Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 54
www.vedur.is
522 6000
Gæða- og upplýsinga-
öryggis stjóri
Umsóknarfrestur til og með 18. maí nk.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is.
og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferil-
skrá og kynningarbréf. Farið verður með
allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun
sem heyrir undir umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið. Hjá stofnuninni starfa um
135 manns með fjölbreytta menntun og
starfsreynslu sem spannar mörg fræða-
svið. Auk þess starfa um 110 manns við
athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um
landið. Hlutverk stofnunarinnar er öflun,
varðveisla og úrvinnsla gagna, sem og
miðlun upplýsinga á helstu eðlisþáttum
jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó,
jöklum og hafi. Starfsemin fer fram á fjórum
sviðum: Eftirlits- og spásviði, Athugana- og
tækni sviði, Úrvinnslu- og rannsóknasviði,
Fjár mála- og rekstrarsviði og Skrifstofu
for stjóra. Nánari upplýsingar um stofnunina
má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum.
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða gæða-
og upplýsingaöryggisstjóra sem ber ábyrgð á
gæða- og upplýsingaöryggi hennar. Starfið
heyrir undir Skrifstofu forstjóra og mun
við komandi sitja í framkvæmdaráði
stofnun arinnar.
Veðurstofan vinnur að innleiðingu stjórnunar-
kerfis skv. stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001
og hefur meirihluti starfseminnar gengist
undir gæðavottum skv. ISO 9001.
Meginhlutverk
Ber ábyrgð á mótun gæðastefnu og
upp lýs inga öryggisstefnu stofnunarinnar og
hefur eftirlit með því að þeim sé framfylgt
Sér til þess að ferli starfseminnar séu
skil greind sem og lykilþættir þeirra og
jafn framt að sjá til þess að stofnunin setji
sér markmið og árangur í ljósi þeirra sé
mældur
Ber ábyrgð á að upplýsingaeignir séu
skilgreindar og að öryggi upplýsinga sé
tryggt
Hefur umsjón með umbótaferlum
Ber ábyrgð á vottun samkvæmt alþjóð-
legum stöðlum og reglum ásamt því að
vera tengiliður gagnvart vottunar- eða
eftirlitsaðila
Sér um rekstur og uppfærslu gæða hand-
bókar (rekstrarhandbókar)
Hefur umsjón með frekari uppbyggingu
stjórnunarkerfisins
Heldur uppi markvissri kynningu á
gæða- og upplýsingaöryggismálum og
stuðlar að aukinni vitund starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhalds-
nám á sviði gæðastjórnunar og/eða
upplýsingaöryggismála
Yfirgripsmikil þekking á hugmyndafræði og
aðferðum gæða- og upplýsinga öryggis-
stjórnunar, s.s. ISO 9001 og ISO 27001
Farsæl reynsla af gæða- og upplýsinga-
öryggisstjórnun
Hæfni til að innleiða breytingar og stjórna
þeim
Góð hæfni í samstarfi og mannlegum
samskiptum
Farsæl reynsla af hópastarfi og teymisvinnu
Skipulagshæfni og nákvæmni
Mjög gott vald á íslensku og góð kunnátta í
ensku
Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og
viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Helga Rún
Runólfsdóttir (helga@intellecta.is)
í síma 511 1225.
Samstarf er á milli sjö sveitarfélaga í Árnessýslu á sviði skóla- og velferðar-
þjónustu. Einn forstöðumaður er yfir svæðinu og er sameiginleg skóla-
þjónustu- og velferðarnefnd sem markar þjónustunni stefnu í samvinnu við
þá sem málið varðar. Lögð er áhersla á heildarsýn í málefnum einstaklinga
og fjölskyldna. Skóla- og velferðarþjónustan skiptist í kennsluráðgjöf,
sálfræðiþjónustu, félagslega ráðgjöf barnavernd, málefni eldri borgara og
málefni fatlaðs fólks.
Sálfræðingur óskast til starfa
Staða sálfræðings hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er
laus til umsóknar. Starfið er hvort tveggja á sviði skólaþjónustu og
félagsþjónustu. Aðsetur þjónustunnar er í Hveragerði.
Starfssvið sálfræðings :
• Ráðgjöf til foreldra barna og starfsfólks leik- og grunnskóla.
• Forvarnarstarf með áherslu á sjálfbærni skólanna við lausn mála
sem upp koma.
• Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf og
eftirfylgd mála.
• Fræðsla og námskeið fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk skóla.
• Ráðgjöf og meðferð fyrir fjölskyldur og börn sem njóta þjónustu
barnaverndar.
Sálfræðingur vinnur í þverfaglegu samstarfi við kennsluráðgjafa,
félagsráðgjafa, starfsfólk skóla, starfsfólk heilbrigðisþjónustu og
aðra sérfræðinga. Sérfræðingar skóla- og velferðarþjónustu starfa
í kraftmiklu starfsumhverfi þar sem fagmennska, áreiðanleiki og
vönduð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur :
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góðir skipulagshæfileikar
• Færni í samskiptum
• Hæfni í þverfaglegu samstarfi
Umsóknarfrestur er til 30. maí 2015
Umsóknir sendist til Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2,
810 Hveragerði eða á netfangið maria@hveragerdi.is. Með
umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf
umsækjanda og menntun. Einnig fylgi stutt greinargerð um faglega
sýn viðkomandi í starfi sálfræðings. Í samræmi við jafnréttisstefnu
sveitarfélaganna eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um
störfin. Nánari upplýsingar veita: María Kristjánsdóttir
forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings netfang
maria@hveragerdi.is og Hrafnhildur Karlsdóttir teymisstjóri og
kennsluráðgjafi, netfang hrafnhildur@arnesthing.is
Útibú Íslandsbanka
á Akureyri
Nánari upplýsingar:
Ingi Björnsson, útibússtjóri, 440 3802,
ingi.bjornsson@islandsbanki.is
Sigrún Ólafsdóttir, ráðningastjóri, 440 4172,
sigrun.olafs@islandsbanki.is
Við leitum að gjaldkera í útibú Íslandsbanka á Akureyri. Viðkomandi þarf að vera áhugasamur
og hafa metnað og vilja til að veita viðskiptavinum okkar úrvalsþjónustu.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is
og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí
Hæfniskröfur:
• Þjónustulipurð
• Frumkvæði
• Geta unnið undir álagi
• Nákvæmni og talnaskilningur
Helstu verkefni:
• Gjaldkerastörf og uppgjör sjóðs
• Að veita framúrskarandi þjónustu
Við bjóðum góða þjónustu. Hjá Íslandsbanka starfa um 1000 starfsmenn. Við sækjumst eftir starfsfólki sem er jákvætt, faglegt
og framsýnt og leitar ávallt bestu lausna fyrir viðskiptavini bankans. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera númer eitt í þjónustu.
Hvað segir fólkið okkar? Sjáðu hvað starfsfólk hefur að segja um vinnustaðinn: islandsbanki.is > Um Íslandsbanka > Vinnustaðurinn
Gjaldkeri