Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 44
Fólk| matur
LauS VIÐ BJÚG Nanna hafði lengi verið í stríði við mikinn bjúg á fótunum. Nú er hann horfinn og hún notar tveimur númerum
minni skó. MYND/ANTON briNk
GOtt BrauÐ kúrbíts-súkkulaðibrauð með sveskjum.
en ég gerði. Ég passa ekki
lengur í gömlu skóna svo ég hef
þurft að endurnýja fataskápinn
að öllu leyti,“ segir hún.
BakaÐ án SykurS
Nanna er þekktur matgæðingur.
Hún hefur gefið út fjölda mat
reiðslubóka, verið matarblaða
maður hjá tímaritum og ritstýrt
fjölda þýddra matreiðslubóka.
Hún starfar hjá Forlaginu og hef
ur gefið út tvær bækur á þessu
ári, aðra með sykurlausu matar
æði. Það hlýtur að vera erfitt
fyrir slíkan ástríðukokk að neita
sér um sætmeti. Hún segist þó
ekki finna fyrir því. „Mér finnst
þetta ekki erfitt, ég borða flest
allan mat. Hugsa bara meira um
hvað ég borða og hversu mikið.
Ég borða brauð, helst það sem
ég baka sjálf, og vel frekar heil
hveiti en hveiti. Samt er ég ekk
ert að sneiða hjá hveiti heldur
finnst mér hitt betra. Ég sleppi
hins vegar öllum sykri og sætu
efnum en borða ávaxtasykur
og nota hann gjarnan í bakstur.
Oft eru ávextir á borðum hér
í vinnunni og ef þeir verða of
þroskaðir þá baka ég úr þeim.
Það kom mér reyndar mjög á
óvart hversu auðvelt þetta hefur
verið. Ég hefði haldið að þetta
væri erfitt. Ég hélt að ég væri
sykurfíkill og háð sætindum.
Það reyndist ekki vera. Vel getur
verið að sykurleysi sé erfitt fyrir
suma en þetta hefur reynst létt
fyrir mig,“ segir hún. „Þegar ég
fer í kökuveislu sneiði ég hjá
öllu sætu og vel frekar brauð
rétti eða annað ósætt. Það er
ekkert vandamál fyrir mig að
sleppa kökum, sælgæti, djúsum
og gosdrykkjum. Ég les inni
haldslýsingar á öllum umbúðum
og sleppi því sem sykur er í. Ég
kaupi til dæmis alltaf óspraut
aðar kjúklingabringur en það
hef ég alltaf gert hvort eð er,“
segir hún og bætir við að sykur
leynist í ótrúlega mörgum mat
vælum þegar að er gáð.
„Ég las um daginn að í bresk
um stórmörkuðum er sykur í
8085% matvæla. Sykur er líka
í mörgum mjólkurvörum en
ég kaupi alltaf hreint skyr eða
hreina jógúrt. Ég borða hreina
jógúrt á hverjum morgni með
ávöxtum og sykurlausu múslí
sem ég bý sjálf til. Það er í raun
margt sem hægt er að útbúa án
sykurs. Ég baka til dæmis oft án
þess að nota sykur. Stundum
baka ég með sykri handa öðrum,
til dæmis barnabörnunum en ég
reyni þá að minnka skammtinn.“
JóLaSkap um heLGIna
Stundum er sagt að sykur sé
eitur, jafnvel fíkniefni. Nanna er
ekki sammála því. „Mér finnst
fárán legt að líkja sykri við heró
ín. Það er móðgun við alvöru
fíkla. Eins og allt annað er sykur
óhollur í óhófi. Ég myndi mæla
með að fólk prófaði að taka út
sykurinn, sérstaklega ef fólk
finnur fyrir einkennum eins og ég
gerði. Fyrir mig hefur þetta líka
reynst góð leið til að léttast.“
Þegar Nanna er spurð hvað sé
á döfinni um helgina hlær hún og
segir að hún muni líklegast vinna
talsvert með sykur um helgina.
