Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 98

Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 98
í afgerandi sigrum móti hinum germ­ önsku Gotum, og þeir sigrar færðu Aurelíanusi slíkan orðstír að þegar Kládíus II dó úr plágunni árið 270 veittist honum létt að hrifsa til sín tign hans og embætti. Aurelíanus þurfti svo að bregðast við fjölmörg­ um innrásum germanskra þjóða á rómverskt land næstu misseri og bar ævinlega sigur úr býtum. Hins vegar var hann raunsær og gerði sér grein fyrir að tímarnir væru breyttir. Rómverjar væru ekki lengur öruggir með sig á Ítalíuskaga. Því lét hann reisa múra umhverfis Rómaborg og eru þeir við hann kenndir. Þá voru nærri 600 ár síðan síðast hafði verið talið nauðsynlegt að reisa varnar­ múra um höfuðborg heimsveldisins. Aurelíanus lét rómverskar hersveitir yfirgefa Dakíu norðan Dónár, en það er nú partur af Rúmeníu. Hann taldi og vafalaust með réttu að bakkar Dónár væru mun öruggari landa­ mæri Rómar og meiri hindrun fyrir villiþjóðir í norðri, heldur en lág­ lendið norðan árinnar. Endurreisti heiminn En Aurelíanus hugsaði ekki bara um varnir ríkisins, hann endurheimti líka stórt svæði í Gallíu eða Frakk­ landi sem hafði verið sjálfstætt um skeið og í þakklætisskyni var skírð eftir honum borg þar í landi: Orléans. Þá sigraði keisarinn Zenóbíu drottn­ ingu í Palmýru sem hafði náð undir sig stærstum hluta rómverskra landa í Miðausturlöndum. Rómverjar máttu aldrei vita af drottningu á jaðri ríkisins, þá linntu þeir ekki látum fyrr en hún hafði verið kveðin í kútinn. Aurelíanus virtist í alla staði líklegur til að verða atorkusamur og dugmikill keisari. Hann gerði marg­ víslegar endurbætur á efnahagskerfi og myntsláttu, hann barðist hart gegn spillingu og bjó sig undir að samræma trúarlíf þegna sinna með áherslu á hinn ósigranlega sólar­ guð, Sol Invictus. Það var ekki að ósekju sem öldungaráðið í Róma­ borg sæmdi Aurelíanus hinni von­ glöðu nafnbót „Restitor Orbis“ en það er sá sem endurreisir heiminn. Aurelíanus fékk hins vegar ekki tíma til að ljúka endurbygg­ ingu sinni. Haustið 275 hélt hann í austurveg og ætlaði í stríð gegn Persum og hefna stuðnings þeirra við Zenóbíu. Þá brá svo við að spilltur embættismaður, sem óttaðist refsingu keis­ arans, lét myrða hann. Þetta gerðist sennilega í septem­ ber og Aurelíanus var um sextugt. Enginn kandí­ dat til keisaratignar kom fram í hernum sem Aurelíanus var að safna saman í Litlu­Asíu og aldrei þessu vant spruttu ekki fram á svipstundu óteljandi hershöfðingjar í hverju krummaskuði og heimtuðu keisaratignina. Líklega var þorri Rómverja nokkuð sleginn yfir hinu óvænta frá­ falli Aurelíanusar. En þá gekk fram eiginkona Aurelí­ anusar, ættuð frá Dakíu, hún Úlpía Severína. Einstaka sinnum höfðu keisaraekkjur tekið sér einskonar ríkisstjóravöld eftir fráfall manna sinna, til að tryggja að ungir synir kæmust síðar til valda, en hér var það ekki á ferðinni. Úlpía átti bara eina dóttur og hún sætti sig ekki við einhver ríkisstjóravöld, heldur tók sér nú keisaratign í eigin nafni og er fyrsta og eina konan sem það gerði í Rómaveldi. Móðir herbúðanna En ástæða fyrir því að þú þekkir ekki betur til hennar, hún er sú að í þess­ um 2­3 línum hér að ofan er fólgið allt það sem við vitum um Úlpíu Severínu. Meira er það eigin­ lega ekki, það er reyndar mergurinn málsins. Jú, hún bar titilinn „móðir herbúð­ anna og öldungaráðsins og föðurlandsins“ og sló mynt með mynd sinni og tign. Þannig vitum við af henni, því í skráðum heimildum segir nánast ekkert. Nú er það allt upp talið. Annað vitum við ekki. Við vitum ekki hvaða þátt hún átti í stjórn eigin­ mannsins, en auðvitað er eðlilegt að álykta að allar umbætur í stjórnkerfinu kunni að hafa verið hennar verk meðan hann var úti að berjast. Hún hlýtur að hafa haft mikil völd eða áhrif áður en Aurelíanus dó fyrst hún taldi sig þess umkomna að gerast arftaki hans er hann dó. Við vitum það bara ekki. Meinlokan mikla bannaði karlkyns annálariturum að skrá nokkuð um þessa furðu. Við vitum ekki einu sinni hve lengi Úlpía gat kallast eða vildi kallast keisaraynja Rómar. Við vitum ekki hverjir og börðust gegn henni í nafni hefðar og hugsanavillu eða hvernig. Við kunnum ekki þá dramatísku sögu þegar henni var ýtt frá völdum. Í árslok höfðu karlarnir í Róm dubbað upp nýjan keisara, Úlpía hvarf úr sögunni. Náttúrlega vitum við ekkert hvað af henni varð. Ekkert. Illugi Jökulsson nefnir sögulegt dæmi um meinloku sem mennirnir eru haldnir. Flækjusaga V ið erum haldin mein­loku, mannkynið allt, þar á meðal bæði ég og þú. Það er ekki gott að segja hver hún er, en þetta er einhver hugsanavilla svo svæsin að í framtíðinni – þegar afkomendur okkar verða búnir að koma auga á hana og losa okkur við hana – þá verða þeir furðu lostnir yfir því að við skulum hafa trúað annarri eins vitleysu, og hagað lífi okkar í sam­ ræmi við argasta bull? Ég veit af þessari meinloku, þótt ég viti ekki hver hún er, vegna þess að mannkynið hefur hingað til ævin­ lega látið stjórnast af einhverri svona hugsanavillu sem menn furða sig á síðar. Sem dæmi væri auðvitað freist­ andi að nefna guð, en ég ætla samt heldur að nefna stöðu konunnar. Það er ekki vitað hvenær sú mein­ loka festi rætur í huga okkar að konur hlytu að vera á einhvern hátt undir karla settar. Sumir halda að meinlokan hafi fylgt okkur allt frá því vorum bara mannapar. Karl­ apar ráða jú ferðinni hjá górillum og simpönsum, frændum vorum. En þetta stenst varla. Það virðast hafa verið til fáein samfélög í fornöld þar sem konur nutu réttinda eins og karlar. Þótt þau væru ekki mörg sýna þau að kynjamisrétti var okkur ekki eðlislægt í einhverjum raunveru­ legum skilningi. En einhvern tíma, líklega um það bil sem við vorum að mynda fyrstu menningarríkin og aukið skipulag gerði körlum kleift að taka völdin, þá festi þessi meinloka rætur. Og hún varð svo sannarlega skæð. Það urðu – nánast undantekningar­ laust – viðtekin sannindi að karlar hefðu meiri hæfileika til að stjórna; því skyldu þeir alltaf ráða ferðinni. Meinloka föst í sinni Meinlokan varð svo ótrúlega föst í sinni að meira að segja hinir grísku heimspekingar fornaldar skrifuðu öll sín verk án þess að taka nokkurn tíma fyrir alvöru eftir því smávægi­ lega vandamáli að hálft mannkynið var í meiri eða minni hlekkjum. Það kviknaði stöku sinnum illur grunur í huga listamanna en jafnvel þeir föttuðu samt ekki til fulls að kynja­ Keisaraynjan AURELÍANUS Keisari 270-275 ZENÓBÍA Drottning í Palmýru 269-271 ÚLPÍA SEVERÍNA Keisari 275 misréttið í samfélaginu var mein­ loka og ekkert annað, meinloka sem meinaði helmingi mannkynsins að þroska hæfileika sína og hugsun. Ein og ein kona náði að skjótast fram í sviðsljós sögunnar – stundum vegna hæfileika, stundum vegna ætternis eða hreinlega heppni, en það breytti engu, fordæmi þeirra varð ekki til þess að kveikja þá hugsun í brjósti hvorki karla né kvenna sjálfra að kannski ætti þetta ekki að vera svona. Meinlokan varð nefnilega svo sterk að menn hættu alveg að koma auga á hana. Rómverjar skrifuðu til dæmis reiðinnar býsn um heimspeki og samfélag, sögu og siði, en þá var hugsanavillan að „svona ætti þetta að vera“ orðin svo sterk að þess finn­ ast engin merki að nokkru sinni hafi verið andað á hana, hvað þá meir. Rómverjar voru reyndar óvenju forstokkaðir á þessu sviði. Enginn karl virðist hafa látið sér detta í hug að þetta væri óeðlilegt. Engin kona virðist hafa hreyft því fyrir alvöru að kannski mætti breyta einhverju. Í nærri þúsund ára sögu Rómaveldis fram til ársins 476 er í raun ekki hægt að finna eitt einasta dæmi um konu sem hafi ráðið einhverju – nema sínu allra nánasta umhverfi og þá yfirleitt í krafti viljastyrks og var úthrópuð frekja fyrir bragðið. Að kona yrði bæjarstjóri, ráðherra, hvað þá keis­ ari, nei, allir þeir hæfileikar sem til staðar voru fóru forgörðum í Róma­ veldi rétt eins og þeir hafa farið for­ görðum um veröld víða í þúsundir ára. Sannkölluð meinloka, sem engin leið er að vita hve miklum skaða hefur valdið gegnum tíðina. En nú hlýt ég að leiðrétta mig. Lík­ ast til tók ein kona í Rómaveldi sér keisaranafn. Eða ertu búin að gleyma Úlpíu Severínu? Og já, það er líklega mergurinn málsins, þú varst búin að gleyma henni. Eða öllu heldur, þú vissir ekki að Úlpía Severína væri til þótt þú getir eflaust nefnt þó nokkra Rómarkeisara á nafn. Sagan um hana er nefnilega prýðilegt dæmi um meinlokuna margnefndu og hve illmögulegt hefur verið að brjótast gegn henni. Róstur í áratugi Á þriðju öld voru miklar róstur í Rómaveldi og stóðu í áratugi. Sífelldar uppreisnir og valdarán, hver keisarinn tók við af öðrum, sumir náðu aðeins að ríkja í fáeina mánuði, þá voru þeir drepnir af keppinautum. Þá kom til sögunnar karlmaður nokkur, Aurelíanus að nafni. Fátt er vitað með vissu um ævi hans framan af en sennilega var hann af kyni Illyríumanna á Balkan­ skaga og fæddur þar sem nú er Serbía. Þaðan komu margir hraustir herforingjar sem enduðu á keisara­ stóli með ýmsum ráðum. Þar á meðal var Aurelíanus sem sennilega var af óbreyttu bændafólki en endaði sem riddaraliðsforingi og æðsti maður hersins undir keisaranum Kládíusi II. Aurelíanus stýrði rómverska hernum sem hvarf 1 0 . o k t Ó B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R42 h E L G i N ∙ F R É t t A B L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.