Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 6
6 18. október 2019FRÉTTIR Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR HÚSFÉLAGSINS Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag! Sexföldun á jarðar- förum í kyrrþey n Úr tveimur prósentum í tólf n Margar ástæður að baki, svo sem peningaleysi og hógværð J arðarförum í kyrrþey hefur fjölgað mikið. Árið 2010 fóru 43 jarðarfarir fram í kyrrþey, eða tvö prósent. Árið 2016 nálguðust þær tólf prósent og í fyrra var hlutfall jarðarfara í kyrrþey komið upp í tólf prósent, eða 258 talsins. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðasókn, finnur fyrir þessari fjölgun. „Ég finn að það er fjölgun jarðarfara í kyrrþey og ég held að það séu þrjár ástæður fyrir því; hinn látni hafi verið mikil prívat manneskja og kunnað illa við stórar samkomur, það hef ég oft heyrt, og það væri algjörlega úr takti við karakterinn að halda stóra opinbera athöfn. Einnig er það vegna þess að það eru ekki til miklir peningar í dánarbúinu eða innan fjölskyldunnar og fólk á ekki val um annað en litla athöfn. Svo er það hópurinn sem fer stækkandi og það er fólkið sem vill hafa hlutina eins persónulega og hægt er. Það skil ég svo vel og finnst það á margan hátt jákvæð þróun. Þegar athöfnin er lítil og bara nánasta fólkið er hægt að skapa ákveðna nánd sem er mörgum gefandi. Ég held að þetta sé allt gott í bland hvað varðar form útfararathafnarinnar,“ segir Jóna Hrönn og brýnir eitt fyrir þeim sem kveðja þurfa ástvin. „Það er líka vandi þegar athöfn er í kyrrþey að gæta þess að gleyma ekki einstaklingum sem stóðu hinum látna nærri eins og vinum og samstarfsmönnum og það get- ur verið sárt að fá ekki að kveðja og þakka fyrir sig. Þá er oft verið að hringja í ástvini og spyrja hvort viðkomandi megi koma til að sýna samkennd og heiðra minn- ingu þess sem er farinn, það þarf að bregðast af kærleika við því og meta hlutina af virðingu. Þarna þarf fólk að vanda sig svo ekki verði sárindi í samskiptum.“ Kostnaður, einsemd og ágreiningur Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni í Reykjavík, telur að margt spili inn í þegar ákveðið er að jarðarför fari fram í kyrrþey. „Stundum er þetta ósk frá hinum látna því hann vill ekki umstang eða láta hafa fyrir sér. Ég hef orðið var við það. Suma óar við kostnaðinum við útför og það má vel vera að það spili inn í. Yfirleitt setja menn undir sig hausinn og gera þetta án þess að kostnaður sé stærsti faktorinn, nema þegar mjög illa stendur á,“ segir Sveinn. Kostnaður við hefðbundnar jarðarfarir getur farið hátt upp í tvær milljónir, jafnvel aðeins yfir, enda í mörg horn að líta. Það þarf að birta dánartilkynningar, kaupa líkkistu, bóka tónlistaratriði, halda erfidrykkju og margt fleira. Hins vegar geta þeir sem þurfa leitað sér styrkja vegna útfarar hjá stéttar- eða sveitarfélögum. Aðrar ástæður sem gætu spilað inn í eru einsemd eða ágreiningur meðal aðstandenda. Sveinn segist ekki hafa tekið eftir því, en að oft geti ágreiningur verið til staðar án þess að prestar taki eftir. Hann hefur hins vegar heyrt af því að aðstandendur fari þess á leit að tilteknum einstaklingum verði bannað að mæta þótt jarðarför sé auglýst. „Ég lít þannig á að ef jarðarför er auglýst þá megi allir koma og margir sem vilja fylgja vinnufélögum, vinum, kunningjum eða skólafélögum. Ef jarðarför er ekki auglýst er ekki ætlast til að allir megi mæta. Ég hef heyrt af því að aðstandandi vilji ekki að einhver tiltekinn einstaklingur fái að vera við útför hins látna. Það getur reynst erfitt ef þetta er opinber athöfn.“ Opnari umræða um dauðann Sveinn segir að oft hafi fólk á dánarbeðinum sterkar skoðanir á hvernig jarðarförinni skuli háttað. „Ég veit það til dæmis að þessi sterki vilji sumra til að hafa jarðarför í algerri kyrrþey er ekkert endilega alltaf það sem aðstandendur hefðu viljað. Yfirleitt virða aðstandendur vilja hins látna.“ Jóna Hrönn telur jákvæða breytingu hafa orðið í samfélaginu um hvernig talað er um dauðann og hinstu kveðjustundina. „Á undanförnum árum hefur umræða um dauðann og form á hinstu kveðju breyst. Það er af- skaplega jákvæð breyting og ger- ir það að verkum að allt verður hlaðið meiri merkingu. Það var til dæmis átak innan Þjóðkirkjunn- ar að hvetja fólk til að setja nið- ur hvernig það vildi hafa enda- lokin í þessum heimi og það var gefinn út bæklingur sem heitir „Val mitt við lífslok“. Þar er hægt að setja niður hvort fólk vill kistu- lagningu eða ekki, umbúnaður í kistu, hvar útförin fer fram, hvort það á að vera jarðarför eða bálför, val á tónlist, hvort það eigi að vera erfidrykkja og þá hvernig og upplýsingar vegna minningar- orða,“ segir Jóna Hrönn og heldur áfram. „Það skiptir margt eldra fólk miklu máli að ganga vel frá hlutunum og oft er líka sú hugsun að íþyngja ekki ástvinum sínum þegar dauðinn knýr dyra meira en þörf er á, ég finn oft þessa miklu hógværð og auðmýkt þegar ég tala við eldra fólk á dánar- beðinum. Þegar ég undirbý útfar- ir og fullorðið fólk er að kveðja aldraða foreldra og ekkert liggur fyrir koma uppi ýmis sjónarmið og eftirlifendur tala kannski ekki einni röddu varð- andi útförina, þá kveð ég oft með þeim orð- um að þau ættu, á meðan heilsan er góð og dauðinn ekki á dagskrá, að setja niður óskir sínar við lífslok og ræða við maka sinn, af því að því fylgir ákveðinn léttir fyrir þau sem eftir lifa og þurfa að undirbúa útförina, ég tala nú ekki um þegar dauðinn kemur skyndi- lega og ástvinir eru kannski þjak- aðir af sorg og dofnir, þá er afar mikilvægt að þetta sé eins mikið á hreinu og hægt er.“ n Jóna Hrönn Bolladóttir. Sveinn Valgeirsson. Fjölgun Sífellt fleiri kjósa jarðarför í kyrrþey. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.