Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.10.2015, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 10.10.2015, Qupperneq 25
Handbolti Stelpurnar okkar í íslenska handboltalandsliðinu mæta Þýskalandi í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2017, en sá fyrsti tapaðist gegn firnasterku liði Frakk- lands á fimmtudagskvöldið. Þjóð- verjar eru með sterkt lið sem er vant því að vera á stórmótum. Íslenska liðið átti fá svör við frammistöðu franska liðsins en stelp- urnar og Ágúst Jóhannsson voru ekki sátt við sína eigin frammistöðu. „Við þurfum að laga sóknarleik- inn, númer eitt, tvö og þrjú. Við náðum ekki miklu flæði á boltann, létum brjóta á okkur of mikið og spiluðum illa út úr taktík,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Íslands, en Fréttablaðið heyrði í honum skömmu eftir að landsliðið lenti í Keflavík í gær. „Við erum bara í vandræðum með að skora mörk utan af velli. Við erum ekki að skora yfir 20 mörk og þá er erfitt að vinna landsleiki í handbolta. Við reynum að finna lausnir á þessu á myndbandsfundi í kvöld og um helgina.“ Frakkland skoraði 27 mörk á móti Íslandi þrátt fyrir að varnarleikurinn væri á köflum góður. Markvarslan var ekki góð hjá íslenska liðinu enda var aðalmarkvörðurinn, Florentina Stanciu, veikur. „Í heildina var varnarleikurinn fínn, en við verðum að fá meiri mark- vörslu. Flora er búin að vera veik og var í vandræðum með að vera tilbúin í leikinn og munar nú um minna. Varnarleikurinn var eitthvað til að byggja á, en það er sóknarleikurinn sem við þurfum að laga,“ segir Ágúst. Þýska liðið komst í milliriðla á EM í fyrra en vann ekki marga leiki. Það sýndi þó styrk sinn þegar það gerði jafntefli við Frakkland. „Þetta er bara hörkulið. Þýsku stelpurnar eru mjög hávaxnar og líkamlega sterkar. Þær eru kannski ekki jafn hraðar og þær frönsku og ekki jafn góðar maður á mann en það verður erfitt að mæta þeim. Við þurfum að spila fast á móti þeim,“ segir Ágúst sem vonast til að heima- völlurinn geti hjálpað til. „Þýska liðið er í mikilli rútínu og er alltaf á stórmótunum. Þetta verður einfaldlega gríðarlega erfitt verkefni en við erum á heimavelli. Við þurfum að byggja sterkan heimavöll og til þess þurfum við að fá fólk á völlinn. Það eru allir leikmennirnir meðvitaðir um að við verðum að spila betur og ég hef trú á því enda voru stelpurnar óánægðar með eigin frammistöðu gegn Frakklandi. Við þurfum að eiga algjöran klassaleik til að ná góðum úrslitum á móti Þýska- landi,“ segir Ágúst. Ágúst stýrir Víkingi í Olís-deild karla og þjálfar kvennalandsliðið samhliða því. Hann segir þetta fara vel saman og hann einbeitir sér alfarið að kvennaliðinu núna. Þetta sé ekkert lýjandi. „Alls ekki. Ég er með frábær- an aðstoðarþjálfara í Gunnari Gunnars syni hjá Víkingi sem sér alfarið um liðið. Ég er ekkert að pæla í Víkingi akkúrat núna. Ég er með fullan fókus á stelpunum og Gunnar sér um Víkingsliðið á meðan,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson. – tom FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Norðfjörður Ljósleiðaravæðing Fjarðabyggðar Sveitarstjórn Fjarðabyggðar hefur samþykkt að sér lagningu og/eða rekstur ljósleiðaranets í Fjarðabyggð á komandi þremur árum. eftirfarandi markmið: • Kerfið sé svokallað FTTH kerfi þar sem notandinn er tengdur á ljósleiðara við eina af dreistöðvum kersins. • Gert skal ráð fyrir tengingum inn á öll heimili auk tengimöguleika fyrir fyrirtæki, stofnanir og sumarhús. • Þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakernu gegn heildsölugjaldi. • Kerfið verði byggt upp frá upphafi með heildarlausn til framtíðar að leiðarljósi. • Lagning