Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 18. október 2019
opinberanir í bók Eltons
Tónlistarmaðurinn Elton John fer yfir ævi sína í bókinni Me og hikar ekki við að opna sig upp
á gátt um skrautlegt lífshlaup sitt. DV kíkti á tíu áhugaverðar opinberanir úr bókinni.
Í bókinni segir Elton að móð-
ir hans, Sheila, hafi tileink-
að sér afar óhefðbundnar
uppeldisaðferðir. Hann rifj-
ar upp eina stund í bókinni
þegar að móðir hans lagði
hann á grúfu á borðflöt í eld-
húsinu og „stakk sápu upp í
rassgatið“ á tónlistarmannin-
um til að laga hægðatregðu.
„Ég var logandi hræddur við
hana svo árum skipti,“ bætir
tónlistarmaðurinn við. Síðar
í bókinni kallar hann móður
sína, sem lést árið 2017, sið-
blinda. Þá var samband hans
við föður sinn, Stanley, ekkert
til að hrópa húrra fyrir. Hann
segir að Stanley hafi aldrei
verið samþykkur frama son-
ar síns í tónlistinni og segist
Elton „enn vera að sanna mig
fyrir honum þó hann hafi ver-
ið dáinn síðan árið 1991.“
Elton reyndi að fremja sjálfsvíg árið 1975. Þá tók
hann of stóran skammt af valíum og henti sér í
sundlaug fyrir framan fjölskyldu sína. Þetta at-
riði er leikið eftir í kvikmyndinni Rocketman.
Hann reyndi hins vegar fyrst sjálfsvíg sjö árum
áður. Þá setti hann kodda inn í ofn svo hann
gæti hvílt sig, skrúfaði frá gasinu og opnaði eld-
húsgluggana. Sem betur kom tónlistarmaður-
inn Bernie Taupin að honum og bjargaði hon-
um. Atvikið varð innblástur að laginu Someone
Saved My Life Tonight frá árinu 1975.
Þegar Elton var að taka upp plötuna Cari-
bou árið 1974 gekk hann inn á kærasta
sinn og umboðsmann, John Reid, þar sem
þeir athöfnuðu sig með röri og hvítu dufti.
„Ég spurði hvaða áhrif þetta hefði og hann
sagði: Þetta lætur þér líða vel. Þannig að ég
spurði hvort ég mætti fá og hann sagði já,“
rifjar Elton upp. Eftir að hafa fengið sér eina
línu af kókaíni hljóp tónlistarmaðurinn á
salernið og kastaði upp. „Þá fór ég strax aft-
ur inn í herbergið og bað um aðra línu.“
Þegar ástarsambandi Eltons og Johns Reid var lokið varð
Elton sífellt nánari Renate Blauel. „Oftar en einu sinni
hugsaði ég um að hún væri allt sem ég hefði viljað í konu
hefði ég verið gagnkynhneigður,“ segir Elton í bókinni. Eitt
kvöld árið 1984 fór Elton á skeljarnar og bað Renate um að
giftast honum, þó að það hefði ekkert gerst á milli þeirra.
Þau höfðu aldrei kysst. Þau giftu sig tveimur vikum seinna
en á brúðkaupsnóttinni ræddu þau um skilnað og lofuðu
að „tala aldrei opinberlega um hjónabandið.“ Þau skildu í
mesta bróðerni árið 1988.
Barátta Eltons við fíkn og lotugræðgi náði hámarki árið 1990. Allir
í kringum hann sáu hvert stefndi, þar á meðal Bob Dylan og Ge-
orge Harrison, en sá síðarnefndi hellti sér yfir hann í partíi í Los
Angeles. Stuttu síðar sneri Elton aftur til London og læsti sig inni í
húsi sínu í tvær vikur, tók kókaín og drakk víski og horfði viðstöðu-
laust á klám. „Ég fór ekki í bað, ég klæddi mig ekki. Ég sat og runk-
aði mér í náttslopp sem var útataður í minni eigin ælu,“ rifjar hann
upp. Hann ákvað loks að fara í meðferð og kvaddi kókaín eftir
sextán ár í neyslu. Hann hefur verið edrú í 29 ár.
