Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 92
Jólahlaðborð eru yfirleitt skemmtun fullorðinna. Þó
getur verið skemmtilegt að leyfa börnunum að njóta
kræsinganna líka. Þó ætti að hafa nokkra hluti í huga
þegar farið er með börnin út að borða.
l Gott er að fara snemma, jafnvel í hádeginu. Þreytt börn eru
önug börn og á þeim tímapunkti vill maður ekki vera staddur
með þau innan um fína matargesti. Ef farið er snemma eru
meiri líkur á að traffíkin sé minni og meira næði til að njóta
matarins með líflegum krökkum.
l Ef börn verða óþreyjufull að bíða er gott að geta dregið upp
einhverja afþreyingu á borð við litabækur, liti, litla bíla, dúkkur
eða annað dót sem ekki gefur frá sér hávaða. Snjalltölvur
hljóma sniðugar en auka kannski lítið á jólastemninguna.
l Börn sem ekki eru vön að fara út að borða vita ekki við
hverju á að búast. Því er gott að undirbúa börnin áður og
segja þeim hvað sé að fara að gerast og til hvers sé ætlast af
þeim.
l Veljið borð við hæfi. Ekki setjast í miðjan salinn heldur
fremur við útjaðar hans þar sem næðið er betra. Það er bæði
betra fyrir börnin sem þurfa meira rými til að athafna sig og
fyrir aðra matargesti sem vilja næði til að njóta matarins.
l Ekki gera ráð fyrir að hægt sé að eyða miklum tíma í borð-
haldið. Þolinmæði ungra barna er takmörkuð og því um að
gera að láta hlutina ganga.
l Ein leið til að foreldrarnir njóti matarins sem best er að
bjóða barnapíunni með út að borða.
Fjölskyldan saman á jólahlaðborð
Kynning − auglýsing 10. október 2015 LAUGArDAGUr12 Jólahlaðborð
sKrautið sKiptir
sjaldan meira máli
Jólaskraut gegnir mikilvægu
hlutverki þegar kemur að því
að skapa jólalega stemningu og
sjaldan gegnir skraut jafn veiga-
miklu hlutverki og um jól. Það
getur líka verið gaman að koma
gestum á óvart með fallegum
skreytingum og óvenjulegum
lausnum. Hér eru nokkrar hug-
myndir.
Kökudiskum á fæti má breyta
í kertastjaka með því að raða
nokkrum kubbakertum á miðjuna
og skreyta með greni eða reyni-
berjagreinum.
Hægt er að festa jólalegan
borða í köngla og hengja þá
niður með borðdúknum.
Það er ekki endilega ófrávíkjan-
leg regla að leggja hnífapörin á
borð. Það er líka hægt að koma
þeim fyrir í skreyttum krukkum.
Ef þau eru jafn falleg og á með-
fylgjandi mynd eru þau skraut í
sjálfu sér.
Jólamatseðill
Heimalagaður jólasnafs Varmár
Heimabökuðu brauðin okkar
Rjómalöguð rjúpusúpa með villisveppum og foie gras
Skyrsíld með bönunum og fíflasýrópi ásamt
heimagerðu rúgbrauði úr hvernum okkar
Heitreykt gæs með brieosti og hindberjasósu
Tvíreykt hangiköt með rauðrófu, pikkluðum rauðlauk,
hnetum og hvítu súkkulaði
Portvínsgljáður heitreyktur lax með fennel sesamsalati
Önd orange nípumauk og röstikartafla
Ofnbakað dádýrafille með waldorf salati
og bourguignon sósu
Crème brûlée
Ris à la mande.
Súkkulaðidraumur Varmár
Forréttir
Aðalréttir
Milliréttur
Eftirréttir
Jólahlaðborð og gisting
í einstöku umhverfi
Funheitt
jólatilboð!
Gisting í 2ja manna herbergi*
Jólahlaðborð á borðið þitt
Morgunverðarhlaðborð
*Gisting í 2ja manna herbergi með sérbaði. Innifalinn er aðgangur að
heitum pottum og sundlaug, en panta þarf sérstaklega í nuddmeðferðir
og í leirböð. Baðsloppar, inniskór, te og kaffi á herbergjum.
Verð 19.500 kr. á mann
Hótel Frost & Funi •• Hverhamri •• 810 Hveragerði
Sími 483 4959 •• info@frostogfuni.is •• frostogfuni.is
Verð 8.500 kr. á mann