Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 50
50 MATUR 18. október 2019 5 mínútna redding Maríu n Ímyndaði sér aldrei að hún yrði fjögurra barna móðir n Býður upp á góð ráð fyrir þá sem hafa lítinn tíma að elda M aría Gomez er ein af sex konum og vinsælum matar­ bloggurum sem koma að uppskriftabókinni Vinsælustu réttirnir frá vin­ sælum matarbloggurum. María hefur í nægu að snúast og rekur stórt heimili. Hún á fjögur börn; þau Gabríelu, tuttugu ára, Reyni Leó, sex ára, Mikael, fimm ára og Ölbu, fjögurra ára, og er gift Ragnari Má Reynissyni. Heimilislífið getur verið fjörugt hjá hjón­ unum, en María segist ekki hafa dreymt neitt sérstaklega um að eignast heilan her af börnum. „Sem barni dreymdi mig alltaf um að eiga mörg syst­ kini og mömmu og pabba sem væru gift en ég var einka­ barn til ellefu ára aldurs en þá eignaðist ég systur. Mamma og pabbi skildu þegar ég var fimm ára. Ég var samt ekk­ ert með nein sérstök plön um hvernig mín eigin kjarnafjöl­ skylda ætti að vera, en ég var lengi einstætt foreldri með Gabríelu, eða þar til hún var tólf ára. Svo kynntist ég Ragnari, manninum mín­ um, og örlögin tóku völdin og ég endaði á að eiga þessa stóru, flottu fjölskyldu sem ég gæti ekki verið stoltari af og ánægðari með að hafa eign­ ast. Ég hefði samt aldrei trúað því að ég myndi enda sem fjögurra barna móðir,“ segir hún og hlær. Eins og lítill herflokkur María segir að dagurinn hjá fjölskyldunni sé afar hefð­ bundinn, það er vaknað og farið í vinnu og skóla, síðan er skutlað í alls kyns tómstund­ ir, kvöldmatur borinn á borð og háttað. Oftar en ekki endar María sjálf steinsofandi í sóf­ anum fyrir framan imbakass­ ann. Svo getur auðvitað allt gerst þegar þrjú börn undir sjö ára aldrei koma saman. „Ég vildi að ég gæti sagt að börnunum semji öllum frá­ bærlega vel, en því miður er það ekki þannig. Þau eru eins og lítill herflokkur þar sem ríkir oft stríð, en þá er verið að rífast um dót, hvað eigi að horfa á, hver eigi að fá að hafa fjarstýringuna eða að eitthvað sé ósanngjarnt því hinn hafi fengið meira af einhverju en annar. Þau passa, hvert og eitt, 100 prósent upp á sitt, sko. En auðvitað eru líka góðir tím­ ar inni á milli og þau ná góðri tengingu og leika fallega – þar til það svo endar aftur í stríði,“ segir María og skellir upp úr. Frábærar reddingar fyrir þreytta Það kemur líklega ekki á óvart að María sér að mestu leyti um matseldina á heimilinu, enda listakokkur. Þá hefur matarástin smitast út í börn­ in. „Ég held að flest börn hafi einlægan áhuga á að fá að hjálpa til við eldamennsku. Oft þarf það ekkert að vera flóknara en að rétta þeim bretti og óbeittan hníf og láta þau skera gúrku, þá finnst þeim þau vera að fá að taka þátt,“ segir María. En hvern­ ig fær maður stanslausan innblástur til að fæða sex manna fjölskyldu? „Ef ég er þannig stemmd að ég nenni engan veginn að elda þá er oft sótt eitthvað tilbúið eða bara hrært í skyr og flatkök­ ur. Stundum hefur meira að segja bara Cheerios með mjólk verið í boði þegar ég er extra löt. Oft er ég með hug­ myndir að einhverju afar fljót­ legu sem ég er enga stund að henda í, eins og pítupítsa sem er ristað pítubrauð sem ég set svo pítsusósu ofan á, pepperóní, skinku og ost og svo bara undir grillið í ofnin­ um. Það tekur um fimm mín­ útur að gera þetta, svo það er fín redding, en kannski ekkert voða næringarríkt. Svo er ég líka með margar uppskriftir á blogginu sem eru mjög ein­ faldar og auðvelt að henda í, eins og brauðsneið með hrá­ skinku á spænskan máta. Oft geri ég líka „avókadó­ toast“ eða ristaða súrbrauð­ sneið með tómötum, ferskum mozarella­kúlum, ferskri basil íku, olíu og salti en það er alveg svona „gourmet“ redding sem tekur fimm mín­ útur að gera.