Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 98
í afgerandi sigrum móti hinum germ
önsku Gotum, og þeir sigrar færðu
Aurelíanusi slíkan orðstír að þegar
Kládíus II dó úr plágunni árið 270
veittist honum létt að hrifsa til sín
tign hans og embætti. Aurelíanus
þurfti svo að bregðast við fjölmörg
um innrásum germanskra þjóða á
rómverskt land næstu misseri og
bar ævinlega sigur úr býtum. Hins
vegar var hann raunsær og gerði sér
grein fyrir að tímarnir væru breyttir.
Rómverjar væru ekki lengur öruggir
með sig á Ítalíuskaga. Því lét hann
reisa múra umhverfis Rómaborg og
eru þeir við hann kenndir. Þá voru
nærri 600 ár síðan síðast hafði verið
talið nauðsynlegt að reisa varnar
múra um höfuðborg heimsveldisins.
Aurelíanus lét rómverskar hersveitir
yfirgefa Dakíu norðan Dónár, en það
er nú partur af Rúmeníu. Hann taldi
og vafalaust með réttu að bakkar
Dónár væru mun öruggari landa
mæri Rómar og meiri hindrun fyrir
villiþjóðir í norðri, heldur en lág
lendið norðan árinnar.
Endurreisti heiminn
En Aurelíanus hugsaði ekki bara um
varnir ríkisins, hann endurheimti
líka stórt svæði í Gallíu eða Frakk
landi sem hafði verið sjálfstætt um
skeið og í þakklætisskyni var skírð
eftir honum borg þar í landi: Orléans.
Þá sigraði keisarinn Zenóbíu drottn
ingu í Palmýru sem hafði náð undir
sig stærstum hluta rómverskra landa
í Miðausturlöndum. Rómverjar
máttu aldrei vita af drottningu á
jaðri ríkisins, þá linntu þeir ekki
látum fyrr en hún hafði verið kveðin
í kútinn. Aurelíanus virtist í alla staði
líklegur til að verða atorkusamur og
dugmikill keisari. Hann gerði marg
víslegar endurbætur á efnahagskerfi
og myntsláttu, hann barðist hart
gegn spillingu og bjó sig undir að
samræma trúarlíf þegna sinna með
áherslu á hinn ósigranlega sólar
guð, Sol Invictus. Það var ekki að
ósekju sem öldungaráðið í Róma
borg sæmdi Aurelíanus hinni von
glöðu nafnbót „Restitor Orbis“
en það er sá sem endurreisir
heiminn. Aurelíanus fékk
hins vegar ekki tíma
til að ljúka endurbygg
ingu sinni. Haustið 275
hélt hann í austurveg og
ætlaði í stríð gegn Persum
og hefna stuðnings þeirra
við Zenóbíu. Þá brá svo við
að spilltur embættismaður,
sem óttaðist refsingu keis
arans, lét myrða hann. Þetta
gerðist sennilega í septem
ber og Aurelíanus var um
sextugt. Enginn kandí
dat til keisaratignar
kom fram í hernum sem
Aurelíanus var að safna
saman í LitluAsíu og
aldrei þessu vant spruttu
ekki fram á svipstundu
óteljandi hershöfðingjar
í hverju krummaskuði og
heimtuðu keisaratignina.
Líklega var þorri Rómverja
nokkuð sleginn yfir hinu óvænta frá
falli Aurelíanusar.
En þá gekk fram eiginkona Aurelí
anusar, ættuð frá Dakíu, hún Úlpía
Severína. Einstaka sinnum höfðu
keisaraekkjur tekið sér einskonar
ríkisstjóravöld eftir fráfall manna
sinna, til að tryggja að ungir synir
kæmust síðar til valda, en hér var
það ekki á ferðinni. Úlpía átti bara
eina dóttur og hún sætti sig ekki við
einhver ríkisstjóravöld, heldur tók
sér nú keisaratign í eigin nafni og er
fyrsta og eina konan sem það gerði í
Rómaveldi.
