Hjört
Sævar Steinason, en fyrr nefndir
þættir hafa sýnt í grófum dráttum
frá óvenjulegri tilurð, fjármögn-
un og sköpun bíómyndarinnar.
Steindi er nýr gestur Föstudags-
þáttarins Fókuss og segir þar frá
svefnlausum dögum framleiðslu-
ferlisins, því sem knýr hann áfram
og listinni að slaka á með góðum
símahrekk.
Þakklátt djöflasýrunni
Þorsti er fyrsta kvikmyndin sem
Steindi framleiðir og jafnframt
„fyrsta alvöru íslenska B-myndin“
að hans sögn. Myndin fjallar um
Huldu, konu sem er grunuð um
að hafa valdið dauða bróður síns
og er því til rannsóknar hjá lög-
reglu. Eftir að hafa verið sleppt
úr varðhaldi rekst Hulda rekst á
mörg þúsund ára gamla, einmana
og samkynhneigða vampíru,
sem leikin er af Hirti, sem hjálp-
ar henni að vekja bróður hennar
til lífs aftur. Þá magnast farsinn
þegar óvinir nálgast úr öllum átt-
um og þar á meðal óhugnanlegur
sértrúarsöfnuður.
Steindi telur þetta vera hrein-
ræktaða stemningsmynd, gerða
til að bæta lit í einsleitt úrval í
kvikmyndahúsum. „Þegar ég fer í
bíó í dag liggur við að það sé stór
ákvörðun. Önnur hver mynd í
dag er tveir og hálfur tími eða þrír
klukkutímar og fylgir því heilmik-
ið skipulag í kringum það. Þorsti
er ekki nema 85 mínútur og er
ekta svona mynd sem þú getur átt
stemningu yfir með félögunum,“
segir Steindi og tekur fram að ein-
faldar afþreyingarmyndir vanti í
íslenska kvikmyndagerð.
„Venjuleg íslensk bíómynd
kostar heilmikið. Maður skilur
að það sé ekki hægt að fá þenn-
an aur til baka með einungis bíó-
aðsókn. Það þarf að leita í styrki
erlendis og þá kemur danskt eða
pólst „krú“ í huga. Auðvitað skil-
ur maður þetta, þetta er rosalega
dýrt og peningarnir þurfa að skila
sér. Mér finnst samt líka vanta
kvikmynd sem er hrein skemmt-
un. Það er ekki verið að eltast við
endurgerðir eða sýningarétt eða
verðlaun,“ segir hann. „Ég held
að fólk verði þakklátt fyrir að fá
alvöru djöflasýru.“
Í fimmta gír
Steindi segir Góða landsmenn
og Þorsta vera eitt verk í hans
huga, þótt hvort tveggja séu sjálf-
stæð verk. Framleiðsluferli kvik-
myndarinnar hefur annars vegar
verið óvenjulega hratt og hafa
Steindi og hans teymi verið í
kappi við klukkuna til að skila
fullkláruðu verki í kvikmyndahús
á tilsettum tíma.
„Þetta varð miklu stærra allt
en það átti að verða. Ég er þó
ógeðslega ánægður að sú hafi
orðið raunin. Ég er búinn að vera
í fimmta gír, stanslaust, og ég held
að þetta sé þannig að um leið og
ég slaka á þá dey ég. Þetta er auð-
vitað bara törn og fer sem betur
fer að ljúka, en svo fer ég á heilsu-
hæli í tvær vikur og tek því rólega
þar,“ segir Steindi. „Við urðum að
standa við þessa dagsetningu,
annars hefði myndin ekki verið
sýnd.“
Lokaþátt Góðra landsmanna
eiga Steindi og teymið enn eftir að
klára og fer hann í loftið daginn
á undan frumsýningu myndar-
innar, en hópnum tókst að skila
af sér Þorsta aðfaranótt föstu-
dags. „Réttar sagt var myndin í
raun tekin af okkur, en ég held að
það sé fínt. Þegar fólk er farið að
vinna of lengi í einhverju fer það
í alls konar hringi með verkefnið,
það fer að hata verkefnið eða vill
ekki leyfa neinum að sjá,“ segir
Steindi.
Hinn fullkomni símahrekkur
Steindi segir nauðsynlegt að
kúpla sig frá eftir strembnar tarn-
ir. Þá þykir honum gaman að hitta
félaga sína með það að markmiði
að rúnta og gera símaat. „Ég á
mjög skemmtilegan vinahóp í
Mosfellsbæ, sem eru fyndnustu
menn á jörðinni. Þótt ég sé sjálf-
ur 34 ára gamall, og við félagarn-
ir það allir, þá erum við búnir að
fullkomna símaat alveg gjörsam-
lega,“ segir Steindi.
„Við fundum hinn fullkomna
símahrekk, sem gengur þannig
fyrir sig að við eltum pítsusendil
og sjáum nákvæmlega hvert hann
fer. Svo flettum við upp nágrönn-
um manneskjunnar sem pantaði
sér pítsuna og hringjum í þá. Þá
segjumst við vera fólkið í næsta
húsi, þykjumst vera sá sem pant-
aði og segjum: „Heyrðu, við erum
með heila sextán tommu pítsu,
vilt þú ekki bara sleppa því að
elda í kvöld og ná í nokkrar sneið-
ar hérna hinum megin?“
Fólki finnst þetta náttúrulega
bara geggjað boð. Það heldur
kannski í fyrstu að það sé verið að
fokka í því, en það gengur yfirleitt
síðan í næsta hús. Það bankar svo
á dyrnar og þá mætir því auðvitað
þessi gífurlega pítsulykt og allar
efasemdir hverfa,“ segir Steindi.
„Þetta verður svo óþægilegt
og við félagarnir liggjum við bíl-
rúðuna. Þá heyrir maður ná-
grannann droppa línuna: „Hvað
segirðu? Er ekki til eitthvað
auka?“.“
Þá segir Steindi að þeir fé-
lagarnir séu með „plan B“ ef þessi
hrekkur klikkar. „Þá hringjum
við í gaurinn sem pantaði píts-
una og segjum: „Þetta er gaurinn
í næsta húsi. Heyrðu, við erum
með börnin og sáum pítsubílinn,
ekki væri séns að fá eina sneið yfir
til að róa þau?“ Ég hef séð mann
ganga yfir í næsta hús, í grenjandi
rigningu, haldandi á pítsusneið
og banka,“ segir Steindi. n
Þáttinn má finna í heild sinni
á DV.is
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Góðir landsmenn
„Þetta varð miklu stærra
allt en það átti að verða.“
Blóðugur Hjörtur
Hjörtur Steinason sýnir
tennurnar í Þorsta.
Steindi pústar „Þetta verður
svo óþægilegt og við félagarnir
liggjum við bílrúðuna.“