„Jólin eru fram undan. Ég útbý
matarþátt fyrir tímaritið Man og
er að undirbúa uppskrift að jóla
mat. Það verður bæði sætt og
sykurlaust. Ég ætla því að vera
í jólaskapi um helgina,“ segir
Nanna en hún er vön því að jólin
komi snemma hjá sér. „Þegar
maður vinnur í bókaútgáfu þá
eru jólabækurnar yfirleitt komn
ar í prentsmiðju um þetta leyti.“
Nanna hefur gaman af því að
ferðast. Hún fer alltaf á eigin veg
um og kýs að ferðast ein. „Ég fór
til Madeira um síðustu jól og er
núna nýkomin frá Porto í Portú
gal. Ég hef tekið á leigu íbúðir og
verið mjög heppin,“ segir Nanna
sem segist annars vera mjög
heimakær kona. „Ég er grúskari,
les gömul blöð á timarit.is og hef
yndi af glæpasögum.“
Nanna gefur hér uppskrift úr
bók sinni, Sætmeti án sykurs og
sætuefna.
kÚrBítS-SÚkkuLaÐIBrauÐ
meÐ SVeSkJum
Vissulega er ein leið til að auka
grænmetisneyslu sú að nota
grænmetið í bakstri en gulrótar
kökur, kúrbítsbrauð og þess
háttar bakkelsi er oft stútfullt
af sykri og þá fer nú hollustan
fyrir lítið. Í þessu kúrbítsbrauði
notaði ég hins vegar sveskjur og
appelsínusafa til að sæta, það
ætti að vera ögn hollara.
350 g kúrbítur
200 g steinlausar sveskjur, mjúkar
125 g smjör, lint
3 egg
100 ml nýkreistur appelsínusafi
1 1/2 tsk. vanilluessens
rifinn börkur af 1 sítrónu
250 g heilhveiti
40 g kakóduft
2 1/2 tsk. lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk. kanill
1/2 tsk. salt
Hitaðu ofninn í 165°C. Rífðu
kúrbítinn á grófu rifjárni og
pressaðu svo eins mikinn safa
úr honum og þú getur, annað
hvort með því að setja hann í t.d.
kartöflupressu eða setja hann á
viskastykki og vinda það vel.
Maukaðu sveskjurnar í mat
vinnsluvél og hrærðu smjöri og
eggjum saman við og síðan app
elsínusafa, vanilluessens og sí
trónuberki. Blandaðu heilhveiti,
kakódufti, lyftidufti, matarsóda,
kanil og salti saman og hrærðu
það saman við deigið. Blandaðu
að lokum kúrbítnum saman við
með sleikju.
Settu deigið í pappírs
klætt jólakökuform og bakaðu
brauðið á neðstu rim í ofni í um
50 mínútur, eða þar til prjónn
sem stungið er í það kemur
hreinn út. Láttu það kólna dá
lítið í forminu en settu það svo
á grind og láttu það kólna alveg.
n elin@365.is
önnur SkóStærÐ
Nanna hefur þurft að taka til
í fataskápnum, enda hefur
hún misst 20 kíló og notar nú
tveimur númerum minni skó.
↣
Fæst í apótekum og heilsubúðum
w
w
w
.z
en
b
ev
.i
s
-
U
m
b
o
ð
: v
it
ex
e
h
f
Friðsælar
nætur
Streitulausir
dagar
Betri og dýpri svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Vísindaleg sönnun á virkni
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/16053244
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/18066139
Melatónin
Náttúrulegt
Upplýsingasími 896 6949
og www.vitex.is
ZenBev Triptófan úr graskersfræjum
Upplýsingar www.SUPERBEETS.is vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Íslensk vottun
á virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
NO. - 1. dós superbeets
jafngildir 30 flöskum
af 500 ml rauðrófusafa
Betri
heilsa
Fæst í apótekum og heilsubúðum