Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 48
Fólk| helgin
Það verður nóg um að vera hjá Braga Valdimari Skúlasyni tón-listarmanni um helgina sem
endranær. Hann hyggur á plötuútgáfu á
næstunni en hann fer helst út að dansa
þar sem enginn sér hann um helgar.
hver er óskamorgunmaturinn um
helgar? Fyrst þú nefnir það, þá væri ég
þokkfokkalega til í Trix.
hver er yfirleitt helgarmorgunmatur-
inn? Botnmylsna úr þeim flögupakka
sem ég næ að klófesta, áður en það
verður um seinan.
Þegar þú ferð út að skemmta þér, hvað
finnst þér skemmtilegast að gera? Reyna
að finna leiðina heim.
Sefur þú út um helgar? Og missa af
Dóru og Svampi Sveinssyni? Og hvolpa-
sveitinni?! Aldrei.
Uppáhaldshelgarmaturinn? Hver sá
sem útbúinn er af yfirvegun og útsjónar-
semi, en ekki í blóðsjóðandi panikki.
hvar er best að borða hann? Á einum
stað.
Vakir þú fram eftir? Já. Svefn er
stærsta svindl mannkynssögunnar.
ef þú ferð út að dansa, hvert ferðu þá?
Á Korputorg. Þar sér mig enginn.
hvernig er draumahelgin? Tjah.
Draumalandhelgin er allavega rétt
tæpar 216 sjómílur. Eða 400 km. Þetta
mílnakjaftæði er bara rugl.
ef þú ert
næturhrafn,
færðu þér eitt-
hvað í gogginn
á kvöldin? hvað
þá? Ég stari dá-
góða stund inn í
ísskápinn. Það sem
hreyfir sig er étið.
ertu með nammi-
dag? hvaða nammi
færðu þér? Allir dagar eru nammidagar
og öll sykurleðja er jafn rétthá í mínum
huga. En ég hef takmarkaða þolinmæði
fyrir snakki.
hvar er best að eyða laugardagseftir-
miðdegi? Fjarri fótboltum.
Með hverjum er best að hanga um
helgar? Örugglega moldríka, kafloðna
byssubjálfanum þarna á Instagram. En
ég bara þekki hann ekkert.
hvað verður í sunnudagskaffinu?
Slökkt á öllum
fjarskiptabúnaði.
Stendur eitthvað sér-
stakt til um þessa helgi?
Það var partí í aug-
lýsingalandi í kvöld og
brúðkaup í raunveru-
leikanum í kvöld. En ætli ég verði ekki
aðallega á Twitter.
hvað er annars að frétta? Ég er að
gefa út bæði barnaplötu með Memfis-
mafíunni og jólaplötu með Baggalút og
velti því fyrir mér hvernig í djúpfrystum
döðlum ég á að narra fólk til að kaupa
þær í bílförmum.
DanSar Þar
SeM enginn Sér
helgin MÍn Bragi Valdimar Skúlason býst við að vera aðallega
á Twitter um helgina auk þess að fara í brúðkaup í kvöld.
ekki fótbolti
Bragi Valdimar Skúlason
vill helst eyða helgunum
sínum fjarri fótbolta.
MYND/ÍriS Dögg EiNarSDóttir
nátthrafn
„Ég stari dágóða stund inn í ís-
skápinn. Það sem hreyfir sig er
étið.“
Flestum líkar vel að leggja sér
svokallaðar brúnkur til munns
við hátíðleg tilefni, og reyndar
líka þó tilefnin séu engin. Til-
valið er að skella í þessar með
Oreo-kexi í tilefni helgarinnar en
uppskriftin er fengin af vefsíð-
unni Krydd í tilveruna með Lólý.
165 g smjör, brætt
200 g dökkt súkkulaði, saxað
3 egg
2 eggjarauður
1 vanillustöng
165 g ljósbrúnn púðursykur
2 msk. hveiti
1 msk. kakó
Smá salt
155 g Oreo-kex, brotið í fjóra bita
Þið þurfið 20 cm kantað bökunarform
eða eldfast mót.
Forhitið ofninn í 180°C. Smyrjið
formið með smjöri og setjið bökunar-
pappír ofan í það þannig að pappírinn
fari aðeins yfir brúnirnar.
Bræðið smjörið í potti við meðal-
hita. Þegar smjörið er bráðið, bætið
þá súkkulaðinu út í og látið standa
í nokkrar mínútur og hrærið svo vel
saman þangað til allt súkkulaðið er
vel bráðið saman við smjörið.
Á meðan súkkulaðið bráðnar,
setjið eggin og eggjarauðurnar í skál
ásamt fræjunum úr vanillustönginni
og þeytið vel saman þangað til það
verður létt og ljóst. Bætið þá sykrinum
út í og passið upp á að hella honum
út í á meðan hrært er rólega saman
og hellið honum meðfram köntunum
svo allt loftið fari ekki úr eggjunum.
Þeytið þetta vel saman þangað til
það verður aðeins stíft. Bætið þá
súkkulaðismjörblöndunni við og hellið
út í með fram köntunum á skálinni.
Blandið að lokum saman við blönduna
hveitinu, kakóinu, saltinu og 1/3 af
Oreo-kexinu.
Hellið deiginu í formið og takið af-
ganginn af kexinu og brjótið hverja
köku í fjóra hluta og dreifið ofan á
blönduna, ýtið kö}kunum aðeins ofan
í deigið.
Bakið í miðjum ofninum í 25-30
mínútur eða þangað til hún er aðeins
blaut í miðjunni en toppurinn á henni
er aðeins farinn að brotna. Leyfið
henni að kólna aðeins áður en hún er
borin fram.
GeGGjaðar Brownies með oreo
Þessar brúnkur með Oreo eru dásamlega girnilegar.
365.is Sími 1817
18:55ALLA VIRKA DAGA
BEINT Á EFTIR FRÉTTUM
Fjölbreyttur og skemmtilegur
dægurmálaþáttur.
Í OPINNI
DAGSKRÁ
ALLA VIRKA
DAGA