Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 8

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 8
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 SAMFÉLAGSMÁL Erika E. Inderyanti hefur verið á götunni í tæpa fjóra mánuði eftir að hún missti íbúð sem hún leigði hjá Félagsbústöðum. Röð atvika varð til þess að Erika hætti að geta borgað af íbúð sinni og safnaði upp skuld sem fljótlega varð henni ofviða að borga. „Ef ég ætti við fíkniefna- eða drykkjuvandamál að stríða þá myndi ég fá stað til að búa á en veikindi mín duga ekki,“ segir Erika sem er orðin úrkula vonar um að fá þak yfir höfuðið. Fjallað var um stöðu Eriku í fréttum Stöðvar 2 í apríl en hún hefur búið hér á landi í 22 ár. Undanfarin fimmtán ár hefur hún glímt við ýmis veikindi sem hafa orsakað það að í dag er hún 75 prósent öryrki. Hún á tvo syni, annar er fluttur utan í nám en hinn er að klára Verzlunarskólann. „Ég hef alltaf unnið þegar ég hef getað það. Ég hef alltaf verið dug- leg og lagt áherslu á að synir mínir geti menntað sig og með auka- vinnunni tókst mér að borga leig- una. Þegar ég veiktist þá gat ég ekki unnið og hætti að geta borgað. Systir mín sem býr úti veiktist líka og ég varð að hjálpa henni að kom- ast í bráðaaðgerð, það kostaði mikla peninga og ég er líka enn að borga af því,“ segir hún en sonur hennar hefur líka unnið með skólanum til þess að borga skólagjöld sín. Skuldin hlóðst upp og þegar hún var komin upp í um 700 þúsund krónur fékk hún tilkynningu um að hún yrði borin út úr íbúðinni. „Ég þorði þá ekki annað en að flytja út en svo er mér sagt eftir á að það hafi verið mestu mistökin því þann- ig virðist ég hafa stimplað mig út úr kerfinu,“ segir Erika sem seg- ist hafa reynt árangurslaust að fá hjálp hjá félagsmálayfirvöldum við að koma undir sig fótunum á ný. Erika og sonur hennar hafa feng- ið að gista hjá vinafólki á meðan en hún segist vera orðin úrkula vonar um að mál hennar leysist. Hún getur ekki leigt á almennum leigu- markaði og sér ekki fram á að fá íbúð hjá Félagsbústöðum. Hún geti ekki reitt fram peninga fyrir trygg- ingu og leigan sé of há. Samkvæmt upplýsingum frá Elfu Björk Ellertsdóttur, upplýsingafull- trúa hjá velferðarsviði Reykjavík- urborgar, getur borgin ekki tjáð sig um einstaka mál. Hins vegar sé það mjög fágætt að fólk missi íbúðir sínar hjá Félagsbústöðum. Alltaf sé reynt að finna lausnir fyrir fólk og er það hvatt til þess að leita sér einstak- lingsráðgjafar hjá þjónustumið- stöðvum borgarinnar en það hefur Erika gert en að hennar sögn ekki fengið úrlausn sinna mála. Elva bendir einnig á að úrræði eins og Konukot sé opið fyrir aðra en þá sem eigi við fíknivanda að stríða. viktoria@frettabladid.is Á götunni í tæpa fjóra mánuði vegna veikinda Erika E. Inderyanti segist ráðalaus eftir að hafa misst íbúð sína sem hún leigði hjá Félagsbústöðum. Erika segist hafa komist í vanskil vegna veikinda og í kjölfarið gert að flytja. Síðan hefur hún verið upp á vini komin með gistingu fyrir sig og son sinn. RÁÐALAUS Erika segist vera ráðalaus þar sem hún hafi ekki efni á leigja á almenna markaðnum og fái ekki íbúð hjá Félagsbústöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI Ég hef alltaf unnið þegar ég hef getað það. Ég hef alltaf verið dugleg og lagt áherlu á að synir mínir geti menntað sig og með aukavinnunni tókst mér að borga leiguna. Erika. E. Inderyanti Ársfundur 2015 Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 26. maí kl. 16.30 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins 2. Önnur mál löglega upp borin Allir sjóðsfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins. Reykjavík, 5. maí 2015 Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga Yfirlit yfir afkomu