Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 40
Kynning − auglýsing 10. október 2015 LAUGArDAGUr4 Jólahlaðborð
1. Ekki fara sársvöng á hlaðborðið
Það er óráð að fasta áður en farið
er á jólahlaðborð og bein ávísun
á krampa og verki að flengja tíu
sneiðum af puru steik í tóman og
samanskroppinn maga. Skyn-
samlegra er að borða eitthvað
létt áður, til dæmis jógúrt eða
skál af morgun korni. Þeir hörð-
ustu undirbúa magann í nokkra
daga fyrir hlaðborð með því að
borða stórar máltíðir daglega og
hreyfa sig vel til að auka matar-
lystina.
2. Andlegur undirbúningur
Gera ætti vel við sig á aðvent-
unni og gera kröfur. Þegar búið
er að finna það hlaðborð sem
ykkur líst best á ætti að kynna
sér matseðilinn og stilla hugann
inn á að „ráðast á það og rústa
því“ og gíra upp stemminguna
líkt og landslið á leið í úrslita-
leik.
3. Vatnsdrykkja
Undirbúið magann fyrir „bar-
dagann“ með því að drekka vatn
yfir daginn. Það ætti að teygja á
honum svo meira komist fyrir af
mat um kvöldið.
4. Forgangsraðið
Þegar þið standið loks við svign-
andi borðin klár með disk ætti
ekki að rjúka beint í þyngstu
kjötréttina. Hefjið átið á létt-
ari mat, til dæmis salati og jafn-
vel súpu. Maginn er fljótari að
vinna á mat sem inniheldur
mikið vatn.
5. Hemjið ykkur
Líklegra er að þið náið að inn-
byrða meira af mat ef þið borð-
ið hægt og vinnið ykkur jafnt og
þétt gegnum réttina, en ef þið
skóflið í ykkur í flýti.
6. Forðist gosdrykki
Það gæti verið skynsamlegra að
drekka vatn í litlum sopum með
matnum. Gosdrykkir fylla upp í
verðmætt pláss í maganum sem
betur færi á að nýta undir villi-
bráðarpaté. Eins hættir okkur
til þess að vera sídrekkandi ef
drykkurinn er bragðgóður.
7. Njótið kvöldsins
Til að ykkur líði eins og þið hafið
fengið „sem mest fyrir pening-
inn“ ættuð þið að njóta hvers
einasta bita sem þið stingið upp
í ykkur þetta kvöld.
www.thrillist.com
Nokkur ráð til að hafa hlaðborðið undir
Til þess að geta raðað í okkur sem mestu af kræsingum jólahlaðborðanna á aðventunni ætti að hafa nokkur atriði í huga. Öll viljum
við jú fá okkar fyrir aurinn. Undirbúningur magans getur jafnvel hafist nokkrum dögum áður en haldið er á hlaðborðið.
Hjá okkur skapast jafnan mjög skemmtileg stemn-ing á hverju borði. Við
berum litla rétti á borðið sem
fólk deilir með sér og því verð-
ur þetta eins og lítið jólahlað-
borð á hverju borði. Það virkar
mjög vel enda svo skemmtilegt
að borða saman og hafa gaman.
Við viljum bara eiga skemmti-
lega gleðileg jól með gestum
og bjóða góðan mat og drykk,“
segir Jóhannes Steinn Jóhann-
esson, yfirmatreiðslumeistari
Slippbarsins.
Jóla matseði l l Sl ippba rs-
ins tekur gildi föstudagskvöld-
ið 20. nóvember og er alla daga
fram að jólum. Jólahádegið hefst
mánudaginn 23. nóvember frá
kl. 11.30-14.00 alla virka daga
fram að jólum.
Jólabrönsinn hefst laugardag-
inn 21. nóvember frá kl. 12.00-
15.00 allar helgar fram að jólum.
Pantanir og f yrirspurnir
sendist á slippbarinn@icehot-
els.is eða í síma 560 8080.
Skemmtilega gleðileg jól á Slippbarnum
Á Slippbarnum klingja jólaklukkurnar í takt við kokteilana og jólahjólið stendur beint fyrir utan barinn. Slippbarinn fer frekar
óhefðbundnar leiðir um jólin sem endranær en þar reiða meistarakokkar fram metnaðarfullar og öðruvísi jólakræsingar sem bornar
eru á hvert borð og gestir deila með sér. Jólamatseðillinn tekur gildi 20. nóvember.
Gestir deila með sér réttum við hvert borð. „Hjá okkur skapast skemmtileg stemning á hverju borði en hvert um sig verður eins og lítið jólahlaðborð,“ segir Jóhannes Steinn.
til að fá sem mest út úr jólahlaðborðinu ætti ekki að skófla mörgum sneiðum í sig á
ógnarhraða.
Það gæti verið gott að fá sér eitthvað létt í maga nokkru áður en farið er á hlaðborðið
svo maginn sé ekki galtómur.
Gott er að drekka vel af vatni daginn sem
farið er á hlaðborðið.