Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 75
| FÓLK | 11
Svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu
samfélagi sem veldur því að
svefntruflanir eru gríðarlega
algengar. Ef þú færð ekki nægan
svefn geturðu fengið bauga
undir augun, húðin orðið föl
og einnig getur það valdið
þyngdaraukningu þar sem þú
eykur framleiðslu á hormónum
sem kalla fram hungurtilfinningu.
EKKERT HEFUR REYNST EINS VEL
„Ég hafði verið í vandræðum
með svefn og slökun í töluverðan
tíma,“ segir Elsa Ásgeirsdóttir. „Ég
starfa sem klæðskeri og hönnuður
og starfinu fylgir oft mikið álag.
Stundum er ég nánast ofvirk og
hausinn oft fullur af hugmyndum
sem ég þarf að framkvæma,“ segir
hún og brosir.
„Ég náði alltaf að sofna en
náði ekki að sofa alla nóttina, var
oft vöknuð um klukkan fjögur á
næturnar og átti erfitt með að
sofna aftur. Það sem er líka gott við
Melissu er að nú heyrir fótapirringur
sögunni til, en ég átti það til að vera
slæm af fótapirringi þegar ég var
komin í háttinn.“
Elsa las sér til um Melissa
Dream-töflurnar eftir að hún sá þær
auglýstar og ákvað að prófa. „Mér
leist líka vel á þær þar sem þetta
er náttúruleg lausn, mér líkar það
betur. Ég hef prófað mjög margt til
að ná að hvílast og sofna en ekkert
annað hefur reynst mér svona vel.
Þetta er það eina sem hefur hjálpað
mér hingað til. Mér líður svo miklu
betur eftir að ég næ fullum svefni,
er í betra jafnvægi allan daginn og
þá verður allt annað líka í betra
jafnvægi.“
LAUS VIÐ FÓTAÓEIRÐ
Sigríður Helgadóttir fór að nota
Melissa Dream þegar hún var búin
að eiga nokkrar andvökunætur
vegna fótaóeirðar sem truflaði
svefn hennar. „Fóta óeirð in var mjög
óþægileg og hélt fyrir mér vöku
en ég er ekki vön að vera andvaka.
Ég fór að leita mér ráða, þá sá ég
reynslusögur í blöðunum um Mel-
issa Dream. Ég fór að lesa mér til
um vöruna og ákvað að prófa, því
það sakaði ekki að reyna.“
Sigríður tekur tvær töflur klukku-
tíma fyrir svefn þegar henni finnst
hún þurfa á því að halda. „Þá næ
ég að sofna fljótlega og svo finn ég
ekki fyrir þessum fóta-
pirr ingi. Það sem mér
finnst líka æðis legt
við þessar töflur er
að þær eru náttúru-
legar og hafa engin
eftirköst þegar maður
vaknar. Ég þarf ekki
að taka þær á hverju
kvöldi en mér finnst
ég ná að slaka svo vel
á þegar ég tek þær. Ég
er mjög ánægð með
Melissa Dream og ég
mæli með því fyrir alla sem eiga
erfitt með svefn.“
SKAÐLEGT FYRIR LÍKAMANN
Svefnleysi veldur því að líkaminn
endurnýjar sig hægar, sem getur
veikt ónæmiskerfið. Í raun getur
svefnleysi verið mjög
skaðlegt fyrir líkamann.
Það er ekki óalgengt að
vinir og samstarfsmenn
hafi áhyggjur af þér.
Svefnleysi er svo skað-
legt fyrir fólk að það er
viðurkennt sem áhrifarík
pyntingaraðferð. Til
þess að hjálpa þér við
að losna við hvíldar-
og svefnlausar nætur
ættir þú að prófa Melissa
Dream-töflurnar.
SOFÐU BETUR MEÐ MELISSA
DREAM
Í gegnum aldirnar hefur sítrónumel-
is (lemon balm), Melissa officinalis,
verið vinsæl meðal grasalækna. Það-
an dregur varan nafn sitt, Melissa
Dream. Þessar vísindalegu samsettu
náttúruvörur eru hannaðar til að að-
stoða þig við að sofa betur og vakna
endurnærð/ur og innihalda ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítrónu-
melis-taflan inniheldur náttúru-
legu amínósýruna L-theanine, sem
hjálpar til við slökun, auk alhliða
B-vítamína, sem stuðla að eðlilegri
taugastarfsemi. Auk þess inniheldur
taflan mikið af magnesíumi, sem
stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi
og dregur þar með úr óþægindum
í fótum og handleggjum og bætir
svefn.
Í BETRA JAFNVÆGI OG SEFUR VEL
ICECARE KYNNIR Melissa Dream-töflurnar fá þig til að sofa betur og vakna endurnærð/ur. Ekki lyf heldur náttúruleg vítamín og jurtir.
EINA SEM HJÁLPAR Elsa hefur prófað margt til að ná að hvílast og sofna en Melissa
Dream-töflurnar eru það eina sem hefur virkað hingað til. MYND/GVA
FLJÓT AÐ SOFNA Sigríður slakar vel á
og sefur betur þegar hún tekur Melissa
Dream enda laus við fóta óeirð þegar hún
tekur töflurnar.MYND/ERNIR
Edda Snorradóttir er 81 árs. Hún vill gjarnan deila reynslu sinni af Bio-Kult
Pro-Cyan sem vinnur á þvagfæra-
sýkingum. „Ég hef frá því að ég
var rétt rúmlega 70 ára fengið
þvagfærasýkingar og þurfti alltaf
að vera á lyfjum vegna þess.
