Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 46
46 FÓKUS 18. október 2019 opinberanir í bók Eltons Tónlistarmaðurinn Elton John fer yfir ævi sína í bókinni Me og hikar ekki við að opna sig upp á gátt um skrautlegt lífshlaup sitt. DV kíkti á tíu áhugaverðar opinberanir úr bókinni. Í bókinni segir Elton að móð- ir hans, Sheila, hafi tileink- að sér afar óhefðbundnar uppeldisaðferðir. Hann rifj- ar upp eina stund í bókinni þegar að móðir hans lagði hann á grúfu á borðflöt í eld- húsinu og „stakk sápu upp í rassgatið“ á tónlistarmannin- um til að laga hægðatregðu. „Ég var logandi hræddur við hana svo árum skipti,“ bætir tónlistarmaðurinn við. Síðar í bókinni kallar hann móður sína, sem lést árið 2017, sið- blinda. Þá var samband hans við föður sinn, Stanley, ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hann segir að Stanley hafi aldrei verið samþykkur frama son- ar síns í tónlistinni og segist Elton „enn vera að sanna mig fyrir honum þó hann hafi ver- ið dáinn síðan árið 1991.“ Elton reyndi að fremja sjálfsvíg árið 1975. Þá tók hann of stóran skammt af valíum og henti sér í sundlaug fyrir framan fjölskyldu sína. Þetta at- riði er leikið eftir í kvikmyndinni Rocketman. Hann reyndi hins vegar fyrst sjálfsvíg sjö árum áður. Þá setti hann kodda inn í ofn svo hann gæti hvílt sig, skrúfaði frá gasinu og opnaði eld- húsgluggana. Sem betur kom tónlistarmaður- inn Bernie Taupin að honum og bjargaði hon- um. Atvikið varð innblástur að laginu Someone Saved My Life Tonight frá árinu 1975. Þegar Elton var að taka upp plötuna Cari- bou árið 1974 gekk hann inn á kærasta sinn og umboðsmann, John Reid, þar sem þeir athöfnuðu sig með röri og hvítu dufti. „Ég spurði hvaða áhrif þetta hefði og hann sagði: Þetta lætur þér líða vel. Þannig að ég spurði hvort ég mætti fá og hann sagði já,“ rifjar Elton upp. Eftir að hafa fengið sér eina línu af kókaíni hljóp tónlistarmaðurinn á salernið og kastaði upp. „Þá fór ég strax aft- ur inn í herbergið og bað um aðra línu.“ Þegar ástarsambandi Eltons og Johns Reid var lokið varð Elton sífellt nánari Renate Blauel. „Oftar en einu sinni hugsaði ég um að hún væri allt sem ég hefði viljað í konu hefði ég verið gagnkynhneigður,“ segir Elton í bókinni. Eitt kvöld árið 1984 fór Elton á skeljarnar og bað Renate um að giftast honum, þó að það hefði ekkert gerst á milli þeirra. Þau höfðu aldrei kysst. Þau giftu sig tveimur vikum seinna en á brúðkaupsnóttinni ræddu þau um skilnað og lofuðu að „tala aldrei opinberlega um hjónabandið.“ Þau skildu í mesta bróðerni árið 1988. Barátta Eltons við fíkn og lotugræðgi náði hámarki árið 1990. Allir í kringum hann sáu hvert stefndi, þar á meðal Bob Dylan og Ge- orge Harrison, en sá síðarnefndi hellti sér yfir hann í partíi í Los Angeles. Stuttu síðar sneri Elton aftur til London og læsti sig inni í húsi sínu í tvær vikur, tók kókaín og drakk víski og horfði viðstöðu- laust á klám. „Ég fór ekki í bað, ég klæddi mig ekki. Ég sat og runk- aði mér í náttslopp sem var útataður í minni eigin ælu,“ rifjar hann upp. Hann ákvað loks að fara í meðferð og kvaddi kókaín eftir sextán ár í neyslu. Hann hefur verið edrú í 29 ár. Eftir meðferðina vann Elton í því að ná fyrri frama í