Fréttablaðið - 11.08.2018, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Erik Hamrén
var kynntur til leiks
sem nýr þjálfari
íslenska karla-
landsliðsins í
knattspyrnu
á blaða-
mannafundi í
höfuðstöðvum KSÍ
á miðvikudag. Hamrén er fjórði
Svíinn sem stýrir íslenska liðinu og
fetar meðal annars í fótspor Lars
Lagerbäck sem stýrði liðinu með
frábærum árangri.
Snorri Ásmundsson
fór í messuskrúða
í Hríseyjar-
kirkju og framdi
gjörning. For-
maður sóknar-
nefndarinnar
sagði að hér eftir
verði ekki hægt að
treysta fólki fyrir kirkjunni. Snorri
borðaði súkkulaði í athöfninni og
messuskrúðarnir fara í hreinsun.
Skúli Mogensen
eigandi og forstjóri
WOW Air
hélt upp á fimm-
tugsafmæli sitt í
Hvammsvík í Hval-
firði um síðustu
helgi. Stuðmenn,
brenna, listaverk,
kampavín og frægir í
þemafötum settu svip á gleðina.
Þrjú í fréttum
Enn einn Svíi,
súkkulaðimessa
og forstjórapartí
TÖLUR VIKUNNAR 05.08.2018 – 11.08.2018
100
milljóna framúrkeysla varð sam-
tals á kostnaði við nýbyggingu og
sýningu á Hakinu á Þingvöllum.
1.427
létust á Púertó Ríkó í fellibylnum
Maríu sem gekk yfir eyjuna í sept-
ember í fyrra samkvæmt endan-
legu uppjöri.
911
milljóna króna tap varð á
rekstri Öldrunarheimila Akur-
eyrar á síðustu sex árum. 17
þúsund hektarar
lands í Ísafjarðardjúpi
á fjórum laxveiði-
jörðum í eigu sænska
auðkýfingsins Johns
Haralds Örneberg
eru nú til sölu.
30.
Íslandsferð hins 82 ára
Svisslendings Florians
Rutz frá árinu 1975
stendur nú yfir.
HEILBRIGÐISMÁL Fleiri en 30 manns
hafa farið í skimun hjá Landspítal-
anum til þess að hefja lyfjameðferð
til að fyrirbyggja HIV-smit en áætlað
er að fjöldinn verði í kringum 50.
Smitsjúkdómalæknir segir að ábat-
inn af lyfjameðferðinni verði fljótur
að dekka kostnað ríkissjóðs vegna
niðurgreiðslu meðferðarinnar.
Eins og greint var frá í síðustu
viku samþykkti lyfjagreiðslunefnd
greiðsluþátttöku fyrir samheita-
lyfinu Emtricitabine/Tenofovir sem
er notað í forvarnarskyni gegn HIV-
veirunni. Kostnaður lyfjameðferð-
arinnar er niðurgreiddur að fullu
en hins vegar þurfa einstaklingar
að greiða fyrir reglulegar læknis-
heimsóknir og blóðprufur sem eru
skilyrði fyrir því að gangast undir
meðferðina.
„Við erum búin að skima fleiri en
30 karlmenn sem hafa óskað eftir
lyfjameðferðinni en ég býst við
að þeir verði í kringum 50 talsins
þegar upp er staðið,“ segir Bryndís
Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir
í samtali við Fréttablaðið.
Kostnaður vegna meðferðarinnar
nemur 62 þúsund krónum á mán-
uði fyrir hvern einstakling, eða 744
þúsund á ári. Gangi spár eftir um að
50 manns gangist undir meðferðina
nemur heildarkostnaður ríkissjóðs
rúmum 37 milljónum á ári. Bryndís
bendir á að ábatinn vegi þyngra en
kostnaðurinn.
„Ef við tökum andlega og líkam-
lega heilsu einstaklinga út fyrir sviga
hafa kostnaðargreiningar sýnt að
meðferðin borgi sig upp á fimm til
tíu árum,“ segir Bryndís og bendir á
að meðferðin sé í flestum tilfellum
tímabundin. Lyfjameðferðin sem
þarf að gangast undir eftir HIV-
smit er hins vegar ævilöng og kostar
minnst 150 þúsund á mánuði á
hvern einstakling.
Þá kom fram í greinargerð starfs-
hóps velferðarráðneytisins sem var
birt í byrjun árs að kostnaður vegna
lyfja og rannsókna í tengslum við
HIV næmi allt að 500 milljónum
króna hér á landi.