Eftir meðferðina vann Elton
í því að ná fyrri frama í tón-
listinni. Hann fékk þá tæki-
færi til að sjá um tónlistina
í teiknimyndinni Lion King,
sem frumsýnd var árið 1994.
„Ég væri að ljúga ef ég segði
að ég hefði aldrei haft efa-
semdir um verkefnið eða
hlutverk mitt í því,“ skrifar
hann. Lokaútkoman var stór-
góð og vann Elton Óskarinn
fyrir lagið Can You Feel the
Love Tonight? Disney bauð
honum annan samning strax
í kjölfarið. „Það var sturlað-
ur peningur,“ skrifar hann.
„Þeir vildu að ég þróaði fleiri
kvikmyndir, sjónvarpsþætti
og bækur. Það var meira að
segja minnst á skemmtigarð.
Ég hafnaði samningum hins
vegar eftir mikla umhugsun.“
Einn af vinum Eltons bauð honum út að borða
árið 1993 svo tónlistarmaðurinn gæti hitt aðra
samkynhneigða karlmenn. „Sá eini sem virk-
aði ekkert svakalega glaður að vera þarna var
kanadískur náungi í Armani-jakka. Hann hét
David,“ skrifar Elton er hann rifjar upp fyrstu kynni
hans og eiginmanns hans, Davids Furnish. „Hann
var greinilega feiminn og sagði ekki mikið,
sem mér fannst synd því hann
var mjög myndarlegur.“ Dav-
id og Elton byrjuðu saman
stuttu síðar og eru í dag
hjón og eiga tvö börn.
Elton ljóstrar upp ýmsu um vina-
sambönd sín í bókinni. Hann er
til dæmis sponsor Eminem í AA
og tjáir sig um áhyggjur sínar um
Michael Jackson heitinn og áhrifin
sem lyfseðilsskyld lyf höfðu á
hann. Elton trúir því að hann hafi
„gengið af göflunum“ síðustu ár
ævinnar. Elton skrifar einnig um
náið samband sitt við Díönu pr-
insessu og segir hana aldrei hafa
minnst á Karl Bretaprins með
nafni. Hún kallaði hann alltaf eig-
inmann sinn. Þá fer Elton ofan í
saumana á óvild sinni í garð Tinu
Turner og segir hana „andskotans
martröð“ að vinna með. Eitt sinn á
hann að hafa sagt henni að „stinga
þessu helvítis lagi upp í rassinn.“
David og Elton létu gefa sig
borgara lega saman árið 2005
á fyrsta deginum sem það var
löglegt í Englandi. Stórstjörn-
ur mættu í veisluna en móðir
Eltons skyggði á gleðina. „Móðir
mín hafði sagt foreldrum Davids
að þau yrðu öll að vinna saman
til að stöðva vígsluna. Hún var
ekki samþykk því að tveir menn
gengju í hjónaband,“ skrifar Elton
og bætir við að þetta hafi komið
honum á óvart því móðir hans
hafi „aldrei verið hommahatari“
og veitti stuðning þegar hann
kom út úr skápnum.
Elton segir í fyrsta sinn frá
því í Me að hann hafi verið
greindur með krabbamein
í blöðruhálskirtli árið 2017
þegar hann var að skipu-
leggja tónleikaferðalag.
Læknarnir greindu meinið
snemma og gáfu honum tvo
valkosti: skurðaðgerð þar
sem blöðruhálskirtillinn
yrði fjarlægður eða löng og
ströng lyfjameðferð. Elton
valdi aðgerðina, sem gekk
vel og steig Elton á svið í
Las Vegas aðeins tíu dög-
um síðar. Stuttu seinna
varð hann veikur og var
þá kominn með sýk-
ingu. Læknarnir sögðu
David að Elton hefði
verið sólarhring frá því
að deyja. Elton var út-
skrifaður af sjúkra-
húsi ellefu dögum
seinna og þurfti að
jafna sig í sjö vikur.
„Ég var ekki tilbúinn
að deyja strax.“
Hann var ekki
náinn foreldrum
sínum
Ældi á kókaíni Reyndi sjálfsvíg tvisvar
Mamman ekki sátt
Hafnaði
Disney
Vinasamböndin Baráttan við
krabbamein
Datt í það fyrir meðferð
Feiminn og myndarlegur
Ekki ástfanginn af eiginkonunni
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is