tón- listinni. Hann fékk þá tæki- færi til að sjá um tónlistina í teiknimyndinni Lion King, sem frumsýnd var árið 1994. „Ég væri að ljúga ef ég segði að ég hefði aldrei haft efa- semdir um verkefnið eða hlutverk mitt í því,“ skrifar hann. Lokaútkoman var stór- góð og vann Elton Óskarinn fyrir lagið Can You Feel the Love Tonight? Disney bauð honum annan samning strax í kjölfarið. „Það var sturlað- ur peningur,“ skrifar hann. „Þeir vildu að ég þróaði fleiri kvikmyndir, sjónvarpsþætti og bækur. Það var meira að segja minnst á skemmtigarð. Ég hafnaði samningum hins vegar eftir mikla umhugsun.“ Einn af vinum Eltons bauð honum út að borða árið 1993 svo tónlistarmaðurinn gæti hitt aðra samkynhneigða karlmenn. „Sá eini sem virk- aði ekkert svakalega glaður að vera þarna var kanadískur náungi í Armani-jakka. Hann hét David,“ skrifar Elton er hann rifjar upp fyrstu kynni hans og eiginmanns hans, Davids Furnish. „Hann var greinilega feiminn og sagði ekki mikið, sem mér fannst synd því hann var mjög myndarlegur.“ Dav- id og Elton byrjuðu saman stuttu síðar og eru í dag hjón og eiga tvö börn. Elton ljóstrar upp ýmsu um vina- sambönd sín í bókinni. Hann er til dæmis sponsor Eminem í AA og tjáir sig um áhyggjur sínar um Michael Jackson heitinn og áhrifin sem lyfseðilsskyld lyf höfðu á hann. Elton trúir því að hann hafi „gengið af göflunum“ síðustu ár ævinnar. Elton skrifar einnig um náið samband sitt við Díönu pr- insessu og segir hana aldrei hafa minnst á Karl Bretaprins með nafni. Hún kallaði hann alltaf eig- inmann sinn. Þá fer Elton ofan í saumana á óvild sinni í garð Tinu Turner og segir hana „andskotans martröð“ að vinna með. Eitt sinn á hann að hafa sagt henni að „stinga þessu helvítis lagi upp í rassinn.“ David og Elton létu gefa sig borgara lega saman árið 2005 á fyrsta deginum sem það var löglegt í Englandi. Stórstjörn- ur mættu í veisluna en móðir Eltons skyggði á gleðina. „Móðir mín hafði sagt foreldrum Davids að þau yrðu öll að vinna saman til að stöðva vígsluna. Hún var ekki samþykk því að tveir menn gengju í hjónaband,“ skrifar Elton og bætir við að þetta hafi komið honum á óvart því móðir hans hafi „aldrei verið hommahatari“ og veitti stuðning þegar hann kom út úr skápnum. Elton segir í fyrsta sinn frá því í Me að hann hafi verið greindur með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2017 þegar hann var að skipu- leggja tónleikaferðalag. Læknarnir greindu meinið snemma og gáfu honum tvo valkosti: skurðaðgerð þar sem blöðruhálskirtillinn yrði fjarlægður eða löng og ströng lyfjameðferð. Elton valdi aðgerðina, sem gekk vel og steig Elton á svið í Las Vegas aðeins tíu dög- um síðar. Stuttu seinna varð hann veikur og var þá kominn með sýk- ingu. Læknarnir sögðu David að Elton hefði verið sólarhring frá því að deyja. Elton var út- skrifaður af sjúkra- húsi ellefu dögum seinna og þurfti að jafna sig í sjö vikur. „Ég var ekki tilbúinn að deyja strax.“ Hann var ekki náinn foreldrum sínum Ældi á kókaíni Reyndi sjálfsvíg tvisvar Mamman ekki sátt Hafnaði Disney Vinasamböndin Baráttan við krabbamein Datt í það fyrir meðferð Feiminn og myndarlegur Ekki ástfanginn af eiginkonunni Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.