Bryndís nefnir einnig að með-
ferðin komi til með að fækka öðrum
kynsjúkdómum hjá meðferðar-
hópnum. „Skilyrði fyrir meðferð-
inni er að koma í skimun á þriggja
mánaða fresti. Þá getum við greint
og meðhöndlað aðra kynsjúk-
dóma.“
Þeir einstaklingar sem hug hafa
á að nýta sér meðferðina þurfa að
hafa samband við Landspítalann
og panta tíma á göngudeild smit-
sjúkdóma. Þar fer fram áhættumat,
forvarnafræðsla og rannsóknir á
viðkomandi.
Aðspurð segir Bryndís að Land-
spítalinn muni ekki hafa samband
við einstaklinga að fyrra bragði til
að bjóða meðferðina.
tfh@frettabladid.is
Á fjórða tug hefur sóst eftir
forvarnarlyfjum gegn HIV
Til þess að geta gengist undir meðferðina þarf að koma reglulega í blóð- og sjúkdómaskimun. NORDICPHOTOS/GETTY
Minnst sextán sýktir
af HIV á árinu
Um 220 sjúklingar eru í lyfjameð-
ferð vegna HIV-veirunnar. Alls
greindust 27einstaklingar með
HIV-sýkingu á árinu 2017 og var
meðalaldurinn 35 ár. Í Farsótta-
fréttum Embættis landlæknis
kom fram að áhættuhegðun
tengdist sýkingu hjá samkyn-
hneigðum í þrettán tilfellum,
gagnkynhneigðum í átta tilfellum
og fíkniefnaneyslu í fimm til-
fellum, en óvíst var um áhættu-
þætti í einu tilfelli. Á fyrstu fimm
mánuðum þessa árs greindust
sextán með HIV-sýkingu.
Ábatinn af
forvarnameðferð gegn
HIV-sýkingum sem er
nýlega orðin möguleg
á Íslandi vegur
mun þyngra en
kostnaðurinn að sögn
smitsjúkdómalæknis. Á
fjórða tug hefur nú þegar
sótt um að gangast undir
meðferðina.
GEIMVÍSINDI Sjö ára ferðalag Parker-
geimkannans um innra sólkerfið
hefst í dag þegar geimfarinu verður
skotið á loft frá Kanaveralhöfða í
Bandaríkjunum. Markmið verk-
efnisins er að rannsaka ystu lög
Sólarinnar, eða sólkórónu.
Risavaxin Delta-IV eldflaug mun
fleyta Parker út í geim og í átt að Ven-
usi. Við tekur tólf vikna ferðalag í átt
að Sólinni en um miðbik þess mun
geimfarið þjóta fram hjá Venusi.
Á næstu sjö árum mun Parker fara
24 hringi umhverfis Sólina og rann-
saka sólkórónuna. Þessar athuganir
verða þær fyrstu sinnar tegundar.
Enn er margt á huldu um eðli þeirra
miklu hamfara sem eiga sér stað á
yfirboði Sólarinnar. Parker mun rýna
í raf- og segulsvið Sólarinnar, mæla
virkni rafeinda, róteinda og jóna í
sólkórónunni auk þess að taka ljós-
myndir af henni og sólvindahvolfinu
þar sem sólvindar myndast þegar
stjarnan kastar rafgasi út í geiminn.
Vísindamenn eru vongóðir um
að Parker muni varpa nýju ljósi á
þessa flóknu ferla. Dýpri skilningur á
virkni í sólkórónunni er talinn mikil-
vægur liður í því verkefni að takast á
við kórónuskvettur sem geta valdið
meiriháttar röskunum og skemmd-
um á gervitunglum, rafkerfum og
fjarskiptakerfum hér á Jörðinni.
Parker er nefndur í höfuðið
á bandaríska eðlisfræðingnum
Eugene Parker. Hann setti fyrstur
manna fram tilgátuna um sólvinda
árið 1958, þegar hann var aðeins 31
árs gamall. Þetta er í fyrsta sinn sem
geimfar NASA er nefnt í höfuðið á
vísindamanni sem er enn á lífi.
– khn
Parker-geimfarið heldur í átt að Sólinni
Parker-geimkanninn mun varpa nýju ljósi á sólkórónuna. FRÉTTABLAÐIÐ/NASA
1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð