Fréttablaðið - 09.05.2015, Qupperneq 106
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
BAKK 5, 8, 10:10
AGE OF ADALINE 8, 10:20
AVENGERS 2 3D 2, 7, 10
MALL COP 2 5
ÁSTRÍKUR 2D 2, 4, 6
LOKSINS HEIM 2
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLL
TOTAL FILM
ÁLFABAKKA
LARRY KING - LARRY KING NOW
NANCY JAY - DAYBREAK USA
Sofía Vergara og
Reese Witherspoon í fyrstu
grínmynd sumarsins.
Heimsfrumsýning.
VARIETY CHICAGO SUN TIMES
Söngvarinn ástsæli Sam Smith
hefur þurft að aflýsa tónleikum
í Japan og á Filippseyjum, þar
sem hann þarf að gangast undir
skurðaðgerð á raddböndum.
Fyrir skömmu þurfti hann
að aflýsa tónleikaferð sinni um
Ástralíu vegna blæðinga í radd-
böndum. Ástandið á söngvar-
anum var þó mun verra en talið
var í fyrstu og er hann farinn frá
Ástralíu til Bandaríkjanna þar
sem hann mun hitta sérfræðing
og í framhaldinu fara í aðgerð.
Söngvarinn birti mynd af sér
á Instagram-síðu sinni þar sem
hann tjáði aðdáendum sínum að
hann væri miður sín að þurfa að
aflýsa tónleikunum og vonaðist
til að fá hjálp frá læknum, þar
sem hann var búinn að þegja í
þrjá daga samkvæmt læknisráði.
Sam Smith afl ýsir
fl eiri tónleikum
Söngvarinn þar að fara í aðgerð á raddböndum.
VINSÆLL
Sam Smith
á Brit-
verðlauna-
hátíðinni í
febrúar.
Vertu úti, hundurinn þinn
Þegar ég var lítil átti ég kött sem hét Dormi. Hverjum þykir
sinn köttur fegurstur auðvitað en
hann var í alvöru æði. Ein vinkona
mín var samt hrædd við hann. Ég
reyndi að útskýra fyrir henni að
hann gerði ekki neitt en allt kom
fyrir ekki og því var sjálfsagt
að loka hann einhvers staðar af
þegar hún var í heimsókn.
ÉG skil hana þegar ég mæti
hundaeigendum sem eru í
spássi túr með misstóra hunda
sína. Ég er nefnilega einhverra
hluta vegna smá hrædd við
hunda. Eigendurnir tjá mér
reglulega að ég hafi ekkert að
óttast, þeir geri ekki neitt. En
það sefar mig lítið. Fyrir mér eru
þetta dýr sem eru jafn óútreiknanleg
í hegðun og – tja – dýr. Enda gerist
það nú yfirleitt að hundaeigendurnir
stytta í taumnum þegar þeir sjá ótta-
slegið hik mitt.
OG þannig á það að vera. Það er
þetta með að hafa aðeins færri reglur
en stuðla með því að meiri tillits-
semi sem er ákjósanlegt. Mér finnst
því sjálfsagt að hundar megi fara í
göngutúr um götur borgarinnar svo
lengi sem það er þá tekið tillit til þess
þegar einhverjum þykir það erfitt.
HVÍ í ósköpunum ætti okkur því
ekki að auðnast það að það sé til
dæmis hverjum kaffihúsaeiganda
í sjálfsvald sett hvort hann leyfi
hundahald inni á kaffihúsinu sínu
svo lengi sem tekið sé tillit til þess
að ef einhver með ofsahræðslu eða
ofnæmi geti þá einfaldlega beðið um
að dýrið sé úti akkúrat þá? Og hví í
ósköpunum er ásættanlegt að öryr-
kjarnir sem voru í fréttum í vikunni
fái ekki að halda kisunum sínum?
Mikið vildi ég hafa kost á því að geta
klappað einhverjum niðjum Dorma á
heimili mínu sýnist mér svo.
ÞAÐ rennur að manni sá grunur
að oft sé einfaldlega auðveldara að
setja einstrengingslegar reglur sem
banna í staðinn fyrir að þurfa að
takast á við blæbrigði mismunandi
þarfa fólks. Við eigum að spyrna
gegn því. Við eigum vel að geta gert
þetta fallegar með tillitssamt frelsi
að leiðarljósi.
Raunveruleikastjarnan Kylie
Jenner viðurkenndi loks í vikunni
að hafa látið setja fyllingu í var-
irnar á sér, en þær hafa verið þó
nokkuð mikið á milli tannanna
á fólki að undanförnu. „Já, ég er
með tímabundna fyllingu í vör-
unum. Mig langaði að segja frá
þessu fyrir löngu síðan, en fólk er
svo rosalega fljótt að dæma mig
þannig að ég fór alltaf í kringum
sannleikann, en ég laug aldrei að
neinum,“ sagði hún í þættinum
Keeping up with The Kardash-
ians. Varirnar á Kylie hafa ekki
bara verið umtalaðar, heldur hafa
þær startað tískubylgju.
Varanlegur
sannleikurinn
LÉT STÆKKA VARIRNAR Kylie viður-
kenndi að vera með fyllingu.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is