Fréttablaðið - 11.08.2018, Side 32
Deff Starr sækir innblástur til fornra gyðja og sterkra kvenna sem eru óhræddar við að fara eigin leiðir.
Deff Starr
skammt frá
Hörpu þaðan
sem Gleðiganga
hinsegindaga
leggur upp
stundvíslega
klukkan tvö í
dag. MYND/STEFÁN
Ég er frá Mið-Englandi, litlu þorpi í Staffordshire sem var mjög sveitó og ekki mikið
umburðarlyndi í gangi. Ég flutti eins
fljótt og ég gat til London og kynnt-
ist fyrrverandi kærastanum mínum
þar þegar ég var 22 ára. Við vorum
í fjarsambandi því hann er frá Sviss
og svo þegar hann fékk vinnu á
Íslandi ákvað ég að flytja hingað
líka og láta reyna á sambandið,“
segir Neville. „Ég hafði alltaf verið
spenntur fyrir Íslandi. Ég vissi að ég
vildi vinna við eitthvað skapandi
og Ísland er mjög skapandi staður.
Svo skipti líka máli sú staðreynd að
mannréttindi samkynhneigðra eru
lengra komin hér á Íslandi en víða
annars staðar þannig að ég vissi að
ég yrði ekki fyrir fordómum.
Í flestum öðrum löndum snýst
samkynhneigð svo mikið um
réttindabaráttu, sumstaðar bara
fyrir því að fá að vera til, en hér
finnst mér hlutirnir snúast meira
um að fagna fjölbreytileikanum því
svo mörgum réttindum hefur verið
náð þótt auðvitað sé ýmislegt eftir.
Það er líka gott að finnast maður
velkominn í framandi landi. Þegar
sambandinu lauk fyrir þremur og
hálfu ári fannst mér ég þurfa að vera
lengur á Íslandi, hér væri eitthvað
sem ég ætti eftir að gera.“
Drottning með Dragsúgi
Neville hefur einna helst vakið
athygli fyrir framkomu með fjöl-
listahópnum Dragsúgi. „Minn fyrr-
verandi var einn af stofnfélögunum
í Dragsúgi og þó að mig langaði
mjög mikið að vera með fannst
mér nóg að hafa eina drottningu á
heimilinu,“ segir hann og hlær. „Ég
byrjaði svo fyrir tæpum tveimur
árum og núna er ég einn af virkustu
meðlimunum.“
Dragsúgur er með reglulegar sýn-
ingar á Gauknum þar sem meðlimir
hópsins leika á ýmsum mörkum
fyrir troðfullum sal æstra aðdáenda
og Neville hefur ekki látið sitt eftir
liggja.
„Ég hef alltaf upplifað mig sem
listamann og sem slíkur er ég alltaf
að finna út hvað ég get gert og hvað
ég kemst upp með. Ég hef lært
textílhönnun, grafíska hönnun og
skúlptúrgerð þar sem ég lærði að
nota alls konar efni sem nýttist mér
þegar ég fór að búa til höfuðbúnað
og búninga. Ég held reyndar að
allt sem ég hef lært gegnum tíðina
hafi gagnast mér í draginu – þar
sameinast öll listformin. Mér finnst
mikilvægt að segja sögur, fyrst ég
er á sviði á annað borð finnst mér
mikilvægt að koma af stað sam-
ræðu við áhorfendur, ná tengslum
við þá, smita þá af hugmyndum,
halda athygli þeirra og hreyfa við
þeim.“
Dauðastjarnan Deff Starr
Allir draglistamenn eiga sér
sviðs nafn og Neville segir að Deff
Starr nafnið hafi byrjaði sem grín.