árins 2014 Efnahagsreikningur A-deild V-deild B-deild S-deild Samtals 2014 Samtals 2013 Húseignir og lóðir 94.271 17.899 0 112.170 116.200 Verbréf með breytilegum tekjum 25.773.101 4.893.599 1.076.729 527.449 32.270.878 27.701.922 Verðbréf með föstum tekjum 41.909.967 7.957.543 3.027.615 602.838 53.497.962 48.977.390 Veðskuldabréf 5.534.651 1.050.877 233.915 6.819.443 6.464.354 Bankainnistæður 1.961.510 372.436 290.474 263.373 2.887.794 1.310.815 Aðrar fjárfestingar 87.741 16.659 0 104.400 339.369 Kröfur 1.235.711 234.627 (62.150) 1.228 1.409.416 1.186.853 Aðrar eignir 1.141.990 216.832 43.572 37.188 1.439.582 646.500 Skuldir (254.224) (48.270) (70.895) (1.703) (375.092) (186.161) Hrein eign til greiðslu lífeyris 77.484.717 14.712.203 4.539.261 1.430.374 98.166.554 86.557.242 Breyting á hreinni eign A-deild V-deild B-deild S-deild Samtals 2014 Samtals 2013 Iðgjöld 6.341.908 2.083.556 718.125 69.997 9.213.587 8.114.425 Lífeyrir (1.534.791) (111.876) (992.792) (72.902) (2.712.362) (1.866.562) Fjárfestingatekjur 4.287.186 782.006 284.450 72.841 5.426.483 6.583.260 Fjárfestingagjöld (133.789) (23.394) (25.249) (2.989) (185.422) (210.900) Rekstrarkostnaður (87.536) (15.306) (28.700) (1.432) (132.974) (106.821) Hækkun á hreinni eign á árinu 8.872.978 2.714.985 (44.167) 65.515 11.609.312 12.513.403 Hrein eign sameinaðra sjóða 4.360.581 Hrein eign frá fyrra ári 68.611.738 11.997.218 4.583.427 1.364.858 86.557.242 69.683.258 Hrein eign til greiðslu lífeyris 77.484.717 14.712.203 4.539.261 1.430.374 98.166.554 86.557.242 Kennitölur A-deild V-deild B-deild S-deild leið I S-deild leið II S-deild leið III Nafnávöxtun 5,7% 5,7% 6,5% 5,9% 3,4% 2,9% Raunávöxtun 4,6% 4,6% 5,4% 4,9% 2,4% 1,9% Raunávöxtun 5 ára meðaltal 3,6% 3,6% - 4,6% 4,5% 2,5% Fjöldi sjóðsfélaga 10.657 4.792 201 177 69 42 Fjöldi lífeyrisþega 2.699 626 923 12 3 7 Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,1% 0,1% 0,6% 0,1% 0,1% 0,1% Eignir í íslenskum krónum í % 85,0% 85,0% 93,1% 60,0% 92,2% 100,0% Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 15,0% 15,0% 6,9% 40,0% 7,8% 0,0% Eignir umfram heildarskuldbindingar í % -12,3% 4,7% -22,1% Eignir umfram áfallnar skuldbindingar í % -8,1% 2,5% -84,4% Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga Í stjórn LSS eru: Kristbjörg Stephensen, formaður, Garðar Hilmarsson, varaformaður, Benedikt Valsson, Elín Björg Jónsdóttir, Salóme A. Þórisdóttir og Sigurbergur Ármannsson. Framkvæmdastjóri er: Gerður Guðjónsdóttir. Verkfallsboðun á almennum vinnumarkaði Póstatkvæðagreiðsla er hafin Hjá Verkalýðsfélaginu Hlíf er hafin allsherjar póstatkvæðagreiðsla sem nær til allra félagsmanna sem vinna samkvæmt aðalkjarasamningi Vlf. Hlífar við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn sem vinna eftir þessum samn- ingum Verkalýðsfélaginu Hlíf í mars/apríl 2015. Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá. Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Vlf. Hlífar að Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil/gögn sem metin eru fullnægjandi, sem sanni að hann eigi atkvæðisrétt. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00 mið- vikudaginn 20. maí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun. Athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn fyrir lok tímafrests þá er nauðsynlegt að póstleggja svarumslagið í síðasta lagi mánudaginn 18. maí. Þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á skrifstofu Vlf. Hlífar til kl. 12.00 miðvikudaginn 20. maí. Hafnarfirði, 7. maí 2015. Kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar Til hvers að flækja hlutina? 365.is | Sími 1817 SJÁLFKRAFA í BESTA ÞREP!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.