Fréttablaðið - 11.08.2018, Síða 22

Fréttablaðið - 11.08.2018, Síða 22
Najmo Cumar Fiyasko er rúm-lega tvítug, sómölsk að upp-runa en býr nú á Íslandi. Hún flúði til Íslands sextán ára gömul. Þá hafði hún verið á flótta frá þrettán ára aldri. Hún flúði heimalandið þegar átti að gefa hana í hjónaband einungis þrettán ára gamla. Najmo ákvað nýverið að taka þátt í Reykja- víkurmaraþoninu fyrir Amnesty International og minna á baráttuna gegn barnabrúðkaupum. „Pabbi var myrtur árið 2009, þá var ég ell- efu ára. Bróðir pabba tók eftir það ákvarðanir fyrir fjölskylduna, þetta er þáttur í sómalískri menningu. Þrettán ára gömul var ég svo gefin frænda mínum. Hann var 32 ára gamall,“ segir Najmo frá. Hún flúði til Mógadisjú þar sem ríkti mikið ófriðarástand. Þar slasaðist hún í sprengingu. Föðurbróðir hennar hafði uppi á henni en Najmo tókst að flýja til Súdan. Í Súdan slóst Najmo í hóp fólks sem var á flótta. Leiðin lá í gegnum Sahara eyðimörkina. Ferða- lagið yfir Sahara tók heilan mánuð. Þaðan fór hún til Líbíu og þaðan með báti til Möltu og allt ferðalagið til Íslands tók nærri því heilt ár. „Það var engin framtíðarvon fólgin í því að vera áfram á Möltu. Ég ákvað því að halda áfram og stefndi til Kanada,“ segir Najmo frá. Henni tókst ekki að komast til Kanada því hún var stöðvuð af lög- reglu í Leifsstöð. „Það var áfall í fyrstu. En ég sótti um hæli hér og smám saman fann ég að mér var borgið hér. Ég bý hjá yndislegri fóst- urfjölskyldu og stunda nám í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla. Heimili mitt er hér þótt hugurinn leiti oft til Sómalíu vegna þess að ég hef áhyggj- ur af ástvinum mínum þar,“ segir Najmo. Hún ákvað fljótt að helga sig því að berjast gegn barnabrúð- kaupum. „Ég hef óhikað sagt sögu mína og hef deilt myndböndum á netinu.  Nú hefur  yngri  systir mín verið gefin í hjónaband. Þetta eru sár sem aldrei gróa. Ég hugsaði eitt sinn um það hvort ég ætti bara að reyna að gleyma þessu og skilja þetta eftir í fortíðinni. En það kemur ekki til greina,“ segir Najmo. Þeir sem vilja styðja við Najmo geta fundið hana á www.hlaupastyrkur.is. Hleypur gegn barnabrúðkaupum Ráðlegt er að fara nokkrum sinnum út að skokka í vikunni til að halda líkamanum sprækum. Najmo minnir á barnabrúðkaup og hleypur fyrir Amnesty International. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN Najmo Cumar Fiyasko. NÚ HEFUR YNGRI SYSTIR MÍN VERIÐ GEFIN Í HJÓNA BAND. ÞETTA ERU SÁR SEM ALDREI GRÓA. ÉG HUGSAÐI EITT SINN UM ÞAÐ HVORT ÉG ÆTTI BARA AÐ REYNA AÐ SKILJA ÞETTA EFTIR Í FORTÍÐINNI. F jölbreytt og kolvetnaríkt mataræði, nægur svefn og rólegar æfingar. Þetta ættu þeir sem hyggjast reima á sig hlaupaskóna næsta laugardag, þegar Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í 35. sinn, að hafa í huga síðustu vikuna fyrir hlaupið. Því miður er borin von að bæta þolið, nú þegar aðeins fáeinir dagar eru til hlaupsins, heldur ætti undirbúningur hlaupara fyrst og fremst að miða að því að þeir mæti úthvíldir til leiks. Ráðlegt er að fara nokkrum sinnum út að skokka í vikunni, til þess