Móðir herbúðanna
En ástæða fyrir því að þú þekkir ekki
betur til hennar, hún er sú að í þess
um 23 línum hér að ofan er fólgið
allt það sem við vitum um Úlpíu
Severínu. Meira er það eigin
lega ekki, það er reyndar
mergurinn málsins. Jú, hún
bar titilinn „móðir herbúð
anna og öldungaráðsins og
föðurlandsins“ og sló mynt
með mynd sinni og tign.
Þannig vitum við af henni, því
í skráðum heimildum segir
nánast ekkert. Nú er það allt
upp talið. Annað vitum við
ekki. Við vitum ekki hvaða
þátt hún átti í stjórn eigin
mannsins, en auðvitað er
eðlilegt að álykta að allar
umbætur í stjórnkerfinu
kunni að hafa verið hennar
verk meðan hann var úti
að berjast. Hún hlýtur að
hafa haft mikil völd eða áhrif
áður en Aurelíanus dó fyrst
hún taldi sig þess umkomna
að gerast arftaki hans er hann
dó. Við vitum það bara ekki.
Meinlokan mikla bannaði
karlkyns annálariturum að skrá
nokkuð um þessa furðu. Við vitum
ekki einu sinni hve lengi Úlpía gat
kallast eða vildi kallast keisaraynja
Rómar. Við vitum ekki hverjir og
börðust gegn henni í nafni hefðar
og hugsanavillu eða hvernig. Við
kunnum ekki þá dramatísku sögu
þegar henni var ýtt frá völdum. Í
árslok höfðu karlarnir í Róm dubbað
upp nýjan keisara, Úlpía hvarf úr
sögunni. Náttúrlega vitum við ekkert
hvað af henni varð. Ekkert.
Illugi Jökulsson nefnir
sögulegt dæmi um meinloku
sem mennirnir
eru haldnir.
Flækjusaga
V ið erum haldin meinloku, mannkynið allt, þar á meðal bæði ég og þú. Það er ekki gott að segja hver hún er, en þetta er
einhver hugsanavilla svo svæsin að
í framtíðinni – þegar afkomendur
okkar verða búnir að koma auga
á hana og losa okkur við hana – þá
verða þeir furðu lostnir yfir því að
við skulum hafa trúað annarri eins
vitleysu, og hagað lífi okkar í sam
ræmi við argasta bull?
Ég veit af þessari meinloku, þótt
ég viti ekki hver hún er, vegna þess
að mannkynið hefur hingað til ævin
lega látið stjórnast af einhverri svona
hugsanavillu sem menn furða sig á
síðar. Sem dæmi væri auðvitað freist
andi að nefna guð, en ég ætla samt
heldur að nefna stöðu konunnar.
Það er ekki vitað hvenær sú mein
loka festi rætur í huga okkar að
konur hlytu að vera á einhvern hátt
undir karla settar. Sumir halda að
meinlokan hafi fylgt okkur allt frá
því vorum bara mannapar. Karl
apar ráða jú ferðinni hjá górillum
og simpönsum, frændum vorum. En
þetta stenst varla. Það virðast hafa
verið til fáein samfélög í fornöld
þar sem konur nutu réttinda eins og
karlar. Þótt þau væru ekki mörg sýna
þau að kynjamisrétti var okkur ekki
eðlislægt í einhverjum raunveru
legum skilningi. En einhvern tíma,
líklega um það bil sem við vorum
að mynda fyrstu menningarríkin og
aukið skipulag gerði körlum kleift að
taka völdin, þá festi þessi meinloka
rætur.
Og hún varð svo sannarlega skæð.
Það urðu – nánast undantekningar
laust – viðtekin sannindi að karlar
hefðu meiri hæfileika til að stjórna;
því skyldu þeir alltaf ráða ferðinni.
