Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 82
Fólk|HELGIN
V ið byrjum á menning-arhátíðinni Regnbog-anum í Vík í Mýrdal í
hádeginu í dag. Þar verðum við
með Langafa prakkara og svo
drjúgan hluta úr sýningunni um
Eldklerkinn í kvöld. Rósa Ás-
geirsdóttir er með okkur í Lang-
afa prakkara en svo höldum við
hjónin áfram um Austurland.
Þetta verður notaleg haustferð
hjá okkur hjónunum,“ segir
Pétur Eggerz leikari en hann
verður á faraldsfæti um helgina
og næstu viku ásamt konu
sinni, Öldu Arnardóttur.
Tilefnið er sýningar Mögu-
leikhúss þeirra hjóna en í
ferðinni munu þau setja upp
sýningarnar Eldklerkurinn og
Eldbarnið, á Djúpavogi, Egils-
stöðum, Borgarfirði eystri og
Eskifirði. Flestar sýningarnar
fara fram í kirkjum, sem Pétur
segir eiga vel við.
„Það er auðvitað bein tenging
milli kirkjunnar og sr. Jóns Stein-
grímssonar og alltaf ákveðin
stemming sem skapast í kirkju.
Þetta eru þó ekki trúarlegar
sýningar heldur umfjöllun um
Skaftár elda og þennan mann sem
er einn þekktasti prestur á Ís-
landi. Við höfum sett Eldklerkinn
upp í Kapellunni á Kirkjubæjar-
klaustri, sem er eins nálægt sögu-
sviðinu og hægt er að komast.“
Pétur og Alda frumsýndu Eld-
klerkinn í nóvember 2013 í Hall-
grímskirkju. Þau eru því orðin
vel sjóuð í þessari mögnuðu
sögu. Eldklerkurinn Jón Stein-
grímsson er kunnastur fyrir eld-
messuna er hann flutti í miðjum
Skaftáreldum árið 1783.
„Ég er búinn að lifa og hrær-
ast í Skaftáreldum,“ segir Pétur.
„Ég var í sveit sem krakki í
Meðallandinu og þekki vel til.
Sagan hefur verið mér hugleikin
gegnum tíðina og upphaflega
var meiningin að gera barnaleik-
rit úr þessum atburðum. Sr. Jón
Steingrímsson varð bara strax
svo plássfrekur að hann fékk
sína eigin sýningu. Mér fannst
líka spennandi að gera tvær
sýningar sem kölluðust á. Það
má segja að Eldklerkurinn og
Eldbarnið sé tvíleikur um Skaft-
árelda. Eldklerkurinn er fyrir
fullorðna meðan í Eldbarninu
eru þessir atburðir frá sjónar-
hóli barns.“
Hvað tekur svo við eftir leik-
ferðalagið um Austurland?
„Ætli við tökum okkur ekki
nokkurra daga pásu áður en við
höldum svo áfram með aðrar
sýningar sem við eigum. Það
eru alltaf nokkrir boltar á lofti
hjá okkur í einu,“ segir Pétur.
„Við frumsýndum meðal annars
sýninguna Hávamál í fyrra-
vetur og munum halda áfram
með hana eftir áramótin. Við
erum meðal annars með jóla-
sýningu sem við ferðumst með
milli skóla og höfum um tuttugu
ára skeið séð um jólasveinana í
Þjóðminjasafninu,“ segir Pétur
og segir þau hjónin eiga auðvelt
með að vinna saman.
„Það hefur bæði sína kosti og
galla að vera svona saman öllum
stundum,“ segir hann hlæjandi.
„Það fylgir því ansi margt að
reka svona leikhóp og hafa af-
komu sína af því og kannski
væri ekkert auðveldara ef annað
okkar væri á kafi í því og hitt að
gera eitthvað annað.“
ELdkLErkurINN á AusturLANdI
MöGuLEIkHúsIð á fErð Leikarahjónin Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir verða á faraldsfæti um helgina og næstu viku. Til-
efnið eru sýningar Möguleikhússins sem þau setja upp um Austurland.
MöGuLEIkHúsfErð Leikarahjónin Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir munu ferðast um Austurland með sýningarnar Eldklerkinn
og Eldbarnið. mynd/vilhelm
En hverjir eru þeir? Casper
Lindholm Christensen er
fæddur 22. ágúst 1968. Hann er
uppistandari, grínari og gaman-
leikari. Hann hefur leikið í
fjöldamörgum sjónvarpsþáttum
í danska sjónvarpinu. Frægastur
er hann þó fyrir leik sinn í þátt-
unum Klovn sem sýndir hafa
verið hér á landi við miklar vin-
sældir, enda virðist húmor þátt-
anna falla Íslendingum sérstak-
lega vel í geð.
Fyrri mynd þeirra félaga
Klovn – The Movie var mest
sótta bíómynd í Danmörku árið
2010 en alls seldust 850 þúsund
bíómiðar á hana þar í landi. Hún
var sömuleiðis vinsæl hérlend-
is. Casper var kvæntur Anettu
Toftgård og á með henni tvö
börn. Danska Séð og heyrt birti
mynd af Casper þar sem hann
kom út af heimili Iben Hjejle
eftir að hafa gist þar. Casper
og Anetta skildu. Hann var í
sambandi við Iben, sem einn-
ig leikur í Klovn, til ársins 2011.
Árið 2014 kvæntist hann Isabel
Friis-Mikkelsen.
Frank Hvam er fæddur 12.
september 1970. Hann er uppi-
standari, leikari og handrits-
höfundur. Frank ætlaði sér
að verða dýralæknir en hætti
náminu fyrir leiklistina. Hann
og Casper hafa starfað saman
frá árinu 1996 og eru auk þess
góðir vinir. Frank hefur skrifað
stærstan hluta handritsins um
Klovn. Hann er kvæntur og á
tvö börn.
Trúðar mæTTir
Til leiks á ný
Kvikmyndin Klovn var frumsýnd í gær en þar
fara þeir Casper og Frank á kostum eins og fyrri
daginn. Kvikmyndagestir eiga góða kvöldstund í
vændum með þeim félögum.
kLoVN Frank og Casper þegar þeir komu hingað til lands árið 2011.
FÁRÁNLEGA
FLOTTUR
PAKKI
Aðeins 310 kr. á dag
SKEMMTIPAKKINN
Vandað sjónvarpsefni og fjarskipti á frábæru verði
365.is
Sími 1817
Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar. Spennandi íslenskir og
erlendir þættir, kvikmyndir og vandað talsett barnaefni. Að auki fá áskrifendur
internet, heimasíma, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild.*
Með því að greiða 1.990 kr. aukalega
færðu endalaust tal og 1 GB í GSM.
*20 GB í interneti og 100 mín. í heimasíma á 0 kr. Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma. Nánari upplýsingar á 365.is
FÁÐU ÞÉR
ÁSKRIFT
á 365.is