Það er mjög hvimleitt að þurfa
að kljást við blöðrubólgu og ég
var orðin frekar þreytt á því. Ég
kynntist Bio-Kult Pro-
Cyan fljótlega eftir að
það kom á markað eða
fyrir um það bil tveim-
ur árum. Ég hef notað
það síðan. Ég tek tvö
hylki á dag og sleppi
aldrei úr degi því að
mér líður svo vel að
vera laus við blöðru-
bólguna. Ég er svo
ánægð með að vera
laus við þetta vanda-
mál og mæli heilshugar með Bio-
Kult Pro-Cyan,“ segir Edda.
Hlutverk gerlanna og A-víta-
míns í Bio-Kult Pro-Cyan er að
hjálpa líkamanum að viðhalda
eðlilegu bakteríumagni í þörm-
um, einnig að viðhalda eðlilegri
starfsemi í þvagrásarkerfinu.
Háþróuð þrívirk formúla sem
tryggir heilbrigða þvagrás.
HYLKIN INNIHALDA
■ Trönuberjaþykkni
(Cranberry extract 36
mg PACs)
■ Mjólkursýrugerla
(Lactobacillus acido-
philus PXN 35 og
Lactobacillus plant-
arum PXN 47, Styrk-
ur: 1 milljarður)
■ A-vítamín 320
µg (900 iu, 40% af
RDS).
LAGAÐIST AF
BLÖÐRUBÓLGUNNI
Bio-Kult Pro-Cyan inniheldur þrívirka formúlu sem
hefur verið vísindalega þróuð og staðfest. Edda
Snorradóttir losnaði við sýklalyf.
BETRI LÍÐAN Edda Snorradóttir er ánægð með Bio-Kult Pro-Cyan.
Starfsemi lifrarinnar hefur mikið að segja um líkamlegt heilbrigði og hefur lifrin mikla
þýðingu fyrir efnaskiptin. Það geta
verið margar ástæður fyrir því að
fita safnast upp í lifrinni. Það getur
verið vegna áfengisneyslu en það
getur einnig verið vandamál hjá
fólki í yfirþyngd. Þreyta og þrótt-
leysi geta verið merki um að mikið
álag sé á lifrinni.
NÝTUR ÞÚ LÍFSINS OF MIKIÐ?
Þegar lífinu er lifað til fulls er
auðvelt að finna fyrir því og það
sést á fólki. Nú má fá hjálp til þess
að minnka það að sögn Birnu
Gísladóttur, sölu- og markaðsstjóra
hjá Icecare, sem flytur inn Active
Liver. „Active Liver styður við
niður brot fitunnar í þörmunum,
bætir meltinguna og stuðlar að
eðlilegri lifrarstarfsemi. Dags-
daglega
leiðir fólk
almennt
ekki hug-
ann að
lifrinni.
Hún
gegnir
þó mikil-
vægu hlut-
verki varð-
andi efnaskipti
og niðurbrot á
fitu. Of mikið
af kolvetnum,
of mikið áfengi
og feitur matur
valda of miklu
álagi á starfsemi lifrarinnar og
gallsins.“
Kirsten var með dæmigerð ein-
kenni þess að fita hefði safnast upp
í lifrinni. Hún var í ofþyngd, oft upp-
þembd, með meltingarvandamál
og „svampkennda“ húð. Auk þess
var hún oft þreytt. Kirsten fékk
tækifæri til að prófa nýju Active
Liver-töflurnar og eftir þriggja
vikna notkun varð hún undrandi.
„Húðin á mér er betri og pokarnir
undir augunum hafa minnkað.
Ég geisla og lít heilbrigðari út. Ég
er mjög ánægð og hef ekki sömu
löngunina í óhollan mat, áfengi,
sæt indi og kaffi. Það leikur enginn
vafi á því að mér líður miklu betur.
Ég er í náttúrulegri vímu. Jurta-
töflurnar eru góðar fyrir lifrina og
meltinguna. Áður fyrr fann ég að
meltingin var ekki í lagi en maður
finnur ekki eins mikið fyrir því ef
lifrin starfar ekki eðlilega. Þess
vegna hafði ég ekki leitt hugann að
því hversu mikilvæg lifrarstarfsem-
in er fyrir aukna vellíðan.“
„Matur sem neytt er nú á dögum
inniheldur meira af kolvetnum en
matur sem forfeður okkar
neyttu. Við erum ekki vön
þeim. Of stór skammtur
af kolvetnum miðað við
prótein gerir lifrinni erfitt
að viðhalda eðlilegum
efnaskiptum og niður-
broti á fitu. Sem betur
fer er það ekki einungis
prótein sem getur örvað
lifrarstarfsemina,“ segir
Birna.
LEYNDARMÁLIÐ UM ACTIVE LIVER
Active Liver inniheldur náttúrulegt
jurtaþykkni, sem er þekkt fyrir að
örva virkni lifrarinnar og gallsins og
efnið kólín sem er mikilvægt fyrir
fitubrennslu og hjálpar til við að
minnka fitu sem getur safnast fyrir
í lifrinni.
LÉTTIST UM TVÆR FATA-
STÆRÐIR
„Eftir að ég tileinkaði mér
heilbrigðari lífsstíl, með
því að taka inn Active Liv-
er-töflurnar með kvöld-
matnum, finn ég fyrir auk-
inni vellíðan. Ég hef farið
niður um tvær fatastærðir
og skipt út fataskápnum.
Það er frábært,“ segir
Kirsten.
LIFIR ÞÚ LÍFINU TIL FULLS?
Fita er ekki bara bundin við maga, rass og læri. Hún getur einnig sest innan í líf-
færin og fita í lifrinni getur haft slæm áhrif á líðanina.
KIRSTEN líður betur þegar hún notar
Active Liver.
ICECARE ACTIVE
LIVER
SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝS INGAR
Vörurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stór-
markaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare,
www.icecare.is