Meinloka föst í sinni
Meinlokan varð svo ótrúlega föst í
sinni að meira að segja hinir grísku
heimspekingar fornaldar skrifuðu
öll sín verk án þess að taka nokkurn
tíma fyrir alvöru eftir því smávægi
lega vandamáli að hálft mannkynið
var í meiri eða minni hlekkjum. Það
kviknaði stöku sinnum illur grunur
í huga listamanna en jafnvel þeir
föttuðu samt ekki til fulls að kynja
Keisaraynjan
AURELÍANUS
Keisari
270-275
ZENÓBÍA
Drottning
í Palmýru
269-271
ÚLPÍA SEVERÍNA
Keisari 275
misréttið í samfélaginu var mein
loka og ekkert annað, meinloka sem
meinaði helmingi mannkynsins að
þroska hæfileika sína og hugsun. Ein
og ein kona náði að skjótast fram í
sviðsljós sögunnar – stundum vegna
hæfileika, stundum vegna ætternis
eða hreinlega heppni, en það breytti
engu, fordæmi þeirra varð ekki til
þess að kveikja þá hugsun í brjósti
hvorki karla né kvenna sjálfra að
kannski ætti þetta ekki að vera
svona. Meinlokan varð nefnilega svo
sterk að menn hættu alveg að koma
auga á hana. Rómverjar skrifuðu til
dæmis reiðinnar býsn um heimspeki
og samfélag, sögu og siði, en þá var
hugsanavillan að „svona ætti þetta
að vera“ orðin svo sterk að þess finn
ast engin merki að nokkru sinni hafi
verið andað á hana, hvað þá meir.
Rómverjar voru reyndar óvenju
forstokkaðir á þessu sviði. Enginn
karl virðist hafa látið sér detta í hug
að þetta væri óeðlilegt. Engin kona
virðist hafa hreyft því fyrir alvöru
að kannski mætti breyta einhverju.
Í nærri þúsund ára sögu Rómaveldis
fram til ársins 476 er í raun ekki hægt
að finna eitt einasta dæmi um konu
sem hafi ráðið einhverju – nema sínu
allra nánasta umhverfi og þá yfirleitt
í krafti viljastyrks og var úthrópuð
frekja fyrir bragðið. Að kona yrði
bæjarstjóri, ráðherra, hvað þá keis
ari, nei, allir þeir hæfileikar sem til
staðar voru fóru forgörðum í Róma
veldi rétt eins og þeir hafa farið for
görðum um veröld víða í þúsundir
ára. Sannkölluð meinloka, sem engin
leið er að vita hve miklum skaða
hefur valdið gegnum tíðina.
En nú hlýt ég að leiðrétta mig. Lík
ast til tók ein kona í Rómaveldi sér
keisaranafn. Eða ertu búin að gleyma
Úlpíu Severínu? Og já, það er líklega
mergurinn málsins, þú varst búin
að gleyma henni. Eða öllu heldur,
þú vissir ekki að Úlpía Severína
væri til þótt þú getir eflaust nefnt þó
nokkra Rómarkeisara á nafn. Sagan
um hana er nefnilega prýðilegt dæmi
um meinlokuna margnefndu og hve
illmögulegt hefur verið að brjótast
gegn henni.
Róstur í áratugi
Á þriðju öld voru miklar róstur
í Rómaveldi og stóðu í áratugi.
Sífelldar uppreisnir og valdarán,
hver keisarinn tók við af öðrum,
sumir náðu aðeins að ríkja í fáeina
mánuði, þá voru þeir drepnir af
keppinautum. Þá kom til sögunnar
karlmaður nokkur, Aurelíanus að
nafni. Fátt er vitað með vissu um
ævi hans framan af en sennilega var
hann af kyni Illyríumanna á Balkan
skaga og fæddur þar sem nú er
Serbía. Þaðan komu margir hraustir
herforingjar sem enduðu á keisara
stóli með ýmsum ráðum. Þar á meðal
var Aurelíanus sem sennilega var af
óbreyttu bændafólki en endaði sem
riddaraliðsforingi og æðsti maður
hersins undir keisaranum Kládíusi II.
Aurelíanus stýrði rómverska hernum
sem hvarf
1 0 . o k t Ó B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R42 h E L G i N ∙ F R É t t A B L A ð i ð