Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 60
Félagsliðar óskast
Fjölbreytt störf í öryggisíbúðum Eirar
Óskum eftir félagsliðum til starfa við fjölbreytilega
félagslega heimaþjónustu aldraðra á eigin heimili,
í öryggisíbúðum Eirborga, við Fróðengi 1-11 Grafarvogi.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Gunnarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri Eirborga
og Edda Björk Arnardóttir mannauðsstjóri í síma: 560 1091
Umsóknir má einnig senda rafrænt á
ragnheiður@eir.is og edda@eir.is
.
Hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík
Sími: 522 5700
Starf í söludeild
Vegna aukinna umsvifa óskar Safari hjól eftir að ráða
metnaðarfullan starfsmann í Sölu og bókunardeild til þess
að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins.
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá rótgrónu
ferðaþjónustufyrirtæki í spennandi umhverfi.
Dagleg störf felast í samskiptum við viðskiptavini og birgja
fyrirtækisins, taka við bókunum, aðstoða við markaðsher-
ferðir o.fl. Við leitum eftir opnu og hressu fólki sem er með
jákvæðni að leiðarljósi.
Helstu kröfur :
• Reynsla í sölustörfum er kostur
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta í Excel & outlook
• Góð enskukunnátta nauðsynleg
• Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Allar fyrirspurnir og umsóknir eru meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál. Umsókn skal send á quad@quad.is merkt
sem “starf 2015” og henni skal fylgja ferilskrá og kynn
ingarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veita Josh Friðrik-
son og Ísleifur Örn Guðmundsson á quad@quad.is eða í
síma 8 211 311
Nánar er hægt að lesa um fyrirtækið á www.quad.is
FairCar bílaleiga óskar eftir BIFVÉLAVIRKJA
- vélvirkja eða aðila með sambærilega reynslu.
Vilt þú
• Auka ábyrgð þína í starfi
• Hækka tekjur þínar
• Komast í fjölbreytt starf
• Komast í metnaðargjarnt
vinnuumhverfi
Ef svo er, þá erum við að leita af þér!
Nánari upplýsingar má finna á: STARF.FAIRCAR.IS
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2015.
Umsókn skal senda á starf@faircar.is ásamt ferilskrá.
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Nánari upplýsingar á rsk.is
Viltu ganga til liðs við góðan
hóp hjá ríkisskattstjóra?
Hugbúnaðarþróun – Reykjavík
Á tæknisviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miða að
liprum og öruggum rafrænum samskiptum við almenning og
öruggri og hagkvæmri úrvinnslu upplýsinga sem ríkisskattstjóra
berast. Ríkisskattstjóri leitar að liðsauka við þann hóp sem nú starfar
við rekstur og þróun upplýsingakerfa.
Í undirbúningi er innleiðing nýrra upplýsingakerfa og þróun og
endurbætur á eldri kerfum. Leitað er að öflugum og jákvæðum
einstaklingi til starfa við slík verkefni auk þess að eiga samskipti við
samstarfsaðila vegna daglegra verkefna við skattframkvæmd.
Hæfnikröfur
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Góð þekking á upplýsingatæknimálum
• Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Mjög góð samskiptahæfni
• Enskukunnátta
• Þekking og reynsla í forritun (C#, Oracle) er kostur
• Reynsla og hæfni í nútímalegri verkefnastjórnun
er kostur
Samtímaeftirlit – Reykjavík
Öflugir og jákvæðir einstaklingar hafa nú tækifæri til að ganga til liðs
við eftirlitssvið ríkisskattstjóra. Starfið felst í samtímaeftirliti þar sem
skattskil fyrirtækja eru sannreynd, leiðbeiningum og almennum
forvarnaraðgerðum.
Hæfnikröfur
• Viðeigandi háskólamenntun, t.d. á sviði viðskiptafræði
eða lögfræði
• Haldgóð þekking og reynsla við bókhald og daglega
skattframkvæmd
• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum
og almennri skattframkvæmd æskileg
• Enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð almenn tölvukunnátta
Þjónustuver – Akureyri
Starfsmenn ríkisskattstjóra á starfsstöðinni á Akureyri vinna fyrst
og fremst við alhliða símaþjónustu í þjónustuveri og álagningu
einstaklinga, auk þess að sinna nærþjónustu. Starf í þjónustuveri
ríkisskattstjóra er laust til umsóknar og því tækifæri fyrir
metnaðarfullan og kraftmikinn einstakling að slást í hópinn.
Helstu verkefni þjónustuversins eru upplýsingagjöf um skattamál,
símaþjónusta, afgreiðsla skattkorta og annarra gagna sem við-
skiptavinir óska eftir.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð
í mannlegum samskiptum
• Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika
til að vinna undir álagi
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
• Enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
Einstaklingssvið – Egilsstaðir
Kraftmikill og metnaðarfullur einstaklingur óskast til starfa á
starfsstöðina á Egilsstöðum. Helstu verkefni tengjast álagningu
skatta, yfirferð gagna, upplýsingagjöf um skattamál ásamt öðru
er tengist skattskilum einstaklinga og nærþjónustu.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð
í mannlegum samskiptum
• Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika
til að vinna undir álagi
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli.
• Enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
Ríkisskattstjóri er í fararbroddi í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu. Helstu verkefni embættisins eru
álagning opinberra gjalda, skatteftirlit og að halda lögbundnar skrár. Að auki er embættinu falið
að sinna ýmsum sérverkefnum til lengri eða skemmri tíma, nú síðast leiðréttingu á höfuðstól verð-
tryggðra húsnæðislána og ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán.
Vinnustaðurinn er fjölmennur og dreifist starfsemin á níu starfsstöðvar um landið. Meginstefna
ríkisskattstjóra í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli
stofnunar og starfsmanna og starfsmanna sín í milli.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir í síma 442 1151. Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu embættisins
eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað er máli
skiptir þarf að fylgja með umsókn. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2015. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Gildi ríkisskattstjóra eru: Fagmennska – Jákvæðni – Samvinna.
The EFTA Surveillance Authority ensures that the participating EFTA States - Iceland,
Liechtenstein and Norway - respect their obligations under the EEA Agreement. The Authority
protects the rights of individuals and market participants who find their rights violated by
rules or practices of the EFTA States or companies within those States. The Authority also
enforces restrictions on state aid and ensures that companies operating in the EFTA States
abide by the rules relating to competition. In monitoring and enforcing the EEA Agreement, the
Authority has powers that correspond to those of the European Commission.
The Authority is based in Brussels and operates independently of the EFTA States. It currently
employs 70 staff members of 16 nationalities. The Authority is led by a College which consists
of three members appointed by the EEA EFTA States.
The EFTA Surveillance Authority is recruiting
a Director to head its Administration
Depart ment.
He/she will lead a team of 10 professionals
who provide comprehensive administrative
support and assistance to the management
and staff of the Authority. The Director of
Administration reports to the President of the
Authority, who is a member of the College.
We are looking for an energetic, resilient and
positive leader who has the ability to drive
forward the Authority’s organisational
development and to provide strategic advice
to College on all related and administrative
matters. The successful candidate will be a
key player in encouraging cohesion and
common values across the Authority and
ensuring that it remains an attractive
employer in the long term.
We offer a competitive salary based on the
candidate's experience and a generous ben-
efits package, depending on personal situa-
tion. All Authority staff benefit from a spe-
cial and favourable tax regime, private
health and life and invalidity insurance.
JOB REFERENCE 12/2015
Deadline for applications:
30 October 2015
Start date: Early 2016
For full details of this vacancy and
how to apply visit: www.eftasurv.int
Director of Administration