Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 50
50 MATUR 18. október 2019
5 mínútna redding Maríu
n Ímyndaði sér aldrei að hún yrði fjögurra barna móðir n Býður upp á góð
ráð fyrir þá sem hafa lítinn tíma að elda
M
aría Gomez er ein
af sex konum og
vinsælum matar
bloggurum sem
koma að uppskriftabókinni
Vinsælustu réttirnir frá vin
sælum matarbloggurum.
María hefur í nægu að snúast
og rekur stórt heimili. Hún
á fjögur börn; þau Gabríelu,
tuttugu ára, Reyni Leó, sex
ára, Mikael, fimm ára og Ölbu,
fjögurra ára, og er gift Ragnari
Má Reynissyni. Heimilislífið
getur verið fjörugt hjá hjón
unum, en María segist ekki
hafa dreymt neitt sérstaklega
um að eignast heilan her af
börnum.
„Sem barni dreymdi mig
alltaf um að eiga mörg syst
kini og mömmu og pabba
sem væru gift en ég var einka
barn til ellefu ára aldurs en þá
eignaðist ég systur. Mamma
og pabbi skildu þegar ég var
fimm ára. Ég var samt ekk
ert með nein sérstök plön um
hvernig mín eigin kjarnafjöl
skylda ætti að vera, en ég var
lengi einstætt foreldri með
Gabríelu, eða þar til hún
var tólf ára. Svo kynntist ég
Ragnari, manninum mín
um, og örlögin tóku völdin
og ég endaði á að eiga þessa
stóru, flottu fjölskyldu sem ég
gæti ekki verið stoltari af og
ánægðari með að hafa eign
ast. Ég hefði samt aldrei trúað
því að ég myndi enda sem
fjögurra barna móðir,“ segir
hún og hlær.
Eins og lítill herflokkur
María segir að dagurinn hjá
fjölskyldunni sé afar hefð
bundinn, það er vaknað og
farið í vinnu og skóla, síðan er
skutlað í alls kyns tómstund
ir, kvöldmatur borinn á borð
og háttað. Oftar en ekki endar
María sjálf steinsofandi í sóf
anum fyrir framan imbakass
ann. Svo getur auðvitað allt
gerst þegar þrjú börn undir
sjö ára aldrei koma saman.
„Ég vildi að ég gæti sagt að
börnunum semji öllum frá
bærlega vel, en því miður er
það ekki þannig. Þau eru eins
og lítill herflokkur þar sem
ríkir oft stríð, en þá er verið
að rífast um dót, hvað eigi að
horfa á, hver eigi að fá að hafa
fjarstýringuna eða að eitthvað
sé ósanngjarnt því hinn hafi
fengið meira af einhverju en
annar. Þau passa, hvert og eitt,
100 prósent upp á sitt, sko. En
auðvitað eru líka góðir tím
ar inni á milli og þau ná góðri
tengingu og leika fallega – þar
til það svo endar aftur í stríði,“
segir María og skellir upp úr.
Frábærar reddingar fyrir
þreytta
Það kemur líklega ekki á óvart
að María sér að mestu leyti
um matseldina á heimilinu,
enda listakokkur. Þá hefur
matarástin smitast út í börn
in.
„Ég held að flest börn hafi
einlægan áhuga á að fá að
hjálpa til við eldamennsku.
Oft þarf það ekkert að vera
flóknara en að rétta þeim
bretti og óbeittan hníf og láta
þau skera gúrku, þá finnst
þeim þau vera að fá að taka
þátt,“ segir María. En hvern
ig fær maður stanslausan
innblástur til að fæða sex
manna fjölskyldu? „Ef ég er
þannig stemmd að ég nenni
engan veginn að elda þá er
oft sótt eitthvað tilbúið eða
bara hrært í skyr og flatkök
ur. Stundum hefur meira
að segja bara Cheerios með
mjólk verið í boði þegar ég er
extra löt. Oft er ég með hug
myndir að einhverju afar fljót
legu sem ég er enga stund
að henda í, eins og pítupítsa
sem er ristað pítubrauð sem
ég set svo pítsusósu ofan á,
pepperóní, skinku og ost og
svo bara undir grillið í ofnin
um. Það tekur um fimm mín
útur að gera þetta, svo það er
fín redding, en kannski ekkert
voða næringarríkt. Svo er ég
líka með margar uppskriftir á
blogginu sem eru mjög ein
faldar og auðvelt að henda í,
eins og brauðsneið með hrá
skinku á spænskan máta.