kersins verði unnin í einum áfanga. Verklok áætluð fyrir lok 2018. greindum forsendum, að tilkynna um það til Bæjarskrifstofu þann 30. október 2015. Jafnframt er skorað á aðila sem innan þriggja ára hyggjast, á eigin forsendum, ráðast í lagningu og/eða rekstur ljósleiðaranets í sveitarfélaginu, að tilkynna um það til skrifstofu sveitarstjórnar innan sömu tímamarka og leggja fyrir sveitarstjórn skriega áætlun um slíkt verkefni. Ennfremur er skorað á aðila sem innan þriggja ára hyggjast ráðast í jarðvinnuframkvæmdir í sveitarfélaginu, sem haft gætu sam- legðaráhrif með lagningu ljósleiðara á vegum sveitarfélagsins, að tilkynna um það til skrifstofu sveitarstjórnar innan sömu tímamarka. Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Fjarðabyggð né þá sem sýna verkefninu áhuga. Fótbolti Kolbeinn Sigþórsson verður með fyrirliðabandið þegar Ísland tekur á móti Lettlandi á Laugardalsvellinum klukkan 16.00 í dag. Þetta verður í fyrsta sinn sem Kolbeinn leiðir íslenska liðið út á völlinn í alvöruleik en Aron Einar hefur farið fyrir sínum mönnum í síðustu sextán leikjum íslenska liðsins í undankeppnum HM og EM. Íslenska liðið tryggði sér sæti á EM með jafntefli á móti Kasakstan í síðasta leik en er enn í baraátt- unni við Tékkland um sigurinn í riðlinum. „Í raun hefur þessi vika ekkert verið öðruvísi. Við reynum að nálgast þessa leiki eins og við höfum gert fyrir hvern einasta leik. Við förum í hvern einasta leik til að vinna hann og reynum að halda ein- beitingu eins og fyrir alla aðra leiki,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson á blaða- mannafundi í gær. Kolbeinn segir íslensku strákana staðráðna í að halda fótunum á bensíngjöfinni og viðhalda góðu Fólkið á skilið að fá góðan leik frá okkur Þurfum að laga sóknina Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er komin í stórt hlutverk í íslenska landsliðinu. Fréttablaðið/Ernir Kolbeinn Sigþórsson hefur borið fyrirliðabandið áður en í dag leiðir hann íslenska landsliðið út á völl í fyrsta sinn í mótsleik. Fréttablaðið/aFP Kolbeinn Sigþórsson mun bera fyrirliðabandið í dag í forföllum Arons Einars Gunnarssonar en hann segir strákana enn eiga eftir að ná fleiri markmiðum. Aron er okkar fyrirliði og því miður er hann ekki með í þessum leik. Það er gaman fyrir mig að vera fyrirliði í þessum síðasta leik fyrir framan þjóðina og við ætlum bara að klára þetta almennilega. gengi íslenska liðsins í undan- keppninni. „Við erum komnir á EM en við viljum ná öðrum mark- miðum. Ég held að það viti allir hvaða markmið það eru en það er að ná þriðja styrkleikaflokki,“ sagði Kolbeinn og er þá að vísa til þess þegar dregið verður í riðla í úrslita- keppninni í Frakklandi. Íslenski framherjinn sér þennan leik einnig sem upphafið að undir- búningi liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst eftir aðeins átta mánuði. „Við þurfum líka að undirbúa okkur fyrir Evrópukeppnina og reyna að bæta okkur sem lið. Við þurfum að halda einbeitingunni og nýta hvern einasta leik til að bæta okkar leik,“ sagði Kolbeinn. Hann hefur ekki þurft að breyta miklu hjá sér þótt hann sé orðinn fyrirliði. „Hvort ég sé fyrirliðinn eða Aron skiptir ekki máli. Aron er okkar fyrirliði og því miður er hann ekki með í þessum leik. Það er gaman fyrir mig að vera fyrirliði í þessum síðasta leik fyrir framan þjóðina og við ætlum bara að klára þetta almenni- lega. Stuðningsmennirnir eiga góðan leik skilinn núna og við viljum enda þetta vel hérna heima,“ sagði Kol- beinn að lokum. – óój s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 25l a U G a r d a G U r 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.