“ Úlfatíminn strembinn Ekki er hægt að sleppa Maríu áður en hún mælir með rétti úr nýútgefinni bók sem hent­ ar þeim sem koma þreyttir heim úr vinnu og hafa lítinn tíma fyrir eldamennsku. „Ég þykist vita að tím­ inn milli 5 og 8, úlfatíminn, á flestum heimilum landsins getur verið ansi strembinn. Það geta alveg verið viss ró­ legheit í því að elda, því það þarf ekki alltaf að vera eitt­ hvað mikið umstang í kring­ um það. Ef börnin geta notið þess með og hjálpað þá er það enn betra því þá getur mað­ ur sameinað gæðastund með börnunum og eldamennsk­ unni. Mexíkósku lime­kjöt­ bollurnar, sem eru á blað­ síðu 229 í bókinni, eru alveg tilvalin uppskrift til að gera þegar maður kemur þreyttur heim og nennir varla að elda, hún er svo ótrúlega einföld og ekkert vesen að gera hana og enn betra að krakkarnir geta hjálpað til og mótað bollurnar.“ n Í bollurnar þarf: Fyrir 4–6 n 500 g grísahakk/svína og 500 g nautahakk (trúið mér þær eru bestar þannig, en einnig má nota bara grísa­ eða bara nautahakk) n 1 dl haframjöl n 1 msk. laukduft n 1 msk. hvítlauksduft (ath. ekki með salti) n 2–3 msk. tómatsósa n 2 –3 msk. sojasósa n 1 egg n Börkur af tveimur lime­ávöxtum Aðferð: Hitið ofninn í 190°C. Byrjið á að setja báðar tegundir­ nar af hakkinu saman í skál og blandið varlega saman með höndunum. Passa að hnoða ekki mikið. Setjið næst haframjöl, hvítlauks­ og laukduft út á. Setjið næst sósurnar og eggið og raspið lime­börkinn út á. (Passið að nota bara þetta græna, alls ekki raspa niður í hvíta lagið á lime). Hnoðið því næst öllu var­ lega saman þar til allt er jafnt blandað en reynið að komast af með að hnoða sem minnst svo bollurnar verði ekki seigar. Mótið næst meðalstórar bollur eða svona svipaða stærð og sænskar kjötbollur og raðið á bökunarplötu klædda smjörpappír. Bakist í ofnin­ um í 25 mínútur. Byrjið svo næst á að gera salsað og guacamole á meðan bollurnar malla í ofninum. Ananassalsa með tómötum og vorlauk n U.þ.b. 25 stk. góða, rauða, litla tómata (má vera kirsuberja, heilsu, picadillo eða hvað þeir allir kallast) um 1–2 box af tómötum n 1 dós Del Monte ananas í bitum og safinn með n Safi úr 1/2 lime n 4 vorlaukar n 2 msk. ólífuolía n 5–10 dropar tabasco­sósa n salt og pipar n 1 msk. agave­síróp, hlynsíróp eða önnur sæta Aðferð: Skerið allt frekar smátt í salsað. Tómatana sker ég í tvennt en restina reyni ég að hafa frekar smátt. Hellið svo safa, tabasco og olíu út á og saltið og piprið eftir smekk. Setjið svo sætuna að lokum og smakkið til. Einfalt og ferskt guacamole n 1 stórt eða 2 lítil avókadó n 1 rauður, ferskur belgpipar n salt og pipar n lime­safa ef vill Aðferð: Skerið belgpiparinn í tvennt og fræhreinsið ef þið viljið ekki loga í munninum. Skerið hann svo næst í örsmáa bita. Stappið avókadóið með gaffli, en mér finnst það ekki þurfa að vera alveg maukað, finnst gott að hafa það gróft. Hrærið næst þessu tvennu saman og saltið og piprið eftir smekk. Setjið nokkra dropa af lime­safa ef vill. Mexíkóskar lime-kjötbollur með ananassalsa og guacamole Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Dásamleg stund Öll fjölskyld- an samankomin í eldhúsinu. Bollurnar góður Þessar eru girnilegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.