að halda líkamanum sprækum, en einungis rólega. Ekki skiptir síður máli að ná góðum svefni, sér í lagi síðustu tvær til þrjár næturnar fyrir hlaupið, og forðast að sama skapi allt óþarfa álag í vinnu og daglegu lífi. Það gildir það sama um æfingar og mataræði að varast ætti allar nýj- ungar síðustu vikuna fyrir keppnis- dag. Þá er ekki rétti tíminn til þess að spreyta sig á nýjum uppskriftum í eldhúsinu. Umfram allt skiptir máli að borða reglulega og hóflega og leggja áherslu á fjölbreytt og kol- vetnaríkt fæði, svo sem kartöflur, hrísgrjón, pasta og ávexti. Æskilegt er að draga úr neyslu á mjólkurvör- um og kjöti og forðast allan reyktan, saltaðan og steiktan mat, enda er hann þungmeltur. Morgunmaturinn á hlaupa- degi ætti að vera léttur, til dæmis hafragrautur eða ristað brauð, og skal helst ekki neyta hans minna en þremur klukkutímum áður en hlaupið er af stað. Ekki má heldur gleyma að dreypa á vatni af og til um morguninn sem og dagana fyrir hlaup. Ef heitt er í veðri borgar sig jafnframt að fá sér vatn á drykkjar- stöðum, sem eru á um það bil fjög- urra kílómetra fresti í hlaupinu, til þess að bæta upp vökvatap. Óþarft er að taka inn aðra næringu nema hlaupið sé í meira en níutíu mínútur. Anda í takt við hlaupahraðann  Skórnir skipta mestu máli þegar kemur að útbúnaði. Það er ómögu- lega hægt að nota gömlu, þreyttu hlaupaskóna en skórnir mega heldur ekki vera glænýir. Það þarf að „hlaupa þá til“, eins og sagt er, áður en keppt er í þeim. Hlaupalag fólks er ólíkt frá náttúrunnar hendi og verður því hver og einn að finna út hvaða skór henta. Byrjendur ættu þó fremur að velja þyngri skó með þykkum sóla og góða dempun heldur en þunna og létta skó sem veita fótunum minni vörn. Það er góð tilfinning að standa á ráslínunni með þúsundum annarra hlaupara. Þó má ekki gleyma sér í stemningunni og æða of geyst af stað, eins og allt of algengt er, heldur ætti fremur að byrja rólega og auka hraðann jafnt og þétt eftir því sem líður á hlaupið. Hlauparar ættu að huga að því að slaka á í efri hluta líkamans og anda vel með bæði nefi og munni í takt við hlaupahraðann. Líkaminn á að vera uppréttur og handleggir og axlir slakar á meðan mjaðmir og fætur sjá alfarið um hlaupahreyfinguna. – kij Ekki byrja of geyst Hugurinn kemur hlaupurum í mark Hlaupin reynast mörgum erfið andlega ekki síður en líkam- lega. Er til dæmis ekki óalgengt að hlauparar lendi á „veggnum“ svonefnda þegar langt er liðið á erfitt hlaup. Fæturnir hætta þá að geta viðhaldið hraðanum og mann langar mest af öllu að gefast upp. Þá reynir á hugann. Ein aðferð sem hefur reynst mörgum vel til þess að komast í gegnum vegginn alræmda er að hugsa fallega til þeirra sem standa manni næst. Í miðju hlaupi – þegar endorfínið streym- ir um líkamann – magnast allar jákvæðar tilfinningar og hlaupið verður auðveldara viðureignar. Þúsundir reima á sig hlaupaskóna í Reykja- víkurmaraþoni Íslandsbanka næsta laugar- dag. Hollt mataræði, nægur svefn og rólegar æfingar leggja grunninn að góðu hlaupi. 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.