Fréttablaðið - 09.05.2015, Page 42

Fréttablaðið - 09.05.2015, Page 42
FÓLK|HELGIN Ardís Ólöf er sjálf ekkert óvön söngvakeppni. Hún tók þátt í Idol-Stjörnuleit Stöðvar 2 árið 2003-2004 og lenti í fjórða sæti keppninnar. María, systir hennar, sem þá var 11 ára, grét hástöfum þegar stóra systir datt út í næstsíðasta þætti. „Hún fylgdist mjög spennt með keppn- inni,“ segir Ardís. „Það hefði verið gaman að ná í lokaþáttinn,“ segir hún og bætir við að eftir standi þó frábær reynsla og minning um skemmtilegan tíma. Það var Karl Bjarni Guðmundsson, Kalli Bjarni, sem bar sigur úr býtum það árið. GRÉT YFIR STÓRU SYSTUR „Þegar ég tók þátt í Idol-keppn- inni kom ég fram föstudag eftir föstudag og mikil spenna var hjá fjölskyldunni í hvert skipti. María þurfti ekki að koma svona oft fram en spennan var samt yfir- þyrmandi. Mamma var einmitt að rifja upp hvernig þetta hefði verið í hverri viku þegar ég var að keppa,“ segir Ardís og hlær. „Ég get ekki neitað því að minn- ingar frá Idol-keppninni komu upp í huga mér þegar María tók þátt í undankeppninni hér heima. Maður fékk fiðring í magann.“ Ardís var 11 ára þegar María fæddist. Hún passaði oft litlu systur og segir hana fljótt hafa sýnt mikinn áhuga á tónlist. „María kom oft með mér á hljóm- sveitaræfingar og var með mér í kringum alls kyns tónlistarstúss. Ég hef örugglega haft einhver áhrif á tónlistaráhuga hennar. Ég sá hins vegar mjög fljótt að hún var músíkölsk og hafði mikla hæfi- leika. María var farin að standa uppi á borði sem smábarn og skemmta áhorfendum. Draumur hennar er að verða leikari ásamt því að syngja og starfa við tónlist. Hún hefur leikið í Söngvaseiði í Borgarleikhúsinu, Skilaboðaskjóð- unni í Þjóðleikhúsinu og Ronju Ræningjadóttur með leikfélaginu í Mosfellsbæ.“ Á LEIÐ TIL VÍNAR Það styttist í Eurovision-keppn- ina en fjölskylda Maríu, foreldrar og tvær systur og eiginmenn þeirra halda utan 19. maí. „Ég hef aldrei komið til Vínarborgar og hlakka mikið til. Borgin er sögð undurfalleg og það verður gaman að koma þangað. Það verður nóg að sjá og skoða. Svo fær María góðan stuðning í salnum, fyrir utan okkur er hópur Íslendinga að fara til Vínar,“ segir Ardís en um leið og úrslitin voru ljós hér heima ákvað fjölskyldan að fara með. „Við vorum í salnum á úrslitakvöldinu og sigurinn kom okkur skemmtilega á óvart. Það var mjög taugatrekkjandi andrúmsloft undir lokin. Þar sem María var alveg óþekkt gat maður ekki verið viss um sigur hennar þótt sú væri óskin.“ Ardís segir að það sé ekki mikið um söngvara í ættinni en þær systur, hún, Sigurbjörg og María, hafi allar farið í tónlistar- skóla, lært á hljóðfæri, sungið í barnakórum og haft áhuga á tón- list. „Það var líka alltaf tónlist í tækinu þegar ég var að alast upp og mikill áhugi á tónlist yfirleitt,“ segir hún. Þær systur hafa oft sungið saman í fjölskylduboðum. „Við erum samrýmdar, spjöllum mikið saman. Ég hef fylgst vel með undirbúningnum og ferlinu hjá Maríu.“ María sagði í viðtali við Vísi í apríl að Eurovision-kjóllinn hennar yrði gylltur og antík- bleikur með pallíettum og tjulli. „Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, systir Ásgeirs sem samdi lagið, hannar og saumar kjólinn,“ sagði hún þá. BJARTSÝN „Ég horfi á allar svona söngva- keppnir og finnst mjög gaman að fylgjast með þeim. Sjálf hef ég ekki verið að syngja opinberlega eftir að ég átti seinna barnið mitt,“ segir hún en Ardís er gift Jónatan Grétarssyni ljósmyndara og eiga þau tvö börn. „Ég ákvað að draga mig út úr tónlistinni í bili,“ segir Ardís en börn hennar eru Elísabet María, 6 ára, og Viktor Örn, 4 ára. Dóttirin fékk seinna nafnið frá frænku sinni sem nú stígur á svið fyrir Íslands hönd í Eurovison. „Börnin mín eru mjög spennt fyrir Eurovision-keppninni,“ segir hún. „Ég held að Maríu eigi eftir að ganga vel og vona innilega að hún komist upp úr undanriðlinum,“ segir Ardís en María verður tólfta í röðinni í seinni undanriðlinum, 21. maí. „Ég er bjartsýn, lagið Unbrok- en er flott og ég hef fulla trú á að litla systir nái langt. Hún hefur lag á að heilla áhorfendur.“ ■ elin@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 FIÐRINGUR „Ég get ekki neitað að minningar frá Idol- keppninni komu upp í huga mér þegar María tók þátt í undankeppn- inni hér heima. Maður fékk fiðring í magann.“ STYÐUR SYSTUR SÍNA ALLA LEIÐ SPENNINGUR Ardís Ólöf Víkingsdóttir, snyrtifræðingur og söngkona, ætlar að fylgja systur sinni, Maríu Ólafsdóttur, til Vínarborgar og veifa íslenska fánan- um í salnum. Hún hlakkar mikið til að fylgjast með Maríu. SÆTAR SYSTUR Ardís Ólöf og María eru samrýmdar systur og stóra systir fylgist vel með öllum undirbúningi fyrir Eurovision- keppnina. MYND/VALLI Rýmum fyrir sumarvörunum. Smáralind facebook.com/CommaIceland allt að 70% afslátt ur www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Örgöngur um Breiðholtið Örgöngur um Breiðholtið 13., 20. og 27. maí, miðvikudagar Fararstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Brottför: Kl. 19 frá bílastæði við íþróttahús ÍR við Skógarsel í Breiðholti (gamla Alaska). Kvöldgöngur þar sem gengið er um hina fjölmörgu stíga sem liggja um Breiðholtið og tengja Seljahverfið, Bakka- hverfið og Fellahverfið. Saga og uppbygging hverfisins rifjuð upp og ný listaverk skoðuð. Um 1½ klst. Þátttaka ókeypis – allir velkomnir Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.