Oft geri ég líka „avókadó
toast“ eða ristaða súrbrauð
sneið með tómötum, ferskum
mozarellakúlum, ferskri
basil íku, olíu og salti en það
er alveg svona „gourmet“
redding sem tekur fimm mín
útur að gera.“
Úlfatíminn strembinn
Ekki er hægt að sleppa Maríu
áður en hún mælir með rétti
úr nýútgefinni bók sem hent
ar þeim sem koma þreyttir
heim úr vinnu og hafa lítinn
tíma fyrir eldamennsku.
„Ég þykist vita að tím
inn milli 5 og 8, úlfatíminn,
á flestum heimilum landsins
getur verið ansi strembinn.
Það geta alveg verið viss ró
legheit í því að elda, því það
þarf ekki alltaf að vera eitt
hvað mikið umstang í kring
um það. Ef börnin geta notið
þess með og hjálpað þá er það
enn betra því þá getur mað
ur sameinað gæðastund með
börnunum og eldamennsk
unni. Mexíkósku limekjöt
bollurnar, sem eru á blað
síðu 229 í bókinni, eru alveg
tilvalin uppskrift til að gera
þegar maður kemur þreyttur
heim og nennir varla að elda,
hún er svo ótrúlega einföld
og ekkert vesen að gera hana
og enn betra að krakkarnir
geta hjálpað til og mótað
bollurnar.“ n
Í bollurnar þarf:
Fyrir 4–6
n 500 g grísahakk/svína og 500 g nautahakk (trúið
mér þær eru bestar þannig, en einnig má nota bara
grísa eða bara nautahakk)
n 1 dl haframjöl
n 1 msk. laukduft
n 1 msk. hvítlauksduft (ath. ekki með salti)
n 2–3 msk. tómatsósa
n 2 –3 msk. sojasósa
n 1 egg
n Börkur af tveimur limeávöxtum
Aðferð:
Hitið ofninn í 190°C. Byrjið á að setja báðar tegundir
nar af hakkinu saman í skál og blandið varlega saman
með höndunum. Passa að hnoða ekki mikið. Setjið
næst haframjöl, hvítlauks og laukduft út á. Setjið
næst sósurnar og eggið og raspið limebörkinn út
á. (Passið að nota bara þetta græna, alls ekki raspa
niður í hvíta lagið á lime). Hnoðið því næst öllu var
lega saman þar til allt er jafnt blandað en reynið að
komast af með að hnoða sem minnst svo bollurnar
verði ekki seigar. Mótið næst meðalstórar bollur eða
svona svipaða stærð og sænskar kjötbollur og raðið
á bökunarplötu klædda smjörpappír. Bakist í ofnin
um í 25 mínútur. Byrjið svo næst á að gera salsað og
guacamole á meðan bollurnar malla í ofninum.
Ananassalsa með tómötum og vorlauk
n U.þ.b. 25 stk. góða, rauða, litla tómata (má vera
kirsuberja, heilsu, picadillo eða hvað þeir allir kallast)
um 1–2 box af tómötum
n 1 dós Del Monte ananas í bitum og safinn með
n Safi úr 1/2 lime
n 4 vorlaukar
n 2 msk. ólífuolía
n 5–10 dropar tabascosósa
n salt og pipar
n 1 msk. agavesíróp, hlynsíróp eða önnur sæta
Aðferð:
Skerið allt frekar smátt í salsað. Tómatana sker ég í
tvennt en restina reyni ég að hafa frekar smátt. Hellið
svo safa, tabasco og olíu út á og saltið og piprið eftir
smekk. Setjið svo sætuna að lokum og smakkið til.
Einfalt og ferskt guacamole
n 1 stórt eða 2 lítil avókadó
n 1 rauður, ferskur belgpipar
n salt og pipar
n limesafa ef vill
Aðferð:
Skerið belgpiparinn í tvennt og fræhreinsið ef þið
viljið ekki loga í munninum. Skerið hann svo næst í
örsmáa bita. Stappið avókadóið með gaffli, en mér
finnst það ekki þurfa að vera alveg maukað, finnst gott
að hafa það gróft. Hrærið næst þessu tvennu saman
og saltið og piprið eftir smekk. Setjið nokkra dropa af
limesafa ef vill.
Mexíkóskar lime-kjötbollur með
ananassalsa og guacamole
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Dásamleg stund Öll fjölskyld-
an samankomin í eldhúsinu.
Bollurnar góður Þessar eru girnilegar.