Fréttablaðið - 09.05.2015, Síða 49
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Bæjarfréttir ehf auglýsa eftir ábyrgum og metnaðar-
fullum einstaklingi til liðs við Gaflarann, vefmiðil og
bæjarblað í Hafnarfirði.
Gaflarinn kemur út tvisvar í mánuði en er einnig virk
frétta- og mannlífssíða á Netinu sem segir frá því
helsta í bæjarlífi Hafnfirðinga. Auglýst er eftir áhuga-
sömum, kröftugum og skemmtilegum einstaklingi í
hálft starf til að byrja með, að sinna auglýsingasölu og
efnisöflun fyrir blaðið.
Spennandi starf
í Firðinum
Áhugasamir hafi samband
við ritstjórn blaðsins,
ritstjorn@gaflari.is
og/eða laugi@prentun.is
Lögfræðingur
Velferðarráðuneytið auglýsir eftir lögfræðingi til
starfa á skrifstofu gæða og forvarna.
Meðal þeirra málefna sem skrifstofan fer með eru verk-
efni sem varða öryggi, gæði og eftirlit í heilbrigðisþjónustu,
lýðheilsu og forvarnir, réttindi sjúklinga, lífvísindi, sjúkra-
skrár og gagnasöfn í heilbrigðisþjónustu, starfsréttindi í
heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknir
Starfið felst einkum í meðferð lögfræðilegra viðfangsefna
svo sem samningu lagafrumvarpa og reglugerða og af-
greiðslu stjórnsýsluerinda og álitsgerða og umsjón og eftir-
fylgni með framkvæmd laga. Einnig þátttöku í stefnumótun
í málaflokkum skrifstofunnar auk samskipta við Alþingi,
Eftirlitsstofnun EFTA, önnur stjórnvöld, stofnanir, hags-
munaaðila og einstaklinga.
Menntunar- og hæfniskröfur :
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Æskilegt er að umsækjendur hafi góða þekkingu eða
reynslu á sviði stjórnsýslu og stjórnskipunarréttar.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulags
hæfni.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á EES- og
Evrópurétti
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi
starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð
og sjálfstæði. Upplýsingar um starfið veita
Margrét Björnsdóttir staðgengill skrifstofustjóra
(margret.bjornsdottir@vel.is) og Áslaug Einarsdóttir
lögfræðingur (aslaug.einarsdottir@vel.is) í síma 545 8100.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og
fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneytið hvetur karla,
jafnt sem konur, til að sækja um störfin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu berast velferðarráðuneytinu, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, 150 Reykjavík eða í tölvupósti á póstfangið
postur@vel.is eigi síðar en 31. maí n.k. Tekið skal fram að
umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum
störfum, með síðari breytingum.
Starfið verður veitt frá 1. september 2015 .
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Velferðarráðuneytinu, 8. maí 2015.
Orkuveita Reykjavíkur hlaut
jafnréttisviðurkenningu 2002 og 2013
Orkuveita Reykjavíkur er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera
í fremstu röð hvað snertir öryggi, vinnuumhverfi og möguleika
til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má finna á www.or.is
Fjármálasvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að ráða leiðtoga í starf
forstöðumanns innkaupa- og rekstrarþjónustu. Viðkomandi verður
hluti af stjórnendateymi sviðsins og mun bera ábyrgð á innkaupum
og rekstrarþjónustu Orkuveitusamstæðunnar.
Starfs - og ábyrgðarsvið
• Dagleg stýring einingarinnar
• Ábyrgð á innkaupum og útboðum
• Samningastjórnun sem tengist útboðum og innkaupum
• Samningagerð við birgja
• Eftirfylgni og ráðgjöf með innkaupareglum
• Rekstur fasteigna og lenda
• Rekstur bílamiðlunar
• Mótun stefnu og framtíðarsýnar
Menntunar - og hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði viðskipta- eða
verkfræði skilyrði
• Stjórnunarreynsla skilyrði
• Reynsla af innkaupastýringu skilyrði
• Reynsla af samningagerð kostur
• Gott vald á íslensku og ensku
• Góð samskiptahæfni, þjónustulund, frumkvæði og öguð vinnubrögð
Forstöðumaður innkaupa-
og rekstrarþjónustu
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttir
mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@or.is.
Þú sækir um á ráðningavef Orkuveitunnar starf.or.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2015.
Við hvetjum bæði karla og
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-1
0
5
9