Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 57
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 10. október 2015 9
Hafnarfjarðarbær leitar að samskiptastjóra til að hafa yfirumsjón með innri og ytri upplýsinga-
miðlun og samhæfingu upplýsingamála bæjarins. Samskiptastjóri er bæjarstjóra og öðrum
starfsmönnum til ráðgjafar í ýmsum samskiptum meðal annars við fjölmiðla.
Upplýsingar veita:
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
í starfið.
Umsóknarfrestur er til og
með 25. október nk.
Samkvæmt jafnréttisstefnu
Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem
konur hvattir til að sækja um starfið.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Samskiptastjóri
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af skrifum og miðlun upplýsinga
• Reynsla af kynningarmálum og samskiptum við fjölmiðla
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Hugmyndaauðgi, dugnaður og samstarfsvilji
Helstu verkefni:
• Samskipti og samstarf við fjölmiðla, vinnur
fréttatilkynningar og hefur yfirumsjón með
auglýsingamálum stjórnsýslunnar í fjölmiðlum
• Innri upplýsingamiðlun og ímyndarmál
• Stefnumótun og samhæfing í upplýsingamálum
• Yfirumsjón og útgáfustjórn á útgefnu efni bæjarins
• Samantekt og greining fjölmiðlaumfjöllunar
• Umsjón og eftirfylgni með verkefnum á sviði
samfélagslegrar ábyrgðar
Leitað er að jákvæðum, kraftmiklum og reyndum stjórnanda með brennandi áhuga á að
byggja upp sterka liðsheild og framfylgja framtíðarsýn og markmiðasetningu spítalans.
Starfið er veitt frá 1. desember 2015 til 5 ára.
Eitt af meginmarkmiðum spítalans er að þróa góðan og eftirsóknarverðan vinnustað. Á síðustu árum hefur verið lögð
stóraukin áhersla á að vinna að því markmiði og mun framkvæmdastjóri mannauðssviðs gegna lykilhlutverki í að leiða
þá vinnu áfram, í nánu samstarfi við aðra stjórnendur spítalans.
Framkvæmdastjóri mannauðssviðs heyrir undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn spítalans.
Upplýsingar veita:
Leifur Geir Hafsteinsson
leifurgeir@hagvangur.is
Sigrún Ósk Jakobsdóttir
sigrun@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg
ferilskrá og greinargott kynningarbréf
sem færir rök fyrir hæfni umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til og
með 26. október nk.
Laun eru samkvæmt samningi
viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítala
Starfssvið:
• Stefnumörkun, markmiðasetning og áætlanagerð mannauðsmála
• Yfirumsjón með kjaramálum, ráðningum, starfsþróun og
fræðslustarfi
• Yfirumsjón með heilsuvernd og starfsumhverfi
• Umbótaverkefni tengd vinnustaðamenningu, starfsanda og
innri samskiptum
• Ráðgjöf til stjórnenda í starfsmannatengdum málum
• Samskipti við stéttarfélög og samstarfsnefndir
• Samhæfing á starfsemi og þjónustu mannauðssviðs og
annarra sviða
• Uppbygging mannauðs og liðsheildar á mannauðssviði
• Ábyrgð á rekstri og fjármálum mannauðssviðs
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
• Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla úr efstu
þrepum fyrirtækja eða stofnana
• Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Afburða hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku
og ensku
• Lífssýn og persónuleg gildi sem falla vel að
stefnu Landspítala
• Reynsla af umbótastarfi, teymisvinnu og
breytingastjórnun
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun
er æskileg
Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með rúmlega 5.000 starfsmenn.
Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem þjóðarsjúkrahús, háskólasjúkrahús
og miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Landspítali leggur áherslu á öryggi, góðan vinnustað, skilvirka verkferla, ábyrgan
rekstur og endurnýjun húsnæðis.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is