„Gógó Starr er dragmóðir mín og
lærimeistari. Hún er glamúrinn
uppmálaður og afar fagleg í vinnu-
brögðum, eiginlega allt sem ég er
ekki, svo við grínuðumst með að
ég myndi kalla mig Death Starr
eins og í Stjörnustríði, en fyrsta
sýningin sem ég tók þátt í var með
vísindaskáldsöguþema. Death Starr
breyttist svo í Deff Starr og hefur
haldist síðan.“
Hann segir að nafnið hafi mótað
sviðslist sína að vissu leyti. „Ég sæki
mikið í vísindaskáldskap og hryll-
ing en líka sterkar tilfinningar enda
er ég sporðdreki sem stjórnast af
Plútó sem sumir kalla dauðastjörn-
una. Ég dregst mjög að því myrka en
trúi að það sé alltaf hægt að finna
eitthvað fallegt og jákvætt. Og þetta
varð eiginlega leiðarljós í atriðum
Deff Starr, að fara frá myrkri og
hryllingi, sorg og depurð, yfir í von
og ljós. Mér finnst mikilvægt að
færa áhorfendum þessa von.“
Þriggja tíma umbreyting
Það tekur tímann sinn að koma
Deff Starr á kreik. „Ég vil helst hafa
um þrjá tíma til að koma mér í
drag,“ segir Neville. „Ég nota meira
listræna förðun en hefðbundna,
kvenlega förðun og finnst gaman að
leika mér með liti og form. Dragið
mitt er ekki venjulegt og ekki förð-
unin heldur. Ef ég er að gera útlit
sem ég þekki og hef gert áður getur
það tekið styttri tíma en aldrei
minna en klukkutíma.
Ég vil helst alltaf vera með ný
atriði með Dragsúgi, eða prófa nýja
búninga og förðun og það tekur
tíma. Eftir að hafa gert þetta í heilt
ár núna veit ég meira hvað hentar
mér og er búinn að búa mér til
minn stíl. Það er gott að vita hvað
ég vil leggja áherslu á og hvað veitir
mér innblástur.“
Innblásinn af sterkum konum
Talandi um innblástur fyrir Deff
Starr segist Neville sækja hann víða
að. „Ég fæ innblástur frá fornum
menningarheimum og trúar-
brögðum, gyðjum og vættum. Ég
fæ líka innblástur frá sterkum og
sjálfstæðum baráttu- og listakonum
sem ekki fara hefðbundnar leiðir að
fegurð, eins og Björk, Grace Jones
og fleiri og fleiri.“
Hann segir dragsenuna á Íslandi
frábrugðna þeirri í öðrum löndum
og meira spennandi að mörgu
leyti. „Áður en Dragsúgur kom til
sögunnar hafði Ísland ekki stóra
dragsenu en kabarettformið var
vel þekkt. Þar viltu halda áhorf-
endum á tánum, koma þeim á óvart
eða hreyfa við þeim og ég held
að þessi leikhúsbakgrunnur geri
það að verkum að Íslendingar eru
kröfuharðari við drag- og kabar-
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is, s. 512 5368 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðar-
dóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is,
s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Mér finnst mikil-
vægt að koma af
stað samræðu við áhorf-
endur, ná tengslum við
þá, smita þá af hugmynd-
um, halda athygli þeirra
og hreyfa við þeim.
Framhald af forsíðu ➛
ettlistamenn en til dæmis Banda-
ríkjamenn. Þar er nóg að fara í flott
gervi, hreyfa varirnar með lögum
og dansa fallega. Sem er í fínu lagi.
En Íslendingar vilja meira og það
gerir það að verkum að senan hér
er mjög spennandi og lifandi,“ segir
hann og viðurkennir að íslenskir
áhorfendur séu ekki auðveldir.
„Íslendingar eru almennt ekki
meðvirkir. Ef þú segir vondan
brandara hér þá fer enginn að hlæja
af kurteisi. Íslendingum leiðist
meðalmennska og hafa ekkert pláss
fyrir hana.“
Í augnhæð við áhorfendur
Gleðiganga Hinsegin daga leggur af
stað frá Hörpu klukkan tvö í dag og
Deff Starr lætur hana ekki fram hjá
sér fara.
„Ég verð að sjálfsögðu í gleði-
göngunni með Dragsúgi. Við vorum
með pallbíl í fyrra en í ár viljum við
vera sýnilegri og þess vegna ætlum
við að ganga á götunni til að upplifa
meiri nánd við þá sem eru að fagna.
Drag er mjög myndrænt listform
og það er miklu betra að sýna það í
augnhæð við áhorfendur.“
VILTU NÁ BETRI ÁRANGRI?
Sölustaðir: Flest apótek og www.heilsanheim.is
ESSENTIAL
MAGNESIUM
RECOVERY
ÍÞRÓTTAHÚÐVÖRURNAR
GETA HJÁLPAÐ ÞÉR!
Innihalda:
Magnesíum, Arnica,
Eucalyptus, Ginger,
Peppermint og fleiri
öflugar olíur.
- Flýta fyrir endurheimt vöðva eftir hlaup
- Koma í veg fyrir krampa og sinadrátt
- Minnka líkur á harðsperrum
- Góðar við verkjum, eymslum og bólgum
- Virka mjög hratt
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R